Fjallkona Fjallabyggðar 2026, Sunna Eir Haraldsdóttir ásamt dætrum sínum.
Vel heppnuð þjóðhátíð í Fjallabyggð þrátt fyrir veðrið
Þjóðhátíðarhöld 17. júní í Fjallabyggð tókust vel þrátt fyrir að veðrið hafi sett strik í reikninginn.
Dagskrá þjóðhátíðardagsins hófst með hinu árlega víðavangshlaupi Glóa sem fram fór á Rammalóðinni á Siglufirði. Þar mættu keppendur 6-11 ára til leiks og skapaðist góð stemning. Í hádeginu fór síðan fram knattspyrnuleikur 7. og 8. flokks Knattspyrnufélags Fjallabyggðar á knattspyrnuvellinum í Ólafsfirði þar sem ungu knattspyrnuiðkendurnir sýndu glæsilega takta og skemmtu áhorfendum með leik sínum. Þegar leið á daginn fór að hvessa verulega og regndropar fóru að láta á sér kræla. Af þeim sökum var ákveðið að færa hátíðardagskrána inn í íþróttahúsið í Ólafsfirði.
Þar hélt dagskráin áfram með þjóðhátíðarávarpi frá Idu Semey, Sunna Eir Haraldsdóttir, fjallkona dagsins, flutti ljóðið Vorsól eftir Stefán frá Hvítadal og tónlistaratriði frá Ástarpungunum sem sköpuðu hátíðlega stemningu. KF sá um að selja veitingar, blöðrur og sælgæti og lagði þannig sitt af mörkum til að gera daginn ánægjulegan fyrir gesti á öllum aldri. Slökkvilið Fjallabyggðar sá svo um froðufjör á sparkvellinum við miklar vinsældir.
Hátíðarstund í minningu sr. Bjarna Þorsteinssonar við Siglufjarðarkirkju var einnig færð inn vegna veðurs. Við athöfnina flutti Hanna Sigríður Ásgeirsdóttir ávarp þar sem minnst var merkra framlaga sr. Bjarna til samfélagsins. Að því loknu lagði Benedikt Frímann Þorsteinsson blómsveig að minnisvarða sr. Bjarna. Í tilefni þjóðhátíðardagsins bauð Þjóðlagasetrið einnig upp á kaffiveitingar.
Fjallabyggð vill þakka öllum þeim sem komu að skipulagningu og framkvæmd dagsins, sem og öllum þeim sem mættu og tóku þátt í hátíðarhöldunum. Þrátt fyrir breytilegt sumarveður ríkti sannkölluð þjóðhátíðarstemning og dagurinn var bæði hátíðlegur og ánægjulegur.
Myndir hér