Þjóðlagahátíðin á Siglufirði 1.–5. júlí

Þjóðlagahátíðin á Siglufirði 1.–5. júlí

Nú styttist í eina af rótgrónustu menningarhátíðum landsins þegar Þjóðlagahátíðin á Siglufirði verður haldin í 26. sinn dagana 1.–5. júlí. Hátíðin var fyrst haldin árið 2000 og hefur síðan fest sig í sessi sem einstakur vettvangur fyrir íslensk þjóðlög, heimstónlist og fjölbreytta menningarupplifun.

Á dagskránni eru þrennir til fimm tónleikar á dag, þar sem fram koma fjölbreyttir listamenn, meðal annars Vigdís Hafliðadóttir, Hundur í óskilum, þjóðlagasveitin Umbra, afróhljómsveitin Barakan, ungversk sígaunahljómsveit og Lúðraflokkur lýðveldisins.

Boðið verður upp á fjölbreytt ókeypis námskeið, meðal annars í rímnakveðskap, afródönsum og íslenskum þjóðdönsum. Þá mun finnski lagahöfundurinn Rickard Eklund leiða námskeið í söngvasmíði. Yngstu gestirnir geta einnig tekið þátt í Sögukistunni, skapandi námskeiði fyrir börn á aldrinum 6–10 ára.

Í Þjóðlagaakademíunni á kirkjuloftinu segja listamenn frá tónlist sinni og gestum gefst kostur á að fræðast um íslensk þjóðlög og tónlistararfinn.

Við hvetjum íbúa og gesti til að kynna sér glæsilega dagskrá og njóta þeirrar einstöku stemningar sem Þjóðlagahátíðin skapar.

Listrænn stjórnandi Þjóðlagahátíðarinnar frá upphafi er Gunnsteinn Ólafsson.

Nánari upplýsingar um dagskrá og viðburði má finna á hér