Ungmennaráð Fjallabyggðar

48. fundur 19. nóvember 2026 kl. 10:45 - 11:30 Bylgjubyggð 2b, Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Edda Björg Magnúsdóttir Aðalmaður
  • Tristan Nökkvi Magnússon Aðalmaður
  • Heiðdís Erla Sigurðardóttir Aðalmaður
  • Mikael Ingi Jónsson Aðalmaður
  • Kamilla Maddý Heimisdóttir Aðalmaður
  • Reynir Logi Kristinsson Aðalmaður
Starfsmenn
  • Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir Sviðsstjóri

1.Áform um mótun ungmennastefnu

Málsnúmer 2603005Vakta málsnúmer

Fyrirhugað er að leggja fram fyrstu ungmennastefnuna fyrir Ísland í janúar.
Lagt fram til kynningar
Ungmennaráð Fjallabyggðar fagnar fyrirhugaðri framlagningu fyrstu ungmennastefnu Íslands fyrir árin 2026-2033. Ráðið mun fylgjast grannt með framvindu málsins og fara vel yfir stefnuna þegar hún verður lögð fram á Alþingi. Þar mun ráðið leggja sérstaka áherslu á stöðu ungs fólks á landsbyggðinni og að tryggð sé virk þátttaka ungmenna við ákvarðanatöku í málum sem snúa að þeim.

2.Aðgangur barna að samfélagsmiðlum

Málsnúmer 2611027Vakta málsnúmer

Aðgangur barna að samfélagsmiðlum
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar og umræðu frumvarp þar sem lagt er til að sjálfstæður aðgangur barna að samfélagsmiðlum miðist við 15 ára aldur, reiknað út frá fæðingarári. Samkvæmt frumvarpinu bera foreldrar og forsjáraðilar ábyrgð á að aldursmarkinu sé fylgt. Jafnframt er gert ráð fyrir reglubundinni fræðslu fyrir börn, foreldra og forsjáraðila um ábyrga notkun samfélagsmiðla.
Ungmennaráð telur ólíklegt að markmið frumvarpsins nái fram að ganga.

3.Nemendaskipti

Málsnúmer 2611028Vakta málsnúmer

Boð um nemendaskipti í Portúgal í mars-apríl 2027. Framhald af verkefni þar sem nemendur komu í slík skipti í Fjallabyggð s.l. sumar.
Lagt fram til kynningar
Sviðsstjóri upplýsti ungmennaráð um nemendaskipti sem fara fram í Portúgal næsta vor þar sem 10 nemendum er boðið að taka þátt þeim að kostnaðarlausu. Ungmennaráð fer með þetta í skólann og ræða við samnemendur og láta vita á mánudag.

4.Erindisbréf nefnda 2022-2026

Málsnúmer 2206012Vakta málsnúmer

Tilnefning á fulltrúa úr ungmennaráði í Stýrihóp um heilsueflandi samfélag.
Samþykkt
Reynir Logi verður aðalmaður og Tristan Nökkvi verður varamaður og er það samþykkt.

5.Ungmennaráð - önnur mál 2026

Málsnúmer 2602016Vakta málsnúmer

Erindi frá fulltrúum ungmennaráðs
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Fulltrúar MTR óska eftir að fá afnot af Neon einu sinni í mánuði. Rætt um að þau láti vita í hvert sinn með mætingu.

Reynir leggjur áherslu á að hafist verði handa við að byggja knatthúsið eins og búið hafi verið að ákveða.

Fundi slitið - kl. 11:30.