Sorphiða:
Hvar á að setja...
...bleyjur?
Fara í gráu tunnuna, þar sem bleyjur eru yfirleitt samsettar úr mörgum efnum.
...bómull?
Í gráu tunnuna.
Hreina bómull er í raun hægt að jarðgera, en mjög erfitt er að greina hreina bómull frá bómull blandaðri með gerfiefnum. Einnig er algengt að bómullin hafi komist í snertingu við efni sem ekki eiga að fara í jarðgerð eins og t.d. snyrtivörur eða lífræn leysiefni (aceton).
...geisladiska?
Fara í almennu tunnuna. Þeir eru úr plastblöndu, auk þess sem það er málmþynna í þeim.
...eldhúsbréf?
Í gráu tunnuna. Það er þó í lagi að eitt og eitt bréf fari í lífrænu tunnuna þar sem það er stoðefni í jarðgerðina, en það er ekki gott að fá mikið magn í einu. Gott viðmið er að hafi eldhúsbréfið verið notað til að þurrka upp matarleyfar þá má setja það með lífrænu en hafi þær verið notaðar til að þurrka upp eitthvað annað þá þurfa þær að fara í gráu tunnuna.
...eyrnapinna?
Þeir eru samsettir og fara því í gráu tunnuna.
...frauðbakka t.d. undan kjötvörum?
Ef frauðbakkinn er með plastmerki (sjá sorphirðuhandbók) þá þarf að skola bakkann og setja með plastinu. Ef hann er ekki merktur fer hann í gráu tunnuna.
...G-mjólkurfernur og svalfernur þ.e. með áli að innan?
Fara með öðrum fernum.
...gler?
Gler á að setja í gráu tunnuna. Gler má alls ekki fara í grænu tunnuna. Ástæðan er að innihaldið úr grænu tunnunum er handflokkað og gler skapar hættu á slysum fyrir þá sem það gera.
...gluggaumslög?
Í sorphirðuhandbókinni kemur fram að gluggaumslög megi ekki fara beint í grænu tunnuna. En þar sem ekki er um gæðaflokkun á pappír að ræða mega gluggaumslög fara beint í grænu tunnuna.
Til að gera þetta 100% rétt þá má rífa “gluggan” úr og setja með plastinu en umslagið sjálft með pappírnum.
...íspinnabréf með vaxáferð?
Í gráu tunnuna.
...íspinnaspýtur?
Í gráu tunnuna. En það er í lagi að ein og ein fari með í lífrænu tunnuna (ekki síst ef þær eru brotnar í nokkra parta)
...kaffipakka?
Eru yfirleitt samsettir úr plasti og áli. Allar samsettar umbúðir fara í gráu tunnuna. Ef kaffipakkinn er bara úr áli fer hann með málmhlutum í grænu tunnuna eins ef hann er bara úr plasti fer hann með plasti í grænu tunnuna. Auðvelt er að sjá hvort umbúðir eru samsettar með því að rífa þær í sundur.
...kertavax?
Í gráu tunnuna.
...kjúklingabein?
Bein moltast ekki og því fara öll bein í gráu tunnuna. Það er þó í lagi að það fari aðeins af litlum beinum í lífrænu tunnuna.
Það er í lagi þó að fólk setji bein í jarðgerðartunnuna en þau jarðgerast ekki og því þarf að sigta moltuna eftir jarðgerð ef bein fara með.
...latexhanska?
Fara í gráu tunnuna.
...litaðar servéttur?
Í gráu tunnuna. Það er ekki gott að segja hvaða efni eru í litunum.
...pappír úr pappírstætara?
Fer í glæran poka í grænu tunnuna.
...penna?
Flestar gerðir af pennum á að setja í gráu tunnuna.
...plastpoka?
Allir plastpokar mega fara með plasti þó þeir séu ómerktir. Harðir pokar t.d. innan úr kornflex pökkum mega þó ekki fara með þar sem óvíst er hvaða efni eru í þeim. Þunnu pokarnir sem notaðir eru fyrir ávexti í matvöruverslunum mega fara með plastinu eins gjaldfrjálsir pokar t.d. pokar úr bakaríum.
...plastpoka með álímdum miðum úr pappír?
Það er í lagi þó það séu einhverjir miðar á pokunum. Ef það er auðvelt að kippa þeim af þá er það æskilegt.
