Bæjarráð Fjallabyggðar

918. fundur 07. maí 2026 kl. 08:15 - 10:15 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Guðjón M. Ólafsson formaður
  • Tómas Atli Einarsson varaformaður
  • Helgi Jóhannsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson bæjarstjóri

1.Flugvallarsvæðið á Siglufirði

Málsnúmer 2602059Vakta málsnúmer

Á fundinn mættu fulltrúar Viking Heliskiing ehf., Björgvin Björgvinsson og Jóhann H Hafstein, til þess að gera grein fyrir starfseminni undanfarnar vikur og fara yfir þær athugasemdir sem borist hafa Fjallabyggð auk þess að greina frá hugmyndum um uppbyggingu á flugvallarsvæðinu á Siglufirði.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð þakkar Björgvin og Jóhanni fyrir góða yfirferð á starfseminni en fram kemur að aðstæður í vor hafa verið með endemum góðar fyrir starfsemina sem hefur þá komið fram í mikilli þyrluumferð. Lögðu þeir áherslu á að fyrirtækið starfi eftir lögum og reglugerðum um loftför og munu eftir sem áður leggja sig í laupa við að sambúð við bæjarbúa verði með sem allra besta móti. Bæjarráð tekur þessu fagnandi og brýnir fyrir forsvarsmönnum fyrirtækisins að tillitssemi og umburðarlyndi verði áfram höfð að leiðarljósi. Framkvæmdasviði er falið að kanna hvers konar umgjörð væri hægt sé að útbúa um þyrluumferð og starfsemi þeirra í Fjallabyggð í samráði við lögmann sveitarfélagsins, íbúa og fulltrúa fyrirtækisins, þannig að bæði íbúar og atvinnustarfssemin njóti góðs af.

Bæjarráð þakkar þá einnig Viking Heliskiing fyrir framlagt minnisblað um fyrirætlanir fyrirtækisins á flugvallarsvæðinu. Bæjarráð telur eðlilegan lýðræðislegan farveg fyrir þau heildar áform sem lögð hafa verið fram að svæðið í kringum núverandi flugvallarbyggingar verði deiliskipulagt. Í því ferli gæfist íbúum og öðrum tækifæri til þess að koma sínum athugasemdum á framfæri. Bæjarráði hugnast engu að síður vel þau áform sem kynnt hafa verið um notkun núverandi mannvirkja og uppfylla þau markmið bæjarstjórnar um nýtingu fasteigna á flugvallarsvæðinu til uppbyggingar á atvinnustarfsemi. Bæjarstjóra er falið að halda áfram samningaviðræðum við fyrirtækið um nýtingu þeirra og leggja fyrir bæjarstjórn til samþykktar.

2.Viðauki við fjárhagsáætlun 2026

Málsnúmer 2605003Vakta málsnúmer

Í ljósi aukins svigrúms til framkvæmda vegna niðurstöðu ársreiknings 2025 liggur fyrir tillaga að viðauka við fjárfestingaáætlun ársins 2026 upp á 57,5 milljónir króna. Lögð er áhersla á framkvæmdir við hafnarsvæðin, gangstéttir og leiksvæði í fyrirliggjandi tillögu.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að viðauka við fjárfestingaáætlun 2026 að upphæð kr. 57.500.000 þar sem lögð er áhersla á hafnarsvæðin, gangstéttir og leiksvæði. Viðaukanum verður mætt með lækkun á handbæru fé.

Þá felur bæjarráð bæjarstjóra að leggja fram frekari greiningu á kostnaði og umfangi framkvæmda við hafnarsvæðið í Ólafsfirði á svæðinu fyrir neðan Kjörbúðina og leggja fyrir áætlun og kostnaðarmat.  

3.Rekstur skíðasvæðis í Skarðsdal

Málsnúmer 2510036Vakta málsnúmer

Fyrir liggja upplýsingar um rekstur og gestafjölda á skíðasvæðinu í Skarðsdal í vetur auk þess sem fyrir liggur erindi frá rekstraraðila, L-7, þar sem nýtt er uppsagnarákvæði rekstrarsamnings en fyrirtækið hefur ekki hug á að reka svæðið næsta vetur.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð þakkar samantektina þar sem m.a. kemur fram að gestafjöldi á svæðinu eykst um ríflega 2.000 manns frá því í fyrravetur þrátt fyrir að aðeins séu 6 fleiri opnunardagar. Augljóst er að vel hefur tekist til með rekstur svæðisins í vetur og er rekstraraðila, L-7, þakkað fyrir vel unnið starf. Bæjarstjóra falið að kanna möguleika á rekstrarfyrirkomulagi næsta vetrar og leggja fram tillögur fyrir bæjarráð, sem og áætlun um þær framkvæmdir sem fram geta farið í sumar áður en rekstur svæðisins hefst að nýju næsta vetur.
Þá felur bæjarráð bæjarstjóra að leggja fyrir minnisblað um viðhaldsáætlun.

4.Samantekt vegna breytts fyrirkomulags í leikskóla Fjallabyggðar

Málsnúmer 2604063Vakta málsnúmer

Fyrir liggur vinnuskjal frá sviðsstjóra Velferðarsviðs með samantekt á breyttu fyrirkomulagi í leikskóla Fjallabyggðar sem og samantekt frá foreldraráði leikskólans.
Samþykkt
Bæjarráð þakkar samantektina og leggur til að svo stöddu að áfram verði unnið samkvæmt núverandi fyrirkomulagi í Leikskóla Fjallabyggðar en jafnframt leitað leiða til frekari sveigjanleikja og mæta þeim áhyggjum er fram koma hjá foreldrum varðandi opnunartíma, sérstaklega á föstudögum.

