Myndlistarsýning á Siglufirði, 1. - 3. ágúst.

Laugardaginn 1. ágúst næstkomandi kl 13:00 verður myndlistasýningin Lífsmörk - Útmörk opnuð í Sýningarsal Ráðhúss Siglufjarðar. Alls sjö listamenn taka þátt í sýningunni.
Listamennirnir hafa allir unni
ð  saman áður, til dæmis sýndu þau öll saman í verkefninu Flökkukindur á þessu ári sem gekk út á að fylla auð rými í miðborginni.
Það mun kenna ýmissa grasa á sýningunni, videoinnsetning, klippimyndir, myndbandsverk, teikningar, postulínskúlptúrar, málverk og ljósmyndir. Umfjöllunarefni þeirra er af ýmsum toga, sterkar konur, sjálfsímynd, endurvinnsla, líkt og ólíkt gildismat kynslóða, gremja og efniskennd. 
Lífsmörk - Útmörk er sjálfstætt framhald af sýningunni Lífsmörk sem haldin var á LungA hátíðinni 16. - 20. júlí.

Listamennirnir eru :
Bergþór Morthens, Gunnar Helgi Guðjónsson, Harpa Dögg Kjartansdóttir, Hugsteypan (Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir og Þórdís Jóhannesdóttir), Kristjana Rós Oddsdóttir Guðjohnsen og Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir. Myndlistarmennirnir hafa lokið  námi úr myndlistadeild Listaháskóla Íslandsog Myndlistarskóla Akureyrar.

Sýningin er öllum opin og aðgangur ókeypis