01.07.2026
Leitað er eftir áhugasömum einstaklingi í 100% starf sem er tilbúinn til að leiða metnaðarfullt og öflugt frístundastarf barna og unglinga. Í Fjallabyggð er góð samvinna milli íþróttafélaga, grunnskóla, tónlistarskóla og sveitarfélags um fjölbreytt frístundastarf.
Lesa meira
29.06.2026
Grunnskóli Fjallabyggðar leitar að liðsauka í frábæran hóp starfsmanna skólans frá 1. ágúst 2026.
Leitað er að einstaklingi sem er tilbúinn til að viðhalda og byggja upp öflugt skólasamfélag af dugnaði og atorku samkvæmt gildandi fræðslustefnu, með virðingu, metnað og gleði að leiðarljósi.
Lesa meira
29.06.2026
Þriðjudaginn 30. júní verður rafmagnslaust í Íþróttamiðstöð Siglufjarðar frá kl. 13:00–16:00 vegna framkvæmda.
Lesa meira
27.06.2026
Nú styttist í eina af rótgrónustu menningarhátíðum landsins þegar Þjóðlagahátíðin á Siglufirði verður haldin í 26. sinn dagana 1.–5. júlí. Hátíðin var fyrst haldin árið 2000 og hefur síðan fest sig í sessi sem einstakur vettvangur fyrir íslensk þjóðlög, heimstónlist og fjölbreytta menningarupplifun.
Lesa meira
26.06.2026
Staða skólastjóra Grunnskóla Fjallabyggðar var auglýst laus til umsóknar 7. apríl sl. Þrír umsækjendur voru um stöðuna.
Lesa meira
26.06.2026
Óskað er eftir áhugasömum rekstraraðila að skíðasvæðinu í Skarðsdal á Siglufirði með það að markmiði að auka aðsókn að svæðinu og halda áfram uppbyggingu á jákvæðri ímynd svæðisins.
Lesa meira
23.06.2026
273. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar, verður haldinn í Tjarnarborg, Aðalgötu 13, Ólafsfirði 25. júní 2026 kl. 17:00.
Lesa meira
23.06.2026
Berjadagar tónlistarhátíð – Olafsfjordur Music Festival verður haldin 26. júní–28. júní í Ólafsfirði, frá föstudagsmorgni til sunnudagskvölds. Þar verða flutt einleiksverk, óperuaríur, íslensk
sönglög, þjóðlög og spuni og koma fram tveir af allra fremstu óperusöngvurum landsins, þau Sigrún Hjálmtýsdóttir og Hrólfur Sæmundsson.
Lesa meira
18.06.2026
Þjóðhátíðarhöld 17. júní í Fjallabyggð tókust vel þrátt fyrir að veðrið hafi sett strik í reikninginn. Þegar leið á daginn fór að hvessa verulega og regndropar fóru að láta á sér kræla. Af þeim sökum var ákveðið að færa hátíðardagskrána inn í íþróttahúsið í Ólafsfirði.
Lesa meira