5.Erindisbréf nefnda 2022-2026

Málsnúmer 2206012Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga sviðsstjóra Velferðarsviðs á breytingu á samþykkt fyrir Ungmennaráð Fjallabyggðar og breytingu á skipan í stýrihóp um heilsueflandi samfélag þannig að bætt verði við í stýrihópinn fulltrúa úr Ungmennaráði Fjallabyggðar.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu á breytingu á samþykkt fyrir Ungmennaráð Fjallabyggðar sem og tillögu að breytingu á skipan í stýrihóp um heilsueflandi samfélag.

6.Sumarlokun bæjarskrifstofu 2026

Málsnúmer 2604058Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga bæjarstjóra að lokun bæjarskrifstofu frá 17.júlí til 4.ágúst n.k. vegna sumarleyfa.
Samþykkt
Bæjarráð staðfestir lokun bæjarskrifstofu samkvæmt tillögu frá 17.júlí til 4.ágúst n.k.

7.Gjaldskrár 2026

Málsnúmer 2509016Vakta málsnúmer

Með fundarboði fylgdi tillaga að breytingum á 6.grein gjaldskrár Vatnsveitu Fjallabyggðar er snýr að stórnotendum á vatni. Tillagan gerir ráð fyrir því að bæjarstjórn verði heimilt að veita stórnotendum sérstakan afslátt frá gildandi gjaldskrá tímabundið og aldrei lengur en til þriggja ára.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að breytingu á gjaldskrá sem veitir bæjarstjórn heimild til sérstakra tímabundinna sérákvæða til stórnotenda og vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

8.Vinnuskólinn 2026

Málsnúmer 2605002Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri upplýsti um stöðu á umsóknum í Vinnuskólann og í önnur störf tengd þjónustumiðstöð fyrir sumarið en fáar umsóknir hafa borist.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Í ljósi fyrirliggjandi upplýsinga um fáar umsóknir í störf er tengjast hefðbundnum sumarstörfum, s.s. garðslætti og fleiru slíku, leggur bæjarráð áherslu á að íþróttafélögum og öðrum félagasamtökum verði gefinn kostur á að taka að sér umhirðu opinna svæða líkt og gert var síðasta sumar. Miðað við fjölda umsókna í þessi störf nú þá hefur Þjónustumiðstöð ekki tök á að sinna umhirðuverkefnum umfram þau er snúa beint að opnum svæðum í eigu Fjallabyggðar í báðum byggðakjörnum.

9.Umsagnarbeiðni rekstrarleyfi gistingar - Aðalgata 15

Málsnúmer 2604062Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra þar sem óskað er umsagnar Fjallabyggðar á umsókn Welcome Iceland ehf. um gistileyfi vegna rekstur gististaðar að Aðalgötu 15, Ólafsfirði.
Samþykkt
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við umsóknina fyrir sitt leyti.

10.Áfangastaðaáætlun Norðurlands (DMP) 2025

Málsnúmer 2503013Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Markaðsstofu Norðurlands þar sem óskað er eftir uppfærslu á verkefnum Fjallabyggðar við uppbyggingu áfangastaða á svæðinu.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs að vinna að uppfærslu á verkefnum Fjallabyggðar við uppbyggingu áfangastaða á svæðinu í samráði við skipulags- og umhverfisnefnd.

11.Hitaveitumál í Ólafsfirði

Málsnúmer 2401052Vakta málsnúmer

Fyrir liggja upplýsingar frá Norðurorku varðandi stöðuna á jarðhitaborunum í Ólafsfirði. Fram kemur að hola sem boruð var í fyrrasumar gefur lítið magn af vatni auk þess sem hitastig mælist lægra heldur en í öðrum holum á svæðinu. Norðurorka er að vinna að hugmyndum um framhald rannsókna á svæðinu.
Lagt fram til kynningar
Bæjarráð lýsir vonbrigðum með þá stöðu sem virðist vera í þeim borunum fyrir heitt vatn sem gerðar voru á síðasta ári. Þá leggur bæjarráð ríka áherslu á að Norðurorka upplýsi reglulega um framvindu þeirra rannsókna sem fyrirhugaðar eru á svæðinu.

12.Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (sértækar ívilnanir og jöfnunarheimildir)

Málsnúmer 2604052Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsögn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga á frumvarpi til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

13.Ársfundur Brákar íbúðafélags 2026

Málsnúmer 2604057Vakta málsnúmer

Fyrir liggur ársreikningur Brákar íbúðafélags ses. og bókun fulltrúaráðs um mögulega sameiningu félagsins við leigufélagið Bríet ehf.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

14.Nefndasvið Alþingis - Mál til umsagnar 2026

Málsnúmer 2601003Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá nefnda - og greiningarsviði Alþingis þar sem sent er til umsagnar 595.mál, Loftlagslög.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

15.Stöðufundir skipulags- og framkvæmdasviðs 2026

Málsnúmer 2601018Vakta málsnúmer

Fyrir liggja vinnuskjöl vegna stöðufunda 61-65 með framkvæmdasviði.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

16.Flokkun Eyjafjörður ársreikningur 2025

Málsnúmer 2605004Vakta málsnúmer

Fyrir liggur ársreikningur Flokkunar fyrir árið 2025.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

17.Launayfirlit tímabils - 2026

Málsnúmer 2602003Vakta málsnúmer

Með fundarboði bæjarráðs fylgdi yfirlit launakostnaðar fyrir fyrstu fjóra mánuði ársins 2026. Áfallinn launakostnaður er 93,4% af tímabilsáætlun.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 10:15.