Bæjarráð Fjallabyggðar

464. fundur 06. september 2016 kl. 08:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Steinunn María Sveinsdóttir formaður, S lista
  • Kristinn Kristjánsson varaformaður, F lista
  • S. Guðrún Hauksdóttir aðalmaður, D lista
  • Sólrún Júlíusdóttir áheyrnarfulltrúi, B lista
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála

1.Ytra mat á grunnskólum

Málsnúmer 1505027Vakta málsnúmer

Á fund bæjarráðs mættu deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála Kristinn J. Reimarsson og skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar Jónína Magnúsdóttir og gerðu grein fyrir stöðu umbótaáætlunar sem gerð var í framhaldi af úttekt Menntamálastofnunar á starfsemi grunnskólans í október 2015.

Lagt var fram minnisblað skólastjóra og deildarstjóra fræðslu- frístunda- og menningarmála, dagsett 1. september 2016.

2.Beiðni um styrk vegna viðhalds/viðgerða á troðara og toglyftu

Málsnúmer 1608030Vakta málsnúmer

Á 462. fundi bæjarráðs, 23. ágúst 2016 var tekið fyrir erindi Skíðafélags Ólafsfjarðar þar sem óskað var eftir styrk vegna viðgerða á troðara og lyftu með vísan til 2. greinar samnings Fjallabyggðar og félagsins.

Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins og óskaði eftir umsögn frá deildarstjóra tæknideildar og deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála.

Umsögn lögð fram.

Bæjarráð óskar eftir því að fulltrúar skíðafélagsins komi á næsta fund bæjarráðs.

3.Erindi Golfklúbbs Fjallabyggðar - sláttuvél

Málsnúmer 1609013Vakta málsnúmer

Tekin fyrir beiðni Golfklúbbs Fjallabyggðar, dagsett 1. september 2016, um styrk vegna viðhalds á sláttuvél, með vísan í þjónustusamning við Fjallabyggð.

Bæjarráð samþykkir að veita golfklúbbnum styrk að upphæð 250 þúsund.

4.Málefni eldri borgara á Siglufirði

Málsnúmer 1604069Vakta málsnúmer

Á 442. fundi bæjarráðs, 26. apríl 2016, var tekið fyrir erindi frá Félagi eldri borgara, Siglufirði, dagsett 19. apríl 2016, varðandi aðstöðu undir púttvöll. Bæjarráð óskaði eftir umsögn bæjarstjóra og deildarstjóra tæknideildar um málið.

Umsögn lögð fram.

Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindi félagsins og hvetur félagsmenn til að nýta sér þá aðstöðu sem er í bæjarfélaginu.

5.Málefni félags eldri borgara í Ólafsfirði

Málsnúmer 1605036Vakta málsnúmer

Á 445. fundi bæjarráðs, 18. maí 2016, var tekið fyrir erindi frá Félagi eldri borgara, Ólafsfirði, dagsett 14. maí 2016, varðandi aðstöðu undir púttvöll. Bæjarráð óskaði eftir umsögn bæjarstjóra og deildarstjóra tæknideildar um málið.

Umsögn lögð fram.

Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindi félagsins og hvetur félagsmenn til að nýta sér þá aðstöðu sem er í bæjarfélaginu.

6.Kirkjuvegur 4 Ólafsfirði

Málsnúmer 1404008Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi Ásþórs Guðmundssonar, dagsett 27. ágúst 2016, þar sem óskað er eftir því að fá að eignast og endurbyggja Kirkjuveg 4 Ólafsfirði, með þeim skilyrðum að bæjarfélagið veiti framkvæmdalán að upphæð 7,5 millj. til viðbótar þeirri upphæð sem áætluð var í niðurrif þess.

Bæjarráð hafnar kaupbeiðni frá Ásþóri Guðmundssyni um kaup á húsinu að Kirkjuvegi 4 Ólafsfirði á grundvelli þess að bærinn ætlar sér ekki að veita framkvæmdalán til endurbóta.

Samkvæmt upplýsingum deildarstjóra tæknideildar Ármanns V. Sigurðssonar áætlar verktaki sá sem var fenginn til að rífa húsið að hefja verkið um miðjan september og ljúka því í haust.

Bæjarráð áréttar að staðið sé við þá verkáætlun.

7.Kjarasamningur við Félag grunnskólakennara

Málsnúmer 1606003Vakta málsnúmer

Á 463. fundi bæjarráðs, 30. ágúst 2016 var upplýst um nýjan kjarasamning sem undirritaður var 23. ágúst sl. milli samninganefnda Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara.
Bæjarráð óskaði eftir umsögn deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála um þýðingu kjarasamningsins fyrir Fjallabyggð.

Umsögn lögð fram.

Niðurstaða atkvæðagreiðslu Félags grunnskólakennara, um samninginn liggur nú fyrir og varð niðurstaðan sú að félagsmenn felldu samninginn.

8.Rekstraryfirlit júní 2016

Málsnúmer 1608013Vakta málsnúmer

Á 462. fundi bæjarráðs, 23. ágúst 2016 var lagt fram rekstraryfirlit Fjallabyggðar fyrir janúar til júní 2016.

