Greinargerð um skiptingu eignarhluta SFNV

Málsnúmer 1502109

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 381. fundur - 24.02.2015

Tekið fyrir erindi framkvæmdastjóra Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra frá 18. febrúar 2015, vegna fjárhagslegs uppgjörs á málefnum fatlaðra SFNV til aðildarsveitarfélaga.
Til grundvallar er greinargerð um skiptingu eignarhluta SFNV.

Bæjarráð óskar eftir nánari upplýsingum um forsendur skiptingar.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 383. fundur - 10.03.2015

Á 381. fundi bæjarráðs frá 24. febrúar 2015, var tekið fyrir erindi framkvæmdastjóra Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra frá 18. febrúar 2015, vegna fjárhagslegs uppgjörs á málefnum fatlaðra SFNV til aðildarsveitarfélaga.
Til grundvallar var greinargerð um skiptingu eignarhluta SFNV.

Bæjarráð óskaði eftir nánari upplýsingum um forsendur skiptingar.

Svör við fyrirspurn liggja nú fyrir, dagsett 3. mars 2015.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við fjárhagslegt uppgjör.