Bæjarstjórn Fjallabyggðar

194. fundur 01. desember 2020 kl. 17:00 - 18:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Guðlaug Jónsdóttir Forseti bæjarstjórnar I-lista
  • Helga Helgadóttir 1.varaforseti bæjarstjórnar, D-lista
  • S. Guðrún Hauksdóttir bæjarfulltrúi, D lista
  • Jón Valgeir Baldursson bæjarfulltrúi, H lista
  • Tómas Atli Einarsson bæjarfulltrúi, D lista
  • Nanna Árnadóttir bæjarfulltrúi, I lista
  • Særún Hlín Laufeyjardóttir bæjarfulltrúi, H lista
Starfsmenn
  • Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála
  • Elías Pétursson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála

1.Bæjarráð Fjallabyggðar - 675. fundur - 17. nóvember 2020.

Málsnúmer 2011005FVakta málsnúmer

  • Bæjarráð Fjallabyggðar - 675. fundur - 17. nóvember 2020. Lögð fram uppfærð staða launaáætlunar ásamt minnisblöðum frá deildarstjórum, dags. 16.11.2020. Bókun fundar Afgreiðsla 675. fundar bæjarráðs staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • Bæjarráð Fjallabyggðar - 675. fundur - 17. nóvember 2020. Erindum vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2021.

    Tekið til afgreiðslu óafgreidd erindi sem bæjarráð hafði vísað til umfjöllunar við gerð fjárhagsáætlunar 2021.

    1.
    2010142 - Síldarminjasafn Íslands - Sýning á Salthúslofti. Bæjarráð vísaði erindi vegna beiðni um styrk vegna sýningar um veturinn í síldarbænum 2 millj.kr. vegna hönnunar og uppsetningar til gerðar fjárhagsáætlunar á fundi bæjarráðs þann 3. nóvember sl.

    Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.

    2.
    2010100 - Beiðni um endurnýjun á samningi Skógræktarfélags Siglufjarðar. Bæjarráð vísaði erindi vegna beiðni Skógræktarfélags Siglufjarðar um endurnýjun og hækkun á rekstrarsamningi til gerðar fjárhagsáætlunar á fundi bæjarráðs þann 12. nóvember sl.

    Bæjarráð samþykkir að endurnýja samninginn til eins árs. Upphæð samnings verður óbreytt frá þessu ári kr. 400.000.

    3.
    2010093 - Umsókn um framkvæmdastyrk - v. kjallara Pálshúss. Bæjarráð vísaði erindi vegna beiðni um framkvæmdastyrk vegna 4. áfanga við Pálshús „Kjallarinn“ þar sem gera á „Ævintýraheim barnanna“ 3 millj.kr. til gerðar fjárhagsáætlunar á fundi bæjarráðs þann 3. nóvember sl.

    Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.

    4.
    2010070 - Samkomulag um þjónustukaup jól og áramót 2020-2023. Bæjarráð vísaði vinnuskjali markaðs- og menningarfulltrúa vegna beiðni um hækkunar á samningi vegna jóla og áramóta - þjónustukaup vegna styrkja, til Björgunarsveitarinnar Tinds í Ólafsfirði, Björgunarsveitarinnar Stráka á Siglufirði og Kiwanisklúbbsins Skjaldar á Siglufirði vegna flugeldasýninga og brenna á gamlárskvöld og á þrettándanum verði hækkaður úr kr. 250.000 í kr. 300.000, til gerðar fjárhagsáætlunar á fundi bæjarráðs þann 12. nóvember sl.

    Bæjarráð samþykkir að endurnýja samninga til næstu þriggja ára. Upphæð samnings verður kr. 300.000.

    5. 2010040 - Síldarminjasafn Íslands - Beiðni um endurnýjun rekstrarsamnings. Bæjarráð vísaði erindi vegna beiðni um hækkun á rekstrarsamningi til gerðar fjárhagsáætlunar á fundi bæjarráðs þann 12. nóvember sl.

    Bæjarráð samþykkir endurnýjun á rekstrarsamningi vegna ársins 2021. Upphæð rekstrarstyrks verður óbreytt frá fyrra ári. 5,5 millj.kr.

    6. 2009031 - Styrkumsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2021.
    Bæjarráð vísaði erindi vegna styrkumsóknar í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2021 vegna áætlaðs kostnaðarhluta sveitarfélagsins vegna endurbyggingar Selvíkurvita á Siglufirði og aðstöðuhúss við Brimnes í Ólafsfirði ef styrkur fæst til gerðar fjárhagsáætlunar á fundi bæjarráðs þann 6. október sl.

    Bæjarráð samþykkir að ekki verði gert ráð fyrir kostnaði vegna framkvæmda á árinu 2021. Fáist styrkur mun bæjarráð taka málið til skoðunar.


