Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar

162. fundur 08. júní 2026 kl. 16:15 - 18:30 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Kristinn Kristjánsson formaður
  • Kristín Margrét Halldórsdóttir aðalm.
  • Jón Kort Ólafsson aðalm.
  • Rut Jónsdóttir aðalm.
Starfsmenn
  • Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs

1.Frístundamál

Málsnúmer 2606008Vakta málsnúmer

Stefnumótun í frístundamálum.
Lagt fram til kynningar
Minnisblað frá deildarstjóra fræðslu- og frístundamála um fyrirkomulag frístundarmála. Nefndarmenn ræddu um að efla þurfi frístundarúrræði á ársgrundvelli. Sviðsstjóra og deildarstjóra falið að vinna málið áfram og leggja fyrir næsta fund fræðslu- og frístundanefndar.

2.Staðan við skólalok grunnskólans

Málsnúmer 2606010Vakta málsnúmer

Staðan við lok grunnskólans.
Lagt fram til kynningar
Sviðsstjóri fór yfir stöðuna í lok skólaárs. Auglýst hefur verið eftir skólastjóra og kennurum en ekki hefur tekist að manna í allar stöður ennþá. Unnið verður áfram í þeim málum.

3.Sveitarfélagaskólinn

Málsnúmer 2606003Vakta málsnúmer

Sveitafélagaskóli Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar
Kynning á Sveitafélagaskólanum á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem fræðsla er um störf nefnda og annað er varðar nýkjörna sveitarstjórnarfulltrúa.

4.Erindisbréf nefnda 2022-2026

Málsnúmer 2206012Vakta málsnúmer

Erindisbréf fræðslu- og frístundanefndar lagt fram til kynningar og yfirferðar.
Lagt fram til kynningar
Sviðsstjóri fór yfir erindisbréf Fræðslu- og frístundanefndar Fjallabyggðar, dagsett 6. júní 2025.

5.Fundadagatal 2026

Málsnúmer 2512040Vakta málsnúmer

Fundadagatal fræðslu- og frístundanefndar
Lagt fram til kynningar
Dagatal nefndarinnar liggur fyrir fram að áramótum og mun sviðsstjóri senda fundarboð samkvæmt því þannig að nefndarmenn hafi í dagatalinu.

6.Gæðaráðsskýrsla leikskólans

Málsnúmer 2606009Vakta málsnúmer

Skýrsla gæðaráðs leikskólans
Afgreiðslu frestað
Afgreiðslu frestað þar sem leikskólastjóri var með starfsfólki í vorheimsókn á Akureyri.

7.TÁT skólaárið

Málsnúmer 2606011Vakta málsnúmer

TÁT skólaárið 2026
Lagt fram til kynningar
Kynnt var samantekt á starfi vetrarins hjá TÁT.

8.Sumarnámskeið fyrir börn 2026

Málsnúmer 2606015Vakta málsnúmer

Sumarnámskeið í Fjallabyggð
Lagt fram til kynningar
Nefndin fagnar því að í boði séu námskeið fyrir börn og ungmenni í sumar en leggur áherslu á að gera þurfi enn betur í þessum málum og munu nefndarmenn m.a. leggja áherslu á það í störfum sínum.

9.Ungmennaþing SSNE 2026

Málsnúmer 2510071Vakta málsnúmer

Fundargerð ungmennaþings SSNE lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar
Samantekt vegna ungmennaþings sem haldið var á Húsavík kynnt. Mikil ánægja var með ungmennaþingið hjá fulltrúum ungmennaráðs Fjallabyggðar. Áréttað er að nefndir sveitarfélagsins sendi ungmennaráði erindi, sem varða þeirra hagsmuni, til umfjöllunar og umsagnar.

10.Drengskaparheit um þagnarskyldu 2026 - 2030

Málsnúmer 2606007Vakta málsnúmer

Eyðublað vegna undirritunar drengskaparheits um þagnarskyldu lagt fram til undirritunar.
Samþykkt
Fundarmenn undirrituðu drengskaparheit um þagnarskyldu vegna setu í Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar.

11.Fundargerðir Farsældarráðs Norðurlands eystra

Málsnúmer 2512035Vakta málsnúmer

Fundargerð farsældarráð slögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar
Fundargerðin kynnt og sviðsstjóri sagði nefndarmönnum að áætlað væri að halda farsældardag 4. september í Hofi á Akureyri. Óskað var eftir að fá kynningu á ráðinu í ágúst. Sviðsstjóri mun leita eftir því hjá verkefnisstjóra SSNE að vera með slíka kynningu.

Fundi slitið - kl. 18:30.