Fundur heilbrigðisráðherra í Hofi á Akureyri á morgun, 12. júní

Heilbrigðisstefna – stefna fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu til ársins 2030 var samþykkt á Alþingi 3. júní síðastliðinn. Þetta eru mikilvæg tímamót fyrir heilbrigðisþjónustuna í landinu.

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að kynna heilbrigðisstefnuna í öllum heilbrigðisumdæmum landsins og verður fyrsti fundurinn haldinn í Hofi á Akureyri 12. júní næstkomandi kl. 17 – 19.

Á fundinum verður fjallað um hvað felst í stefnunni, hvaða breytingar hún er líkleg til að hafa í för með sér og hvers vegna hún skiptir svo miklu máli, hvort heldur í þéttbýli eða í dreifðari byggðum landsins.

DAGSKRÁ:

  • Kynning stefnunnar: Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra – Fyrirspurnir úr sal
  • Sýn forstjóra: Jón Helgi Björnsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands – Fyrirspurnir úr sal
  • Sýn forstjóra: Bjarni Jónasson, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri - Fyrirspurnir úr sal
  • KAFFIHLÉ
  • Pallborðsumræður. Þátttakendur auk frummælenda verða María Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, Valdimar O. Hermannsson, bæjarstjóri á Blönduósi og Elsa B. Friðfinnsdóttir, skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu.

Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis.

Athygli er vakin á því að streymt verður beint frá fundinum og verður streymið aðgengilegt á vef sjónvarpsstöðvarinnar N4, vef stjórnarráðsins (www.stjr.is) og á vefsvæði heilbrigðisráðuneytisins (www.hrn.is).

Dagskrá fundarins á pdf