Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar

87. fundur 20. júní 2022 kl. 16:00 - 16:50 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Ave Kara Sillaots varamaður, H lista
  • Ægir Bergsson Formaður, A-lista
  • Sandra Finnsdóttir varamaður, D lista
  • Bryndís Þorsteinsdóttir varamaður, A-lista
Starfsmenn
  • Linda Lea Bogadóttir markaðs- og menningarfulltrúi
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála
Fundargerð ritaði: Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála.
Sigríður Guðmundsdóttir var fjarverandi og varamaður hennar einnig.

1.Drengskaparheit um þagnarskyldu 2022-2026

Málsnúmer 2206011Vakta málsnúmer

Eyðublað vegna undirritunar drengskaparheits um þagnarskyldu lagt fram til undirritunar.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar
Nefndarmenn undirrituðu drengskaparheit um þagnarskyldu.

2.Erindisbréf nefnda 2022-2026

Málsnúmer 2206012Vakta málsnúmer

Erindisbréf markaðs- og menningarnefndar lagt fram til kynningar og yfirferðar.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar.

3.Hátíðir 2022

Málsnúmer 2206037Vakta málsnúmer

Farið yfir hátíðir í Fjallabyggð 2022 með nýrri markaðs- og menningarnefnd.
Lagt fram til kynningar
Markaðs- og menningarfulltrúi fór yfir hátíðir í Fjallabyggð sumarið 2022 sem eru nú á dagskrá eftir takmarkanir vegna heimsfaraldurs síðustu tveggja ára. Hátíðir á sjómannadegi og þjóðhátíðardegi gengu vel. Sjómannadagsráð Ólafsfjarðar sá um Sjómannadagshátíðina nú sem fyrr og Smástrákar, ungliðasveit björgunarsveitarinnar Stráka sáu um hátíðardagskrá 17. júní. Þjóðlagahátíð verður haldin 6. - 11. júlí undir nafninu Þýtur í stráum. Frjó listahátíð í Alþýðuhúsinu og víðsvegar um bæinn verður haldin dagana 15. - 20. júlí. Sápuboltamótið verður haldið 15. - 17. júlí. Trilludagar eru haldnir laugardaginn 23. júlí. Berjadagar, tónlistarhátíð verða haldnir um verslunarmannahelgi 29. - 31. júlí. Ljóðahátíðin Haustglæður eru haldnar í september/október.

Fundi slitið - kl. 16:50.