Menning

Í Fjallabyggð er blómlegt menningarlíf á hinum ýmsu sviðum menningarmála.  Fjölmörg félagasamtök halda uppi öflugu starfi, hér má finna glæsileg söfn og haldnar eru fjölmennar metnaðarfullar tónlistarhátíðir.

Þær tónlistarhátíðir sem haldnar eru í bæjarfélaginu eru kunnar fyrir metnaðarfulla dagská og spanna þær yfir vítt svið.  Þar skal fyrst nefna Þjóðlagahátíðina á Siglufirði sem hlaut Eyrarrósina árið 2005 sem áhugaverðasta hátíðin á landsbyggðinni. Trilludagar er fjölskylduhátíð sem haldin er helgina fyrir verslunarmannahelgi. Á Trilludögum er boðið upp á sjóstöng og útsýnissiglingar út á fjörðinn fagra, grill á hafnarsvæðinu, söng, tónlist, glens og gleði fyrir alla fjölskylduna. Öllu meiri ró er yfir dagskrá Berjadaga, sem haldnir eru hvert haust í Ólafsfirði en þar er sígild tónlist í fyrirrúmi.  Óhætt er að mæla með öllum þessum hátíðum fyrir unnendur góðrar tónlistar og fyrir þá sem vilja njóta tilverunnar.  Að auki eru haldnir í bæjarfélaginu fjölmargir tónleikar þar sem fram koma jafnt heimamenn sem landsþekktir tónlistarmenn.

Leikfélag er starfandi í bæjarfélaginu, nokkrir kórar og hljómsveitir og fjölmörg félagasamtök sem krydda mannlífið með öflugu starfi.

 Veist þú um viðburð í Fjallabyggð sem mætti birta á viðburðadagatalinu? Skráðu hann inn hér.

Fréttir

Strandmenningarhátíðin AÐUR HAFS OG STRANDA verður á Siglufirði 27. - 30. ágúst.

Auður hafs og stranda verður haldin á Siglufirði dagana 27.–30. ágúst. Hátíðin dregur fram sterka tengingu samfélagsins við hafið og strandmenningu með fjölbreyttri dagskrá þar sem listir, handverk, bátasmíði, tónlist og sögur tengdar sjónum fá að njóta sín.
Lesa meira

Síldarævintýrið á Siglufirði

Síldarævintýrið á Siglufirði fer fram um verslunarmannahelgina og býður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Öll dagskrá fyrir börn og ungmenni er að venju ókeypis.
Lesa meira