Sumarnámskeið barna og unglinga 2025

Eftirfarandi námskeið verða í boði fyrir grunnskólanemendur í Fjallabyggð sumarið 2025

Börn sem ekki eiga lögheimili í Fjallabyggð og koma hingað í frí eiga möguleika á að skrá sig á einhver þessara námskeiða.

Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við tengiliði námskeiða og spyrjast fyrir. 

ATH! Fleiri námskeið gætu bæst við á næstu dögum

Við hvetjum þá sem ráðgera að bjóða upp á afþreyingu eða aðra dagskrá fyrir börn og unglinga í sumar að senda upplýsingar um það til okkar á netfangið salka@fjallabyggd.is.

NÁMSKEIÐ Í MAÍ

Sundnámskeið

Hið árlega sundnámskeið yngstu snillinganna verður í sundlaug Siglufjarðar. 
Námskeiðið verður í 5 daga og svo Sýningardagur. 

Miðvikudagur 28. maí og föstudagur 309. maí.

Mánnudagur 2. júní, þriðjudagur 3. júní og miðvikudagur 4. júní
Sýningardagur verður svo fimmtudaginn 5. júní.

Námskeiðið er fyrir tvo elstu árganga leikskólans (2019-2020) og áætlaðar tímasetningar eru:
Hópur 1:  Kl. 10:00 - 10:40 
Hópur 2:  Kl. 10:40 - 11:20 

Skipting í hópa fer eftir skráningu en fjöldi barna í þessum tveimur áföngum er ólíkur (reynum samt að skipta eftir aldri en gerum ráð fyrir að einhver 2019 börn verði með 2020). Hvetjum því foreldra til að skrá sem fyrst.
Athuga að við erum öll saman í Sýningardeginum kl. 10:40-11:20

Námskeiðsgjald:
Kr. 10.000.-

Skráning og greiðsla fer fram í Abler appinu en með því  móti geta foreldrar nýtt sér frístundaávísanir Fjallabyggðar til að greiða námskeiðsgjaldið. Það er verið að vinna í því að setja upp námskeiðið í appinu. 

Ef það er eitthvað óljóst þá endilega hafið samband við kennara.

Kennarar verða Anna María Björnsdóttir s. 699-8817 og Óskar Þórðarson s. 848-6726

 

NÁMSKEIÐ Í JÚNÍ

Knattspyrnuæfingar - Knattspyrnufélag Fjallabyggðar (KF) 2025

Nánar auglýst síðar

Smíðavellir á Ólafsfirði í júní og júlí

Nánar auglýst síðar

Smíðavellir á Siglufirði í júní

Nánar auglýst síðar

GKS - Golfnámskeið á Siglufirði 20. - 22. júní

Golfnámskeið á Siglufirði

GKS mun bjóða upp á golfnámskeið fyrir krakka í sumar. Kennt verður á æfingasvæði GKS við Hól á Siglufirði.
Þau börn sem eiga búnað eru hvött til að taka hann með. GKS verður með búnað fyrir þau sem ekki eiga.


Æfingar verða yfir helgi 20. - 22 júní tímasetingar og fyrirkomulag auglýst síðar.

Helgargjald kr. 5.000.-

Golfkennari er Valdís Þóra fyrrverandi atvinnukylfingur á Evrópumótaröð kvenna,  golfkennaranemi og eigandi Golfheima á Akranesi. 

Skráning hjá GKS á netfangið siglogolf@gmail.com

Hægt verður að nota frístundastyrk. Allar frekari upplýsingar í síma 861-0268 (Linda)

Sundnámskeið i Ólafsfirði fyrir börn

Nánar auglýst síðar

 

NÁMSKEIÐ Í JÚLÍ

Smíðavellir á Ólafsfirði í júlí

Nánar auglýst síðar

Knattspyrnuæfingar - Knattspyrnufélag Fjallabyggðar (KF) 2025

 

NÁMSKEIÐ Í ÁGÚST

Knattspyrnuæfingar - Knattspyrnufélag Fjallabyggðar (KF) 2025

Nánar auglýst síðar

GKS - Golfnámskeið á Siglufirði 15. - 17. ágúst

Golfnámskeið á Siglufirði

Golfnámskeið á Siglufirði

GKS mun bjóða upp á golfnámskeið fyrir krakka í sumar. Kennt verður á æfingasvæði GKS við Hól á Siglufirði.
Þau börn sem eiga búnað eru hvött til að taka hann með. GKS verður með búnað fyrir þau sem ekki eiga.Æfingar verða yfir helgi 15. - 17. ágúst tímasetingar og fyrirkomulag auglýst síðar.

Helgargjald kr. 5.000.-

Golfkennari er Valdís Þóra fyrrverandi atvinnukylfingur á Evrópumótaröð kvenna, golfkennaranemi og eigandi Golfheima á Akranesi.

Skráning hjá GKS á netfangið siglogolf@gmail.com

Hægt verður að nota frístundastyrk. Allar frekari upplýsingar í síma 861-0268 (Linda)