20 ára og eldri velkomnir í opna hreyfitíma í þessari viku í íþróttahúsum Fjallabyggðar

Opnir hreyfitímar í íþróttahúsum fyrir íbúa Fjallabyggðar, 20 ára og eldri

Ákveðið hefur verið að bjóða íbúum 20 ára og eldri í síðustu opnu hreyfitímana fyrir páska. Þriðjudaginn 28. mars kl. 17:30 - 18:30 á Siglufirði og miðvikudaginn 29. mars kl. 17:00 - 18:00 í Ólafsfirði.

Stýrihópur um heilsueflandi samfélag ákvað að framlengja verkefnið með fjórum tímum í viðbót í Ólafsfirði eftir páska, þar sem mikil þátttaka hefur verið í opnum tímum þar. Allir íbúar Fjallabyggðar 20 ára og eldri eru velkomnir í tímana sem verða miðvikudagana 12. apríl, 19. apríl, 26. apríl og 3. maí. Í boði verður fjölbreytt hreyfing og góður félagsskapur.

Leiðbeinendur: María Bjarney Leifsdóttir íþróttakennari og Hallgrímur Þór Harðarson íþróttakennari

Allir íbúar 20 ára og eldri velkomnir – enginn aðgangseyrir.

Þátttakendur þurfa að vera í hreinum innanhúss eða strigaskóm.  

Þátttaka í hreyfingunni er á ábyrgð hvers og eins.

Stýrihópur um heilsueflandi samfélag.