Fréttir

Fjárhagsáætlun 2025 - Opið fyrir styrkumsóknir, ábendingar, tillögur og eða erindi

Opnað hefur verið fyrir styrkumsóknir, innsendar ábendingar, tillögur og eða erindi árið 2025. Innsendingarfresti lýkur á miðnætti þriðjudaginn 24. september 2024. Einungis er hægt að sækja um rafrænt inn á "Þjónustugátt" á heimasíðu Fjallabyggðar.
Lesa meira

Velferðartæknimessa í Fjallabyggð 18. september 2024

Þann 18. september nk. munu Hátindur 60+ og Fjallabyggð bjóða sveitarfélögum, stofnunum og hverjum þeim sem hafa áhuga á velferðartæknilausnum að koma og kynnast lausnum sem styðja við sjálfstæða búsetu í heimahúsum. Einnig verða kynntar hugbúnaðarlausnir sem og lausnir sem nýtast stærri skipulagsheildum.Við hefjum dagskrá kl: 10:00 í Tjarnarborg Ólafsfirði með örkynningum frá sýningaraðilum en að þeim loknum er hægt að eiga nánara samtal.
Lesa meira

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2025

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2025. Sjóðurinn fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila. Í úthlutuninni er lögð áhersla á minna sótt svæði og lengingu ferðatímabils. Gæðamat sjóðsins mun taka mið af þessari áherslu og eru umsækjendur hvattir til að kynna sér nýtt gæðamatsblað sjóðsins.
Lesa meira

Rafrænn kynningarfundur og umsóknarfrestur í Uppbyggingarsjóð

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra og er umsóknarfrestur til 16. október kl. 12:00.
Lesa meira

248. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar

248. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar, verður haldinn í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði þann 19. september 2024 kl. 17:00.
Lesa meira

Evrópurútan á ferð um landið - Hofi Akreyri þriðjudaginn 17. sept. frá 16:00 - 18:00

Í tilefni þess að 30 ár eru síðan að samningur um Evrópska efnahagssvæðisins (EES) tók gildi, og veitti Íslandi aðgang að auknum tækifærum til samstarfs í Evrópu, mun Evrópurútan fara hringinn um landið í september þar sem vakin verður athygli á árangri af Evrópuverkefnum í heimabyggð og tækifærum til framtíðar í alþjóðasamstarfi.
Lesa meira

Fundarboð vegna tjónatilkynninga

Fjallabyggð boðar til fundar með húseigendum á Siglufirði sem urðu fyrir tjóni í kjölfar rigningaveðurs sem gekk yfir þann 23.-24. ágúst sl.
Lesa meira

Útboð – Ræsting í stofnunum Fjallabyggðar á Siglufirði

Fjallabyggð óskar eftir verðtilboðum í ræstingu sem hér segir:
Lesa meira

Félagsstarf aldraðra og dagdvöl eldri borgara Fjallabyggðar haustið 2024

Félagsstarf aldraðra og dagdvöl eldri borgara hefst samkvæmt vikuplani mánudaginn 9. september nk. og er dagskráin fjölbreytt að venju. Allir heldri borgarar Fjallabyggðar ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi og notið félagsstarfsins í vetur.
Lesa meira

Samverustund heldri borgara á Síldarkaffi alla föstudaga til jóla

Síldarkaffi býður heldri borgurum í Fjallabyggð til samverustunda í Salthúsinu alla föstudaga kl. 13:30.
Lesa meira