Trilludagar – Fjölskyldudagar á Siglufirði

Trilludagar á Siglufirði helgina fyrir verslunarmannahelgi 27. júlí 2019


Laugardagur 27. júlí
 

kl. 10:00 - 16:00         Frítt á sjóstöng fyrir alla fjölskylduna. Vesti og sjóstangir um borð.

Frítt á sjóstöng og útsýnissiglingu út á fjörðinn fagra fyrir alla fjölskylduna.
Veiðistangir og beita verða um borð. Allir koma heim með eitthvað gott á grillið.

Allir velkomnir að hafa með sína eigin veiðistöng.

kl. 10:00 - 16:00         Grill á hafnarsvæðinu.
Kiwanis menn á Siglufirði standa við götugrillið frá því fyrsta trilla leggur af stað þar til sú síðasta kemur í land.

Þegar komið er að landi er gert að aflanum af fagfólki og hann síðan grillaður. Gestir fá svo að smakka. Boðið er upp á salat með fisknum.

Kl. 10:00-16:00           Grill, fjör og tónlist á hafnarsvæðinu allann daginn

  • Tónlist og fjör
  • Fjölskyldugrill; fiskur, pylsur og drykkur fyrir alla fjölskylduna
  • Hoppukastali fyrir káta krakka
  • Húla Dúllan mætir með nýja sýningu sem hentar allri fjölskyldunni þar sem tvinnað verður saman sirkus og vísindum. Boðið upp á húlahringi og húlafjör fyrir alla krakka. www.hulladullan.is
  • Síldargengið fer rúnt um bæinn á gamla vörubílnum endar svo við Roaldsbrakka þar sem slegið verður upp síldarsöltun og bryggjuballi eins og þeim einum er lagið.

Við klárum svo þennan frábæra fjölskyldudag með Trilluballi á bæjarbryggjunni þar sem Landabandið mun halda uppi Trilludagsstemningu fram eftir kvöldi.

Lifandi tónlist verður svo á Torginu Restaurant fram eftir nóttu.

Hannes Boy Restaurant verður með eitthvað gott á matseðlinum fram á kvöld.
Torgið Restaurant verður með opið með eitthvað gott fyrir svanga maga.
Harbor house býður upp á sinn eðal matseðil.
Aðalbakarinn Aðalgötu verður með allt sitt nýbakað og ferskt.
Og alltaf hægt að fá sér heimagert súkkulaði og konfekt hjá Fríðu á Súkkulaðikaffihúsi Fríðu.

Top Mountainering verður með sínar Kayak ferðir og siglingu á Ribbboat ef veður og aðstæður leyfa. 
         

Eitthvað  áhugavert að gerast alla Trilludagshelgina fyrir alla fjölskylduna

 

Málverka- og handverkssýningar
Söfn og setur eru opin
Veitingastaðir með eitthvað gott á matseðli
Barnaskemmtun – Leikhópurinn Lotta mætir
Bókmenntir og ljóð
Lifandi viðburðir á söfnum og veitingahúsum
Tónleikar víðs vegar um bæinn
Strandblakmót
Leiktæki fyrir börnin og fleira og fleira