...plast sem ekki er með endurvinnslumerki?
Ómerkt plast verður að fara í gráu tunnuna þar sem ómögulegt er að segja til um úr hverju það er eða hvernig það skuli endurunnið. Þó mega plastpokar fara í grænu tunnuna með öðru plasti þótt þeir séu ekki merktir.
Allt hart plast verður að vera merkt til að mega fara með plastinu. Allt ómerkt hart plast fer í gráu tunnuna.
...smjörpappír/bökunarpappír?
Í gráu tunnuna.
...snakkpoka?
Flestir snakkpokar eru úr plasti og fara í grænu tunnuna. Ef þeir eru samsettir úr áli og plasti þá fara þeir í gráu tunnuna.
...tyggjó?
Í gráu tunnuna
Fer allt plast saman í glæran poka s.s. sjampóbrúsar og plastpokar?
Allt endurvinnanlegt plast (sjá svör um plast og plastpoka ofar) má fara í sama glæra pokann.
Má setja sléttan pappa s.s. kornflex pakka með fernunum poka?
Fernurnar fara í sér glæran poka og slétti pappinn í sér glæran poka.
Sorpflokkun:
Hver er tilgangurinn með flokkuninni?
Tilgangurinn er að minnka umfang þess sorps sem fer til urðunar og auka endurvinnslu. Það er bæði umhverfisvænna og fjárhagslega hagkvæmt. Kostnaður af urðun hefur hækkað mikið og mun halda áfram að hækka. Það er því æ mikilvægara að halda magni sorps til urðunar í lágmarki. Sorp sem hægt er að endurvinna er verðmæt vara sem hægt er að selja og nota tekjurnar til að lækka þennan kostnað.
Hækka sorphirðugjöldin við þessar breytingar?
Sorphirðugjaldið hækkar árið 2010. Nýtt fyrirkomulag sorphirðu er þó ekki ástæðan. Ástæðan er að sorphirðugjöld hafa ekki staðið undir kostnaði af sorphirðu eins og eðlilegt þykir. Í reynd lækkar kostnaður okkar við breytinguna.
Hvað eru tunnurnar stórar?
Græna og gráa tunnan eru 240 ltr. Málin eru D 72,5sm x B 58sm x H 107,5sm. Brúna tunnan er 140 ltr og mál hennar eru D 55sm xB 48sm x H 106,5sm.
Hver tæmir tunnurnar?
Íslenska gámafélagið mun sjá um að tæma tunnurnar samkvæmt sorphirðudagatali.
Er sorp líka tekið frá fyrirtækjum?
Fyrirtæki sjá sjálf um að farga sorpi og framleiðsluúrgangi og standa straum af kostnaði. Fyrirtæki geta samið við sveitarfélagið um að fá sömu þjónustu og heimili, en þá er gert ráð fyrir að aðeins sé um að ræða sorp frá kaffistofu o.þ.h. sem er svipað að samsetningu og heimilissorp.
Hvert á að hringja ef tunnan er ekki tæmd á réttum tíma?
Ef tunna er ekki tæmd á réttum tíma, eða ef íbúar vilja kvarta undan þjónustunni eiga þeir að hafa samband við bæjarskrifstofu Fjallabyggðar í síma 464 9100
Hvar mega tunnurnar standa?
Aðalatriðið er að tunnurnar séu aðgengilegar fyrir þá sem tæma þær þann dag sem þær eru tæmdar. Samkvæmt samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Fjallabyggð eiga tunnurnar að vera innan 15 metra frá götu og standa þannig að ekki þurfi að fara upp eða niður tröppur með þær. Undirlagið á leiðinni sem fara þarf með tunnurnar yfir við tæmingu á að vera þannig að auðvelt sé að keyra tunnurnar um það.
Ef tunnurnar eru geymdar á stað sem ekki uppfyllir þessi skilyrði, er það á ábyrgð íbúa að koma tunnunni á stað sem það gerir á auglýstum sorphirðudegi. Íbúar eiga einnig að moka snjó og vinna gegn hálku á leiðinni sem fara þarf með tunnurnar um.
Þarf tunnan að vera alveg við götuna?
Nei, það er ekki skilyrði (sjá næsta svar á undan).