Bæjarstjóri gerði bæjarráði nánari grein fyrir stöðu einstakra málaflokka og sjóða.

9.Fjallskil 2016

Málsnúmer 1607022Vakta málsnúmer

Lagður fram samningur um fjallskil í Héðinsfirði við Fjallskiladeild Austur- Fljóta, dagsettur 31. ágúst 2016, með fyrirvara um samþykki bæjarráðs Fjallabyggðar.

Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti.

10.Snjómokstur og hálkuvarnir í Fjallabyggð - samningar

Málsnúmer 1308055Vakta málsnúmer

Samningar við verktaka um snjómokstur voru framlengdir árið 2015 um eitt ár eða til 15. maí 2016. Samkvæmt samningum er heimilt að framlengja samningana um eitt ár tvisvar sinnum.

Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti að framlengja samning um snjómokstur um eitt ár við Bás ehf, Árna Helgason ehf, Magnús Þorgeirsson og Smára ehf.

11.Launayfirlit tímabils 2016

Málsnúmer 1602012Vakta málsnúmer

Lagt fram mánaðarlegt launayfirlit fyrir ágúst 2016.

Niðurstaðan fyrir heildina er 746,1 m.kr. sem er 103,2% af áætlun tímabilsins sem var 722,8 m.kr.
Sumar deildir eru yfir áætlun tímabilsins samtals um 47,8 m.kr. á móti öðrum deildum sem eru undir áætlun, samtals um 24,5 m.kr.
Nettóniðurstaða er því 23,3 m.kr. yfir áætlun tímabilsins.
Aðalskýring á stöðu deilda umfram áætlun tengist breytingum í kjölfar síðustu kjarasamninga.

12.Viðauki við fjárhagsáætlun 2016

Málsnúmer 1601102Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að viðauka sjö við fjárhagsáætlun 2016.

Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu að sjöunda viðauka við fjárhagsáætlun 2016 til afgreiðslu bæjarstjórnar.

13.Breyting á launaáætlun vegna kjarasamninga

Málsnúmer 1609017Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar útreikningur á þeim breytingum sem hafa orðið á launum vegna kjarasamninga 2016.

Við áætlanagerð ársins var því spáð að launabreytingar yrðu um 8%, en samkvæmt útreikningum verða þær um 13%. Um er að ræða tæpar 50 m.kr. í aukinn launakostnað bæjarfélagsins.

Bæjarráð samþykkir að vísa frekari umfjöllun um breytingu á launaáætlun til næsta fundar.

14.Rekstur á grunnskólanemanda 2015

Málsnúmer 1609012Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar upplýsingar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga með upplýsingum um rekstrarkostnað á hvern nemanda í grunnskóla eftir stærð skóla rekstrarárið 2015.

15.Alþingiskosningar - 2016

Málsnúmer 1609004Vakta málsnúmer

Í tengslum við næstu Alþingiskosningar er Þjóðskrá Íslands að hefja undirbúning vegna þess og býður sveitarfélögunum að nota svokallað Kjördeildakerfi til þess að tilgreina kjörstaði og raða heimilisföngum niður á kjördeildir. Með því eiga að fást heildstæðar upplýsingar og yfirlit yfir öll heimilisföng í sveitarfélagi, á hvaða kjörstað kjósendur með búsetu á hverju heimilisfangi eiga að kjósa og í hvaða kjördeild.
Umrætt kjördeildakerfi var nýtt af ríflega 30 sveitarfélögum í síðustu forsetakosningum.

Lagt fram til kynningar.

16.Dagur íslenskrar náttúru

Málsnúmer 1608059Vakta málsnúmer

Dagur íslenskrar náttúru verður að venju þann 16. september.

Þema Dags íslenskrar náttúru 2016 eru vættir sem búa í og vaka yfir náttúrunni okkar.

Undanfarin ár hafa sveitarfélög, skólar, stofnanir, fyrirtæki, einstaklingar og félagasamtök fagnað Degi íslenskrar náttúru með fjölbreyttum hætti, efnt til viðburða, vakið athygli á málefnum sem varða íslenska náttúru eða haft náttúruna sem þema við leik og störf á þessum degi.

Sveitarfélög og landshlutasamtök eru hvött til að hafa Dag íslenskrar náttúru í huga í starfi sínu framundan og halda hann hátíðlegan.

Lagt fram til kynningar.

17.Beiðni um styrk vegna íþróttaskóla/fimleika

Málsnúmer 1609016Vakta málsnúmer

Tekin fyrir beiðni Lísebetar Hauksdóttur, dagsett 1. september 2016, um að bæjarfélagið styrki rútuakstur fyrir elstu deild leikskólabarna á Siglufirði þannig að þau geti sótt íþróttaskóla/fimleika í íþróttamiðstöðinni í Ólafsfirði.

Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu, en hvetur umsjónarmann áfangans til að nýta sér þau mannvirki sem eru til staðar á Siglufirði.

18.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2016

Málsnúmer 1601013Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar eftirfarandi fundargerð:

205. fundur skipulags- og umhverfisnefndar frá 1. september 2016.

19.Fundargerðir stjórnar Eyþings - 2016

Málsnúmer 1601005Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð Eyþings frá 284. fundi, 24. ágúst 2016.

Fundi slitið.