    7. 2009004 - Aflið, samtök gegn kynferðis- ofbeldi.
    Bæjarráð vísaði erindi vegna beiðni um rekstrarstyrk til gerðar fjárhagsáætlunar á fundi bæjarráðs þann 8. september sl.

    Bæjarráð samþykkir styrk að upphæð 50.000 kr.


    8. 2008042 - Bryggja í Hornbrekkubót. Skipulags- og umhverfisnefnd tók fyrir erindi frá Helga Jóhannssyni að gerð verði bryggja úr gömlum rafmagnsstaurum í Hornbrekkubót og að framkvæmdin fari á fjárhagsáætlun 2021. Bæjarstjórn lagði til að skoðaðar verði fleiri útfærslur af bryggju til dæmis flotbryggja, á fundi sínum þann 9. september sl.

    Bæjarráð samþykkir að fresta framkvæmdinni til umræðu um gerð fjárhagsáætlunar ársins 2022.


    9. 2006005 - Frisbígolf á Siglufjörð og Ólafsfjörð. Bæjarráð vísaði erindi vegna uppsetningar á Frisbívöllum á Siglufirði og í Ólafsfirði til gerðar fjárhagsáætlunar á fundi sínum 23. Júní sl.. Áætlaður kostnaður við uppsetningu slíks vallar er kr. 2 millj. en getur verið breytilegur eftir því hvort um heilsársbrautir er að ræða og ef sveitarfélagið getur sjálft framkvæmt uppsetningu.

    Bæjarráð samþykkir að fresta framkvæmdinni til umræðu um fjárhagsáætlun ársins 2022 en felur deildarstjóra tæknideildar að setja niður tvær „körfur“ eina í Ólafsfirði og eina á Siglufirði.

    10. 1907030 - Vegna uppbyggingar hundasvæða. Bæjarráð vísaði erindi vegna undirskriftalista vegna uppbyggingar hundasvæða til gerðar fjárhagsáætlunar á fundi sínum þann 21. janúar sl.

    Bæjarráð samþykkir að fresta erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022.

    11. 1912017 - Fyrirspurn um hleðslustöðvar. Bæjarráð vísaði erindi vegna fyrirspurnar íbúa á Skálarhlíð um uppsetningu hleðslustöðvar til að hlaða rafknúin ökutæki til gerðar fjárhagsáætlunar 2021 á fundi bæjarráðs 7. janúar sl. með tilliti til uppsetningar fyrir fjölbýlishús í útleigu hjá Fjallabyggð.

    Bæjarráð samþykkir að ekki verði gert ráð fyrir fjármagni vegna hleðslustöðvar en fáist styrkur í verkefnið mun bæjarráð taka málið til skoðunar.

    12. 2002052 - Ársskýrsluvefur. Bæjarráð vísaði erindi Stefnu ehf. varðandi ársskýrsluvef til gerðar fjárhagsáætlunar 2021 á fundi sínum þann 25. febrúar sl.

    Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.
    Bókun fundar Tómas Atli Einarsson víkur undir lið 4. - 2010070 - Samkomulag um þjónustukaup jól og áramót 2020-2023. Bæjarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum.


    Afgreiðsla 675. fundar bæjarráðs staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • 1.3 2009064 Gjaldskrár 2021
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 675. fundur - 17. nóvember 2020. Teknar til umfjöllunar gjaldskrár 2021.

    Bæjarráð samþykkir að leggja eftirfarandi tillögu fyrir bæjarstjórn:

    Áfram verði gjaldfrjálst fyrir öryrkja og eldri borgara 67 ára og eldri, íbúa Fjallabyggðar í sund og líkamsrækt.

    Gjald fyrir skólamáltíðir í Grunnskóla Fjallabyggðar helst óbreytt í krónum talið á milli ára, líkt og fyrri ár.

    Gjald fyrir skólamáltíðir í Leikskóla Fjallabyggðar helst óbreytt í krónum talið á milli ára, líkt og fyrri ár.

    Frístundaávísanir til barna á aldrinum 4-18 ára verða hækkaðar úr 35.000 í 37.500.

    Aðrar gjaldskrár og þjónustugjöld 1. janúar 2021 taki mið af breytingum miðað við vísitöluhækkun, hækkun verði þó ekki meiri en 2,8%.

    Bæjarráð samþykkir að vísa gjaldskrá 2021 til umsagnar í nefndum.
    Bókun fundar Afgreiðsla 675. fundar bæjarráðs staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • Bæjarráð Fjallabyggðar - 675. fundur - 17. nóvember 2020. Lögð fram drög að endurskoðaðri Menningarstefnu Fjallabyggðar.

