Sjómannadagurinn í Ólafsfirði 2022

Dagskrá um sjómannadagshelgina í Ólafsfirði hefur nú litið dagsins ljós og má segja að hún sé hin glæsilegasta.  Það er Sjómannadagsráð Sjómannafélags Ólafsfjarðar sem hefur haft veg og vanda að gerð dagskrárinnar sem höfðar til fólks á öllum aldri.

Sjómannadagurinn hefur í langan tíma verið haldinn hátíðlegur í Ólafsfirði enda mikilvægur í augum íbúa svæðisins og sjómennskan nátengd sögu Ólafsfjarðar. Sjómannadagsráð Ólafsfjarðar hefur alla tíð lagt mikið upp úr því að halda veglega hátíð í tilefni sjómannadagsins og stendur hátíðin yfir í þrjá daga. Þannig hefur hátíðin markað sér sérstöðu á Norðurlandi, enda kemur fólk víða að til að skemmta sér og njóta dagsins í Ólafsfirði.  

Dagskráin hefst föstudaginn 10. júní kl. 16:00 með Leirdúfuskotmóti sjómanna á skotsvæði SKÓ.  Golfmótið Sjóarasveifla hefst kl. 17:00 þar sem spilaðar verða 18 holur með forgjöf. Um kvöldið verður Pétur Jóhann með uppistand í Tjarnarborg. 

Á laugardeginum 11. júní verður mikið um dýrðir en dagurinn verður tekinn snemma með dorgveiðikeppni fyrir börnin við höfnina kl. 09:30-10:30. Allan daginn verður eitthvað um að vera. Kappróður, kepnni um Alfreðsstöngina, tímaþraut og trukkadráttur við Tjarnarborg kl. 12:30 og býður Ramminn gestum upp á hina sívinsælu sjávarréttasúpu. Klukkan 16:30 hefst svo knattleikur Sjómenn - Landmenn á Ólafsfjarðarvelli.
Kl. 21:00 verður svo útiskemmtun við Tjarnarborg með Ástarpungunum.

Sjómannadagurinn 12. júní  hefst svo með skrúðgöngu frá hafnarvoginni að Ólafsfjarðarkirkju þar sem haldin verður hátíðarmessa og sjómenn verða heiðraðir. Fjölskylduskemmtun verður svo við Tjarnarborg kl. 13:30 þar sem verða hoppukastalar fyrir börnin, sölubásar, skemmtiatriði og tónlist. Slysavarnardeild kvenna verður með kaffisölu í Tjarnarborg frá kl. 14:30-17:00. 

Hátíðinni lýkur með árshátíð sjómanna í íþróttahúsinu og hefst hún kl. 19:00.

Miðasala á Sjómmadagshátíðina 12. Júní er í fullum gangi á sjorinn@simnet.is panta þarf miða fyrir 8.júní.

Dagskrá hátíðarinnar er hægt að nálgast hér og á Facebook síðu Sjómannadagsins í Ólafsfirði