Berjadagar tónlistarhátíð – Olafsfjordur Music Festival verður haldin 26. júní–28. júní í Ólafsfirði, frá föstudagsmorgni til sunnudagskvölds. Þar verða flutt einleiksverk, óperuaríur, íslensk
sönglög, þjóðlög og spuni og koma fram tveir af allra fremstu óperusöngvurum landsins, þau Sigrún Hjálmtýsdóttir og Hrólfur Sæmundsson.
Berjadagar eiga nú nýtt alþjóðlegt nafn sem er Olafsfjordur Musicfestival og mun vera notað samhliða hinu heitinu.
Berjadagar voru stofnaðir formlega 1999 af Erni Magnússyni píanóleikara undir
einkunnarorðunum „Náttúra og listsköpun”. Listrænn stjórnandi er Ólöf Sigursveinsdóttir sellóleikari. Berjadagar eru árleg fjölskylduvæn tónlistarhátíð og er frítt fyrir 25 ára og yngri á alla tónleika. Í Ólafsfirði eru góðar aðstæður til hátíðarhalda og staðurinn er vænn til gönguferða og er gestum og flytjendum boðið að ganga saman inn í Árdal og Þverárdal á sunnudeginum.
Dagskráin í ár er ekki af verri endanum. Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran og Hrólfur Sæmundsson baritón ásamt Einari Bjarti Egilssyni á píanó sjá um fyrsta hátíðarkvöld Berjadaga föstudaginn 26. júní í stórglæsilegu Menningarhúsi Tjarnarborgar ásamt Ólöfu Sigursveinsdóttur sem mun leika eitt magnaðasta einleiksverk tónlistarsögunnar á selló. Þarna verða einnig flutt glæný lög eftir Hrólf Sæmundsson en hann semur tónlist við hlið krefjandi aðalhlutverka á alþjóðlegu óperusviði. Þetta blíða föstudagskvöld mun án efa bjóða upp á skemmtun sem enginn tónlistarunnandi ætti að láta fram hjá sér fara!
Hátíðarkvöld laugardagsins er í höndum Svavars Knúts sem kemur með strengjaleikara norður og skapa þau heillandi tónvef í Ólafsfjarðarkirkju. Þar verða einnig ný lög flutt þar sem félagarnir
stefna á löngu planaða tónleikaför erlendis næsta haust. „Vakað með vísum“ er yfirskrift tónleika hans og er Svavar einstakur sögumaður í tónum og tali. Með rætur í íslenskum ljóðaarfi,
þjóðsögum og vísnahefð skapar hann hlýja og heillandi kvöldvöku þar sem sögur, söngur og stemning renna saman í eina ógleymanlega upplifun.
Dagskrá má finna hér
Berjadagar njóta fjárstuðnings frá Bæjarsjóði Fjallabyggðar, Menningarsjóði FÍH, H, Ísfélaginu,
Eignarmiðlun ehf. o.fl.
Sími framkvæmdastjóra er 6152231 – Ólöf Sigursveinsdóttir