Erindisbréf nefnda 2022-2026

Málsnúmer 2206012

Vakta málsnúmer

Félagsmálanefnd Fjallabyggðar - 138. fundur - 09.06.2022

Lagt fram til kynningar
Nefndin felur deildarstjóra að koma á framfæri við bæjarráð tillögum að orðalagsbreytingum á erindisbréfinu.

Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 112. fundur - 13.06.2022

Erindisbréf fræðslu- og frístundanefndar lagt fram til kynningar og yfirferðar.
Lagt fram til kynningar
Erindisbréf fyrir Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar, dagsett 19. júní 2018 var lagt fram til kynningar.

Stjórn Hornbrekku - 33. fundur - 16.06.2022

Lagt fram til kynningar erindisbréf stjórnar Hornbrekku.

Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 87. fundur - 20.06.2022

Erindisbréf markaðs- og menningarnefndar lagt fram til kynningar og yfirferðar.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar.

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 286. fundur - 06.07.2022

Erindisbréf skipulags- og umhverfisnefndar lagt fram til kynningar og yfirferðar.
Lagt fram til kynningar

Bæjarráð Fjallabyggðar - 754. fundur - 15.08.2022

Lögð er fram tillaga deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála um breytingu á erindisbréfi fræðslu- og frístundanefndar.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar
Bæjarráð þakkar framkomið erindi deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála og felur bæjarstjóra og deildarstjórum að koma með tillögur að breytingum á erindisbréfum nefnda á vegum sveitarfélagsins.

Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 130. fundur - 06.09.2022

Erindisbréf Hafnarstjórnar lagt fram til kynningar og yfirferðar.
Lagt fram til kynningar.

Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 151. fundur - 07.04.2025

Drög að breyttu erindisbréfi fræðslu- og frístundanefndar lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar.

Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 151. fundur - 28.05.2025

Fyrir liggja drög að erindisbréfi nýrrar nefndar, framkvæmda-, hafna - og veitunefnd.
Samþykkt
Hafnarstjórn gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi drög að erindisbréfinu.

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 259. fundur - 06.06.2025

Fyrir liggja erindisbréf fyrir nýjar nefndir samkvæmt samþykktum um stjórn Fjallabyggðar sem staðfestar hafa verið. Um er að ræða erindisbréf fyrir fræðslu- og frístundanefnd, velferðarnefnd, framkvæmda-, hafna- og veitunefnd og skipulags- og umhverfisnefnd.
Samþykkt
Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum fyrirliggjandi erindisbréf fastanefnda Fjallabyggðar í samræmi við samþykktir um stjórn Fjallabyggðar og beinir því til sviðsstjóra að uppfæra fundadagatal nefnda og leggja fyrir næsta fund bæjarstjórnar.

Velferðarnefnd Fjallabyggðar - 1. fundur - 14.08.2025

Nýtt erindisbréf velferðarnefndar.
Lagt fram til kynningar
Sviðsstjóri fór yfir erindisbréfið, hlutverk nefndarmanna. Rætt var um frumkvæði nefnarinnar til að taka mál á dagskrá og að fá forstöðumenn sem heyra undir nefndina á fund.

Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 153. fundur - 18.08.2025

Nýtt og uppfært erindisbréf fræðslu- og frístundanefndar lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar.

Framkvæmda-, hafna og veitunefnd Fjallabyggðar - 1. fundur - 19.08.2025

Fyrir liggur erindisbréf fyrir framkvæmda-, hafna - og veitunefnd Fjallabyggðar í samræmi við samþykktir um stjórnun Fjallabyggðar.
Lagt fram til kynningar
Erindisbréfið hefur þegar verið samþykkt í bæjarstjórn og hafa nefndarmenn kynnt sér það.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 918. fundur - 07.05.2026

Fyrir liggur tillaga sviðsstjóra Velferðarsviðs á breytingu á samþykkt fyrir Ungmennaráð Fjallabyggðar og breytingu á skipan í stýrihóp um heilsueflandi samfélag þannig að bætt verði við í stýrihópinn fulltrúa úr Ungmennaráði Fjallabyggðar.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu á breytingu á samþykkt fyrir Ungmennaráð Fjallabyggðar sem og tillögu að breytingu á skipan í stýrihóp um heilsueflandi samfélag.

Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 162. fundur - 08.06.2026

Erindisbréf fræðslu- og frístundanefndar lagt fram til kynningar og yfirferðar.
Lagt fram til kynningar
Sviðsstjóri fór yfir erindisbréf Fræðslu- og frístundanefndar Fjallabyggðar, dagsett 6. júní 2025.

Velferðarnefnd Fjallabyggðar - 9. fundur - 11.06.2026

Breyting á erindisbréfi nefndarinnar.
Lagt fram til kynningar
Erindisbréfið lagt fram til kynningar og sviðsstjóri fór yfir helstu atriði. Breyta þarf því sem snýr að Hornbrekku og einnig barnavernd þar sem hún er nú hjá Barnaverndarþjónustu Norðurlands eystra.