    Einnig lögð fram bókun 69. fundar markaðs- og menningarnefndar þar sem nefndin vísar endurskoðaðri Menningarstefnu Fjallabyggðar til umfjöllunar og samþykktar í bæjarráði.

    Bæjarráð samþykkir drögin og vísar þeim til staðfestingar í bæjarstjórn.
    Bókun fundar Afgreiðsla 675. fundar bæjarráðs staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • Bæjarráð Fjallabyggðar - 675. fundur - 17. nóvember 2020. Lagður fram gildandi samstarfssamningur við Golfklúbb Fjallabyggðar um rekstur golfvallarins Skeggjabrekku sem rennur út um áramót.

    Einnig lagt fram vinnuskjal deildarstjóra fræðslu,- frístunda- og menningarmála dags. 06.11.2020 ásamt yfirliti yfir rekstarliði.

    Bæjarráð samþykkir að fresta erindinu. Umræða um samstarfssamninga vegna reksturs íþróttamannvirkja Fjallabyggðar verður tekin síðar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 675. fundar bæjarráðs staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • Bæjarráð Fjallabyggðar - 675. fundur - 17. nóvember 2020. Lagður fram gildandi samstarfssamningur við Skíðafélag Ólafsfjarðar vegna rekstur Skíðasvæðisins í Tindaöxl sem rennur út um áramótin.
    Einnig lagt fram vinnuskjal deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála dags. 10.11.2020 ásamt yfirliti yfir rekstarliði.

    Bæjarráð samþykkir að fresta erindinu. Umræða um samstarfssamninga vegna reksturs íþróttamannvirkja Fjallabyggðar verður tekin síðar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 675. fundar bæjarráðs staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • Bæjarráð Fjallabyggðar - 675. fundur - 17. nóvember 2020. Lagt fram vinnuskjal bæjarstjóra, dags. 12.11.2020 varðandi ástand flugvallarins á Siglufirði og fjölda lendinga á árinu í framhaldi af bókun 673. fundar bæjarráðs við erindi Kristínar Sigurjónsdóttur fh. Trölla.is

    Bæjarráð samþykkir vinnuskjalið og felur bæjarstjóra að senda svarið áfram.
    Bókun fundar Afgreiðsla 675. fundar bæjarráðs staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • Bæjarráð Fjallabyggðar - 675. fundur - 17. nóvember 2020. Lagt fram erindi og tillögur og/eða ábendingar er varða fjárhagsáætlun fyrir árið 2021.

    1. 2010127 - Lagt fram erindi Þorvaldar Hreinssonar fh. stjórnar Hestamannafélagsins Gnýfara er varðar ósk um að þegar mokað er frá Brimvöllum að reiðskemmu verði afleggjarinn upp í efnisnámu og gamli afleggjarinn að Kleifarvegi mokaðir. Einnig er óskað eftir því að sveitarfélagið moki reiðveg frá Brimvöllum yfir gangnamunnann fram að Garðsá í einhver skipti þegar fer að vora til þess að draga úr slysahættu sem fylgir því að ríða malbikaðan veg fram að Garði.

    Bæjarráð þakkar erindið og samþykkir að óska eftir umsögn deildarstjóra tæknideildar fyrir næsta fund.

    2. 2010129 - Lagt fram erindi Þorvaldar Hreinssonar fh. eiganda að Hornbrekkuvegi 14 er varðar ósk um að grasigróið svæði milli Hornbrekkuvegar og Túngötu verði malbikað og nýtt sem göngustígur svo að fótgangandi þurfi ekki að ganga á brún brekkunnar.

    Bæjarráð þakkar erindið en sér sér ekki fært að verða við ábendingu að þessu sinni.

    3. 2010128 - Lagt fram erindi Þorvaldar Hreinssonar er varðar lagfæringu á göngustíg sem liggur frá bílastæði sunnan Hornbrekku að Sögustíg sem liggur að snjóflóðavarnargarðinum. Einnig að göngustígurinn yrði í framtíðinni malbikaður svo að vistmenn geti vel nýtt sér göngustíginn.

    Bæjarráð þakkar erindið og vísar erindinu til tæknideildar til umsagnar.

    4. 2009077 - Lagt fram erindi Auðunns Guðnasonar er varðar uppsetningu aðgengilegra grenndargáma fyrir flokkað sorp í Ólafsfirði, aukin stuðning við gönguskíðasportið í Ólafsfirði s.s. með aukinni raflýsingu brauta og brautargerð og stuðningi við Fjarðargönguna. Aukinn opnunartími sundlauga um helgar. Trygga afhendingu rafmagns til Fjallabyggðar í vondum veðrum. Stuðning við fjallahjólreiðar t.d. með samnýtingu á gönguskíðabrautum, malbera slóðir. