Bæjarráð Fjallabyggðar

383. fundur 10. mars 2015 kl. 16:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Steinunn María Sveinsdóttir formaður, S lista
  • Kristinn Kristjánsson varaformaður, F lista
  • Helga Helgadóttir varamaður, D lista
  • Jón Valgeir Baldursson varaáheyrnarfulltrúi, B lista
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála

1.Úthlutun frítíma í íþróttamiðstöð Fjallabyggðar og reglur

Málsnúmer 1502029Vakta málsnúmer

Á 381. fundi bæjarráðs, 24. febrúar 2015 þar sem úthlutun frítíma og reglur fyrir íþróttamiðstöð Fjallabyggðar var til umræðu var óskað eftir yfirliti um nýtingu tíma hjá félögum.

Á fund bæjarráðs mætti íþrótta- og tómstundafulltrúi og fór yfir yfirlit um notkun á tímum í íþróttasal.

2.Ósk um úthlutun lóðar fyrir sjálfsafgreiðslustöð

Málsnúmer 1310025Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf bæjarstjóra til Skeljungs um lóðir undir sjálfsafgreiðslustöðvar í Fjallabyggð svo uppfylla megi makaskiptasamning frá 2008.

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar hefur lagt fram tillögu að staðsetningu lóða fyrir sjálfsafgreiðslustöð Skeljungs í Ólafsfirði og á Siglufirði.
Bæjarráð Fjallabyggðar hefur samþykkt þessa tillögu.

3.Bylgjubyggð 63 Ólafsfirði - kauptilboð

Málsnúmer 1411018Vakta málsnúmer

Lagt fram samkomulag sem gert var við kaupendur að Bylgjubyggð 63 Ólafsfirði, vegna skemmda á baðherbergi.

Bæjarráð samþykkir samkomulagið og vísar til viðauka við fjárhagsáætlun.

4.Slökkvilið Fjallabyggðar - Ársskýrsla 2014

Málsnúmer 1503013Vakta málsnúmer

Lögð fram ársskýrsla slökkviliðsstjóra um starfsemi Slökkviliðs Fjallabyggðar 2014.

Bæjarráð þakkar fyrir góða greinargerð.

5.Skíðasvæði Fjallabyggðar - Siglufirði

Málsnúmer 1503016Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf bæjarstjóra til Ofanflóðasjóðs dagsett 4 mars 2015, þar sem formlega er farið fram á að Ofanflóðasjóður komi að hlutdeild í kostun á færslu skíðasvæðisins í Siglufirði.

6.Framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga janúar - desember 2014

Málsnúmer 1502049Vakta málsnúmer

Á 381. fundi bæjarráðs frá 24. febrúar 2015, var lagt fram samanburðaryfirlit yfir framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til nokkurra sveitarfélaga ásamt Fjallabyggð.

Bæjarráð samþykkti að senda fyrirspurn til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um nánari forsendum fyrir úthlutun.

Í svari Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, dagsett 26. febrúar 2015, er farið yfir forsendur framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga á grundvelli reglugerðar nr. 960/2010 um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga og sérstakra reglugerða.

Bæjarráð þakkar greinargóð svör.

Jafnframt vill bæjarráð að eftirfarandi sé kannað:
1. Þarf að sækja sérstaklega um framlag vegna snjómoksturs.
2. Á bæjarfélagið rétt á jöfnunarsjóðsframlagi vegna skólabúða að Reykjum.

Bæjarráð óskar eftir útreikningi og sundurliðun á framlagi Jöfnunarsjóðs vegna málefna fatlaðra í Fjallabyggð.

7.Fyrirtækjaþing í Fjallabyggð

Málsnúmer 1501052Vakta málsnúmer

7. fundur Atvinnumálanefndar frá 4. mars 2015, lagði til við bæjarráð að haldið yrði fyrirtækjaþing í Fjallabyggð, um mánaðarmótin september/október 2015 og að skipaður verði starfshópur til að undirbúa slíkt þing.

Í minnisblaði markaðs- og menningarfulltrúa kemur fram nánari útfærsla á hugmyndinni um fyrirtækjaþing í Fjallabyggð, framkvæmd, markmið og áætlaður kostnaður.

Bæjarráð lítur jákvætt á málið og óskar eftir nánari hugmyndum atvinnumálanefndar að útfærslu.

8.Greinargerð um skiptingu eignarhluta SFNV

Málsnúmer 1502109Vakta málsnúmer

Á 381. fundi bæjarráðs frá 24. febrúar 2015, var tekið fyrir erindi framkvæmdastjóra Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra frá 18. febrúar 2015, vegna fjárhagslegs uppgjörs á málefnum fatlaðra SFNV til aðildarsveitarfélaga.
Til grundvallar var greinargerð um skiptingu eignarhluta SFNV.

Bæjarráð óskaði eftir nánari upplýsingum um forsendur skiptingar.

Svör við fyrirspurn liggja nú fyrir, dagsett 3. mars 2015.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við fjárhagslegt uppgjör.

9.Umsóknir vegna verkefna í hafnargerð og sjóvörnum - Tillaga frá Vegagerð að hönnun á bæjarbryggju

Málsnúmer 1502088Vakta málsnúmer

Á 66. fundi hafnarstjórnar frá 3. mars 2015, var lögð fram skýrsla um endurbætur á bæjarbryggju á Siglufirði (Hafnarbryggju) frá siglingasviði Vegagerðarinnar. Tillögur sem fram koma í skýrslunni hafa verið kynntar hagsmunaaðilum og var það almenn skoðun þeirra að tillaga 3 væri ákjósanlegust.

Hafnarstjórn lýsti yfir ánægju með framkomnar tillögur á endurnýjun bæjarbryggjunnar og lagði til að valin yrði tillaga 3 og að hönnun verði sett á fullt.

Bæjarráð tekur undir samþykkt hafnarstjórnar um val á tillögu 3.

10.Dýpkun - Siglufjarðarhöfn

Málsnúmer 1503011Vakta málsnúmer

66. fundur hafnarstjórnar frá 3. mars 2015, samþykkti að ganga til samninga um dýpkun í smábátahöfn Siglufirði við Hagtak. Deildarstjóra tæknideildar var falið að leggja fram uppkast að verksamningi við Hagtak fyrir næsta fund hafnarstjórnar. Einnig var hafnarstjóra og deildarstjóra tæknideildar falið að leita eftir þátttöku ríkisins í verkefninu.

Bæjarráð samþykkir að taka málið til formlegrar afgreiðslu þegar þátttaka ríkisins í verkefninu liggur fyrir.

11.Ársreikningur Fjallabyggðar 2014

Málsnúmer 1502055Vakta málsnúmer

Ársreikningur Fjallabyggðar fyrir árið 2014 lagður fram og vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn Fjallabyggðar, 11. mars 2014.

12.Sorphirðumál í Fjallabyggð

Málsnúmer 1503023Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar minnisblað bæjarstjóra og deildarstjóra tæknideildar frá fundi með forstjóra Íslenska gámafélagsins, en ÍG sér um sorphirðu í Fjallabyggð.

13.Breyting á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021: Deplar í Austur Fljótum: Landbúnaðarsvæði verður verslunar og þjónustusvæði.

Málsnúmer 1503003Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf og uppdráttur frá Sveitarfélaginu Skagafirði vegna tillögu að aðalskipulagsbreytingu innan sveitarfélagsins.

179. fundur skipulags- og umhverfisnefndar, 4. mars 2015, gerir ekki athugasemdir við tillöguna.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við tillöguna.

14.Ráðgjöf fyrir umsækjendur Erasmus í vefsíðu Rannís

Málsnúmer 1503022Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

15.Aðildarumsókn sveitarfélaga að rammasamningskerfi Ríkiskaupa fyrir árið 2015

Málsnúmer 1503010Vakta málsnúmer

Í erindi frá Ríkiskaupum frá 2. mars 2015, er kannaður vilji bæjarfélagsins til áframhaldandi aðild að rammasamningum Ríkiskaupa 2015.

Bæjarráð samþykkir óbreytta og áframhaldandi aðild Fjallabyggðar að rammasamningakerfi Ríkiskaupa.

16.Samstarf í umhverfismálum 2015

Málsnúmer 1503005Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá sjálfboðaliðasamtökunum SEEDS, dagsett 25. febrúar 2015, varðandi sjálfboðaliðahópa næsta sumar í hreinsun og önnur tilfallandi verkefni í bæjarfélaginu næsta sumar.

Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.

17.Flugklasinn Air 66N - Yfirlit 2011-2014

Málsnúmer 1503006Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Markaðsstofu Norðurlands, dagsett 25. febrúar 2015, um starf Flugklasans Air 66N á Norðurlandi.
Markmið klasans er að koma á beinu millilandaflugi um Akureyrarflugvöll allt árið um kring til framtíðar.
Stofnaðilar 2011, voru yfir 20 ferðaþjónustufyrirtæki og 10 sveitarfélög á Norðurlandi.

Óskað er eftir aðkomu bæjarfélagsins að þessu verkefni og framlagi sem nemur 300 kr. á hvern íbúa á ári í 3 ár, 2015-2017.

Bæjarráð óskar eftir að fulltrúi Flugklasans Air 66N á Norðurlandi komi á fund bæjarráðs og kynni verkefnið.

18.100 ára kaupstaðarafmæli Siglufjarðar 20. maí 2018

Málsnúmer 1305050Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Siglfirðingafélaginu og Vildarvinum Siglufjarðar, dagsett 24. febrúar 2015.
Í tengslum við 100 ára kaupstaðarafmæli og 200 ára verslunarafmæli Siglufjarðar þann 20. maí 2018, er lagt til að skipuð verði afmælisnefnd til að vinna að undirbúningi afmælisins.

Bæjarráð telur rétt að haldið sé upp á stórafmæli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar og samþykkir að vísa erindinu og frekari undirbúningsvinnu til umfjöllunar í markaðs- og menningarnefnd.

19.Almenningssamgöngur á Tröllaskaga

Málsnúmer 1408005Vakta málsnúmer

Samþykkt að fresta þessum dagskrárlið til næsta fundar.

20.Frumvarp til laga um farþegaflutninga á landi í atvinnuskyni, 504.mál

Málsnúmer 1502114Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar umsögn frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um frumvarpið, einnig áfangaskýrsla um almenningssamgöngur.

21.Matur-Inn 2015 kynningarbréf

Málsnúmer 1503004Vakta málsnúmer

Lagt fram kynningarbréf um sýninguna MATUR-INN 2015 sem verður haldin í Íþróttahöllinni á Akureyri dagana 17. og 18. október.

Bæjarráð samþykkir að fela markaðs- og menningarfulltrúa að áframsenda erindið á viðeigandi aðila innan Fjallabyggðar.

22.XXIX.landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 17.apríl 2015

Málsnúmer 1503020Vakta málsnúmer

Boðun XXIX. landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga 17. apríl 2015, í Kópavogi.

Fulltrúar bæjarfélagsins verða Steinunn María Sveinsdóttir formaður bæjarráðs og Kristinn Kristjánsson varaformaður bæjarráðs.

23.Áætlaður kostnaður við framkvæmdir og viðhald 2015-2020

Málsnúmer 1503024Vakta málsnúmer

Erindi sent til allra aðildarhafna frá Hafnasambandi Íslands, þar sem óskað er eftir áætluðum kostnaði hafnasjóða við viðhald og nýframkvæmdir næstu árin. Hafnarsambandið mun nýta þessar upplýsingar til að færa rök fyrir nauðsyn þess að auka þurfi fjármagn til hafnaframkvæmda í samgönguáætlun sem innanríkisráðuneytið vinnur nú að.

Bæjarráð felur hafnarstjóra að svara erindinu.

24.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga - 2015

Málsnúmer 1501008Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 826. fundar

Fundi slitið.