Grunnskóli Fjallabyggðar auglýsir
Vegna forfalla er staða þroskaþjálfa við Grunnskóla Fjallabyggðar laus tímabundið.
Um er að ræða 100% stöðugildi í afleysingu.
Þroskaþjálfi vinnur með nemendum með sértækar og flóknar náms- og stuðningsþarfir. Hann heldur utan um þjónustuteymi þeirra og er til ráðgjafar öðru starfsfólki skólans.
- Menntunar og hæfnikröfur:
- Menntun á sviði þroskaþjálfafræði ásamt leyfisbréfi.
- Mjög góð íslenskukunnátta.
- Góð hæfni í samskiptum við börn og fullorðna.
- Reynsla af vinnu með börnum er mikill kostur.
Upplýsingar veitir Ása Björk Stefánsdóttir skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar í gegnum netfangið asabjork@fjallaskolar.is eða síma 464-9152. Umsóknum skal skila á netfangið asabjork@fjallaskolar.is.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum viðkomandi fagfélags og launanefndar sveitarfélaga.
Grunnskóli Fjallabyggðar er 220 nemenda skóli með starfsstöðvar í Ólafsfirði og á Siglufirði. Skólaakstur er milli byggðarkjarna. Í skólanum er Uppbyggingarstefnan höfð að leiðarljósi og unnið gegn einelti skv. Olweusaráætlun. Nánari upplýsingar um skólann má finna á http://grunnskoli.fjallabyggd.is/
Gildi skólasamfélagsins í Fjallabyggð eru: Kraftur - Sköpun - Lífsgleði
Í Fjallabyggð búa um 2000 íbúar. Fjallabyggð er fjölskylduvænt samfélag þar sem tími er fyrir tómstundastarf allra í nálægð við náttúruna og blómlegt starf íþróttafélaga. Engin bið á rauðum ljósum!
Nánari upplýsingar um Fjallabyggð er að finna á heimasíðunni www.fjallabyggd.is og https://www.fagnar.is/
Með umsókn skal skila starfsferilskrá, nöfnum 2 umsagnaraðila og stuttri kynningu á umsækjanda. Umsækjandi þarf að veita leyfi til upplýsingaöflunar úr sakaskrá.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Fjallabyggð áskilur sér rétt til að hætta við ráðningu og/eða auglýsa að nýju.