Nýr skólastjóri ráðinn við Grunnskóla Fjallabyggðar

Guðrún Unnsteinsdóttir hefur verið ráðin í stöðu skólastjóra frá 1. ágúst nk.  Staða skólastjóra Grunnskóla Fjallabyggðar var auglýst laus til umsóknar 7. apríl sl. Þrír umsækjendur voru um stöðuna. Guðrún er með BEd í kennarafræði og diplómu í stjórnun og forystu í lærdómssamfélagi. Guðrún hefur starfað sem kennari við Grunnskóla Fjallabyggðar í 29 ár og þar af 12 sem deildarstjóri.

Fjallabyggð býður Guðrúnu velkomna til starfa og þakkar Ásu Björk Stefánsdóttur fráfarandi skólastjóra vel unnin störf.