Local Food Festival í Hofi 16. mars

Segull 67 og Kaffi Klara á Local Food matarhátíðinni í Hofi þann 16. mars nk. 

Local Food matarhátíðin í ár verður haldin í glæsilegum húsakynnum Hofs þann 16. mars frá kl. 13.00-18.00.

Fjöldinn allur af fyrirtækjum úr héraði verða með kynningar á sínum vörum. Markaðstorg verður á svæðinu, glæsilegt vínsvæði, æsispennandi kokkakeppni og uppboð til styrktar Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis. Iðnaðarsafnið verður svo með fjöldan allan af gömlum varningi úr matvælaiðnaðinum til sýnis.

Eimur stendur fyrir viðburði frá klukkan 13.00-16.00 þar sem fjallað verður um vaxandi þörf fyrir framleiðslu matvæla og möguleikana til nýtingar jarðhita við framleiðsluna og við frekari vinnslu matvæla.

Kynnir dagsins verður enginn annar en Villi Vandræðaskáld
Hlökkum til að sjá ykkur í Hofi þann 16. mars - Enginn aðgangseyrir

Fyrirtæki sem verða á staðnum:
Kristjánsbakarí
Norðlenska
Nýja kaffibrennslan
Eimur
Norðurorka
K6 : Bautinn, Rub23, Sushi Corner og Pizzasmiðjan
Matsmiðjan og Kaffi Torg
Darri ehf. Eyjarbiti
Greifinn
Norðurslóð
Matarkistan á Skagafirði
(Stórhóll
Sölvanes
Kokkhús
KK Restaurant
Hótel Varmahlíð
Laugarmýri
Birkihlíð)
Mjólkursamsalan
Kaffi Klara Ólafsfirði
Þingeyska matarbúrið
(Fjallalamb)
Brynja
R5
Ölgerðin
Vífilfell
Segull67

Á markaðstorginu verða:
Huldubúð
Milli fjöru og fjalla
R Rabbabari

*Birt með fyrirvara um breytingar