Velferðarnefnd Fjallabyggðar

9. fundur 11. júní 2026 kl. 16:00 - 17:15 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Kristín Ágústa Eiðsdóttir aðalm.
  • Sæunn Gísladóttir formaður
  • Þorfinna Þrastardóttir varam.
  • Guðlaugur Magnús Ingason aðalm.
  • Björk Óladóttir aðalm.
Starfsmenn
  • Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Sæunn Gísladóttir formaður

1.Erindisbréf nefnda 2022-2026

Málsnúmer 2206012Vakta málsnúmer

Breyting á erindisbréfi nefndarinnar.
Lagt fram til kynningar
Erindisbréfið lagt fram til kynningar og sviðsstjóri fór yfir helstu atriði. Breyta þarf því sem snýr að Hornbrekku og einnig barnavernd þar sem hún er nú hjá Barnaverndarþjónustu Norðurlands eystra.

2.Sveitarfélagaskólinn

Málsnúmer 2606003Vakta málsnúmer

Sveitafélagaskóli Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar
Sviðsstjóri hvatti nefndarmenn til að kynna sér sveitarfélagaskólann ekki síst það sem snýr að fundum nefnda.

3.Fundadagatal 2026

Málsnúmer 2512040Vakta málsnúmer

Fundadagatal velferðarnefndar lagt fram til kynningar.
Samþykkt
Nefndarmenn samþykktu fundadagatalið en óskað var eftir breytingu á upphafi fundatíma sem yrði kl. 16:15 í stað kl. 16:00 og var það samþykkt.

4.Starfsemi velferðarsviðs 2026

Málsnúmer 2606023Vakta málsnúmer

Kynning á starfsemi velferðarsviðs.
Lagt fram til kynningar
Sviðsstjóri fór yfir minnisblað deildarstjóra um starfsemi velferðarsviðs það sem af er ári.

5.Starfsemi velferðarsviðs 2026

Málsnúmer 2602017Vakta málsnúmer

Minnisblað velferðarsviðs vegna 2025.
Lagt fram til kynningar
Sviðsstjóri fór yfir minnisblað deildarstjóra félagsmáladeildar um helstu verkefni ársins 2025.

6.Reglur Fjallabyggðar um skammtímadvöl

Málsnúmer 2604059Vakta málsnúmer

Reglur um skammtímavistun
Samþykkt
Sviðsstjóri fór yfir drög að reglum vegna skammtímavistunar. Nefndin samþykkir reglugerðardrögin fyrir sitt leyti.

7.Reglugerð um fjölþættan vanda

Málsnúmer 2606016Vakta málsnúmer

Tekið fyrir tölvupóstur dags.28.04 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem áhyggjum er líst yfir að með reglugerðinni væri verið að þrengja skilgreiningar á þeim hópi barna sem eru skilgreind með fjölþættan vanda. Reglugerðin er í vinnslu eftir samráð.
Lagt fram til kynningar
Tölvupóstur barst þann 28.04.2026 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem fram koma áhyggjur að með reglugerðinni sé verið að þrengja skilgreiningar gagnvart þeim hópi barna sem eru skilgreind með fjölþættan vanda. Reglugerðin er nú í vinnslu en samráði lauk 12. maí.

Mennta- og barnamálaráðuneytið leggur til að sett verði ný reglugerð um málsmeðferð vegna vistunar barna með fjölþættar stuðningsþarfir í sérhæfð vistunarúrræði á vegum ríkisins, á grundvelli 3. mgr. 21. gr. laga um fatlað fólk með fjölþættar stuðningsþarfir, nr. 38/2018, og 3. mgr. 7. gr., sbr.4. mgr. 79. og 5. mgr. 80. gr. barnaverndarlaga, nr. 80/2002.

Í drögunum er m.a. fjallað um skilgreiningu vegna barna með fjölþættar stuðningsþarfir, upphaf og vinnslu mála hjá sérfræðingateymi, ákvörðun um vistun barna í sérhæft úrræði á vegum ríkisins og endurmat á þörf fyrir vistun í slík úrræði.

Markmið reglugerðarinnar er að skýra nánar hvaða börn teljast hafa fjölþættar stuðningsþarfir og í þörf fyrir vistun utan heimilis í sérhæfð vistunarúrræði á vegum ríkisins. Þá er jafnframt kveðið á um skýra málsmeðferð vegna slíkra ákvarðana, m.a. hlutverk sérfræðingateymis, sem metur þörf fyrir vistun. Reglugerðin felur í sér útfærslu á samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga þar sem ríkið tekur að sér aukna ábyrgð á framkvæmd og fjármögnun sérhæfðrar þjónustu vegna barna sem þarfnast búsetu utan heimilis og hafa verið metin í þörf fyrir þjónustu á þriðja stigi.

Reglugerðin tekur til barna sem glíma við flókinn og samsettan vanda sem krefst samsettrar þjónustu. Gert er ráð fyrir að vistun í sérhæfðu vistunarúrræði sé aðeins heimil þegar önnur úrræði innan heimilis og í nærumhverfi barnsins hafa verið fullreynd.

8.Þegar pabbi fór í fangelsi bók

Málsnúmer 2606017Vakta málsnúmer

Boð um kaup á bók
Vísað til bæjarráðs
Nefndin leggur til að keyptar verði tvær bækur, önnur fyrir grunnskólann og hin fyrir bókasafnið.

9.Drengskaparheit um þagnarskyldu 2026 - 2030

Málsnúmer 2606007Vakta málsnúmer

Eyðublað vegna undirritunar drengskaparheits um þagnarskyldu lagt fram til undirritunar.
Samþykkt
Nefndarmenn undirrituðu drengskaparheit um þagnarskyldu vegna setu í Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar.

10.Fundargerðir Farsældarráðs Norðurlands eystra

Málsnúmer 2512035Vakta málsnúmer

Fundargerð til kynningar.
Lagt fram til kynningar
Sviðsstjóri fór yfir fundargerð farsældarráðs SSNE og sagði frá fyrirhuguðum farsældardegi 4. september n.k.

Fundi slitið - kl. 17:15.