Ungmennaráð Fjallabyggðar

47. fundur 10. september 2026 kl. 10:45 - 11:45 Bylgjubyggð 2b, Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Alex Helgi Óskarsson Aðalmaður
  • Margrét Hlín Kristjánsdóttir Varamaður
  • Tristan Nökkvi Magnússon Aðalmaður
  • Heiðdís Erla Sigurðardóttir Aðalmaður
  • Frímann Páll Ásgrímsson Varamaður
  • Kamilla Maddý Heimisdóttir Aðalmaður
  • Reynir Logi Kristinsson Aðalmaður
Starfsmenn
  • Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir Sviðsstjóri

1.Drengskaparheit um þagnarskyldu 2026 - 2030

Málsnúmer 2606007Vakta málsnúmer

Drengskaparheit vegna nefndarsetu í ungmennaráði.
Samþykkt
Nefndarmenn undirrituðu drengskaparheit.

2.Erindisbréf nefnda 2022-2026

Málsnúmer 2206012Vakta málsnúmer

Samþykktir fyrir ungmennaráð
Lagt fram til kynningar
Sviðsstjóri fór yfir samþykktir fyrir ungmennaráð.
Formaður var kjörinn Heiðdís Erla Sigurðardóttir og varaformaður: Reynir Logi Kristinsson.
Tristan Nökkvi Magnússon, Kamilla Maddý Heimisdóttir og Frímann Páll Ásgrímsson sitja í tvö ár.

3.Ungt fólk og lýðheilsa

Málsnúmer 2605050Vakta málsnúmer

Ráðstefnan ungt fólk og lýðheilsa verður haldin á Reykjum í Hrútafirði.
Lagt fram til kynningar
Ungmennafélag Íslands stendur fyrir ungmennaráðstefnunni Ungt fólk og lýðheilsa dagana 18.- 20. september 2026 í Skólabúðum UMFÍ á Reykjum í Hrútafirði. Ráðstefnan er ætluð ungu fólki á aldrinum 15-25 ára og er yfirskrift hennar í ár Blómstrum. Styrkjumst. Tengjumst.

Á ráðstefnunni verður lögð áhersla á andlega, líkamlega og félagslega heilsu ungs fólks, sjálfsmynd, lífsstíl, tengsl og áhrif stafræns umhverfis á daglegt líf. Markmiðið er að styrkja ungt fólk, efla sjálfstraust þess og þátttöku og hvetja það til að hafa áhrif á eigið líf og nærsamfélag.

Þar sem mjög stuttur tími er til stefnu mun ekki verða skipulagt af hálfu sveitarfélagsins að fara en ungmennin hvött ef þau hefðu tök á að sækja ráðstefnuna.

Meðal gesta og fyrirlesara verða Ólafur Stefánsson og Skúli Bragi Geirdal.

4.Ungmennaþing SSNE 2026

Málsnúmer 2510071Vakta málsnúmer

Skýrsla ungmennaþings SSNE 2026
Lagt fram til kynningar
Til kynningar er skýrsla ungmennaþings SSNE sem haldið var á Húsavík þar sem fulltrúar ungmennaráða á svæðinu hittust og fóru yfir ýmislegt sem viðkemur starfi ungmennaráða.

5.Norðurslóðaáætlun vegna ungmenna

Málsnúmer 2608023Vakta málsnúmer

Upplýsingar um Norðurslóðaáætlunina sem beint er að ungu fólki og samtökum sem vinna að málefnum ungmenna.
Lagt fram til kynningar
Ungmennaráði kynnt sérstakt styrkjatækifæri á vegum Norðurslóðaáætlunarinnar sem beint er að ungu fólki og samtökum sem vinna að málefnum ungmenna. Kallið felur í sér tækifæri fyrir ungt fólk til þátttöku í alþjóðlegum samstarfsverkefnum og til að sækja um styrki til verkefna sem tengjast málefnum ungs fólks.

Ungmennaráð er hvatt til að kynna sér þau tækifæri sem felast í kallinu og möguleika á þátttöku í verkefnum á vegum Norðurslóðaáætlunarinnar.

6.FIFA Arena verkefni FIFA og KSÍ - Knattspyrnusamband Íslands

Málsnúmer 2608039Vakta málsnúmer

FIFA Arena verkefni FIFA og KSÍ - Knattspyrnusamband Íslands
Lagt fram til kynningar
Ungmennaráði kynnt verkefnið FIFA Arena sem FIFA og Knattspyrnusamband Íslands standa að. Verkefnið felur í sér uppbyggingu mini-knattspyrnuvalla á stöðum þar sem aðstöðu til knattspyrnuiðkunar skortir. FIFA og KSÍ standa straum af meginhluta kostnaðar við uppbyggingu vallanna.

Verkefnið getur skapað tækifæri fyrir sveitarfélög og íþróttafélög til að bæta aðstöðu til íþróttaiðkunar þar sem þörf er á. Umsóknarfrestur er til 18. september 2026.

7.Gulur september

Málsnúmer 2609017Vakta málsnúmer

Erindi frá landlækni - Gulur september
Lagt fram til kynningar
Ungmennaráði kynnt verkefnið Gulur september, samstarfsverkefni fjölmargra aðila sem miðar að því að efla geðrækt, auka þekkingu á sjálfsvígsforvörnum og minna á mikilvægi umhyggju og samveru. Áhersla ársins 2026 er sérstaklega á ungt fólk og að ná til þess í skólum, íþrótta- og tómstundastarfi, félagsstarfi og á samfélagsmiðlum.

Jafnframt var vakin athygli á því að október er forvarnamánuður og Forvarnadagurinn verður haldinn í byrjun mánaðarins. Ungmennaráð er hvatt til að kynna sér verkefnin og möguleika á þátttöku.

8.Farsældarráð SSNE

Málsnúmer 2603031Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Farsældarráði SSNE. Ráðið vinnur um þessar mundir að fjögurra ára aðgerðaáætlun um farsæld barna í landshlutanum. Farsældarráð safnar nú upplýsingum um stöðu barna og ungmenna á Norðurlandi eystra og mun byggja forgangsröðun aðgerða á þeim gögnum.
Lagt fram til kynningar
Sviðsstjóri fór yfir erindi frá Farsældarráði Norðurlands eystra sem send voru til ungmennaráða landshlutans.
Ungmennaráð mun svara spurningunum á næsta fundi.

9.Ungmennaráð - önnur mál 2026

Málsnúmer 2602016Vakta málsnúmer

Ýmis erindi sem ungmennaráð vill ræða
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Spurt var um hvort það væri ákvörðun Grunnskóla Fjallabyggðar eða hvort lög segðu að nemendur mættu ekki klára sundpróf 10. bekkjar fyrr eins og verið hefur.

Starfsmanni falið að kanna málið.

Fundi slitið - kl. 11:45.