Frístundamál

Í Fjallabyggð er öflugt íþrótta og tómstundastarf þar sem allir ættu að geta fundið tómstundir og/eða íþróttir við sitt hæfi, hvort sem það er að renna fyrir fisk í höfninni, sparka bolta, skella sér í sund, fara á skíði eða í gönguferð um þær stórkostlegu náttúruperlur sem Fjallabyggð státar af.

Við sameiningu Siglufjarðar og Ólafsfjarðar árið 2006 í Fjallabyggð opnuðust nýjar leiðir varðandi nýtingu íþróttasvæða í sveitarfélaginu. Samnýting á mannvirkjum og mannskap mun gera okkur kleift að efla þá þjónustu og aðstöðu sem fyrir er.

Fræðslu- og frístundanefnd fer með verkefni með íþrótta- og æskulýðsmál, samkvæmt lögum og reglugerðum þar um, ásamt öðrum þeim verkefnum sem nefndinni eru falin.

Allar frekari upplýsingar um íþróttir og tómstundamál er að finna hér á heimsasíðu Fjallabyggðar