Fjallabyggð auglýsir eftir umsjónarmanni með félagsmiðstöðinni Neon og frístundamálum.
Leitað er eftir áhugasömum einstaklingi í 100% starf sem er tilbúinn til að leiða metnaðarfullt og öflugt frístundastarf barna og unglinga. Í Fjallabyggð er góð samvinna milli íþróttafélaga, grunnskóla, tónlistarskóla og sveitarfélags um fjölbreytt frístundastarf.
Helstu verkefni og ábyrgð
· Hefur umsjón með og starfar í félagsmiðstöðinni Neon og fer í ferðir á vegum hennar.
· Hefur umsjón með og starfar í lengdri viðveru og Frístund sem er frístundastarf fyrir 1. - 4. bekk í samstarfi við grunnskólann, íþróttafélög og tónlistarskólann í samráði við deildarstjóra fræðslu – og frístundadeildar.
Menntunar- og hæfnikröfur
· Reynsla af vinnu með börnum og ungmennum.
· Mjög góð færni í íslensku.
· Hrein sakaskrá.
Umsækjandi þarf að veita heimild til upplýsingaöflunar úr sakaskrá samkv. æskulýðslögum nr. 70/2007, komi hann til greina í starfið. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Samninganefndar sveitarfélaga (SNS) og viðkomandi stéttarfélag.
Næsti yfirmaður er deildarstjóri fræðslu- og frístundamála.
Umsóknarfrestur er til og með 15. júlí nk. Umsóknum skal skila á netfangið bjarkey@fjallabyggd.is
Æskilegt er að frístundafulltrúi geti hafið störf 1. ágúst 2026.
Umsóknum um starfið skal skilað, ásamt kynningarbréfi og/eða ferilskrá.
Upplýsingar veita Bjarkey Olsen, sviðsstjóri velferðarsviðs, bjarkey@fjallabyggd.is sími: 8474331 og Ásdís Sigurðardóttir, deildarstjóri fræðslu- og frístundamála, asdiss@fjallabyggd.is sími: 898-3310.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Réttur áskilinn til að hætta við ráðningu og/eða auglýsa stöðuna að nýju.
Í Fjallabyggð búa um 2000 íbúar. Nánari upplýsingar um Fjallabyggð er að finna á heimasíðunni