Laus staða deildarstjóra yngri deildar við Grunnskóla Fjallabyggðar
Grunnskóli Fjallabyggðar leitar að liðsauka í frábæran hóp starfsmanna skólans frá 1. ágúst 2026.
Leitað er að einstaklingi sem er tilbúinn til að viðhalda og byggja upp öflugt skólasamfélag af dugnaði og atorku samkvæmt gildandi fræðslustefnu, með virðingu, metnað og gleði að leiðarljósi.
Grunnskóli Fjallabyggðar er ríflega 220 nemenda skóli með starfsstöðvar í Ólafsfirði og á Siglufirði. Nánari upplýsingar um skólann má finna á http://grunnskoli.fjallabyggd.is/
Nánari upplýsingar um Fjallabyggð er að finna hér
Deildarstjóri yngri deildar sinnir daglegri stjórnun starfsstöðvarinnar á Siglufirði þar sem eru um 115 nemendur í 1.-5. bekk. Hann er staðgengill skólastjóra í forföllum hans. Deildarstjóri leiðir einnig faglegt umbótastarf ásamt skólastjóra og deildarstjóra eldri deildar.
Gildi skólasamfélagsins í Fjallabyggð eru: Kraftur – Sköpun – Lífsgleði
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Skólastjórafélags Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Um er að ræða 100% stöðu sem felur í sér kennsluskyldu samkvæmt kjarasamningi.
Menntunar- og hæfnikröfur
• Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
• Hæfni sem stjórnandi og viðbótarmenntun í stjórnun eða reynsla sem veitir umsækjanda sérhæfða hæfni.
· Reynsla af kennslu í grunnskóla.
• Færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum verkefnum.
• Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði, góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund.
· Góð kunnátta á notkun tölvu- og stafrænna lausna í skólastarfi.
Umsókn um starfið skal fylgja starfsferilsskrá og afrit af leyfisbréfi, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið ásamt upplýsingum um tvo umsagnaraðila.
Umsóknum skal skila á netfangið bjarkey@fjallabyggd.is
Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Fjallabyggð áskilur sér rétt til að hætta við ráðningu og auglýsa að nýju.
Upplýsingar um starfið veitir Guðrún Unnsteinsdóttir skólastýra Grunnskóla Fjallabyggðar í gegnum netfangið gudunn@fjallaskolar.is eða síma: 863-2604.
Umsóknarfrestur er til og með 10. júlí 2026.