Bestu lög Eagles - Jógvan, Vignir og Matti á Kaffi Rauðku 1. nóvember

Jógvan, Matti og Vignir Snær flytja helstu smelli Eagles á Kaffi Rauðku 1. nóvember!

The Eagles þarf varla að kynna fyrir neinum en hún er ein vinsælasta hljómsveit fyrr og síðar. The Eagles hefur selt yfir 200 milljón hljómplötur á heimsvísu, en bandið var stofnað árið 1971 og er enn starfandi í dag.
Hver þekkir ekki lög á borð við Hotel California, Take it easy, Lying Eyes, Tequila Sunrise, Desperado og Peaceful easy feeling svo fátt sé nefnt. Hljómsveitin á ótal mörg vinsæl lög sem hafa verið mikið spiluð í gegnum árin.
Þeir íslensku tónlistarmenn sem ætla að flytja þessa mögnuðu slagara Eagles eru þeir Jógvan Hansen, Matthías Matthíasson og Vignir Snær Vigfússon og hafa þeir verið fremstir á sínu sviði í mörg ár og ætla þeir þrír að flytja helstu lög Eagles.

Enginn sannur Eagles aðdáandi verður svikinn af að láta sjá sig á Rauðku þann 1. Nóvember!

Húsið opnar kl. 20:00
Tónleikarnir byrja kl. 21:00
Miðaverð 3900,-

Miðasala á tix.is og við inngang!

Við sjáumst þann 1.11 á Kaffi Rauðku!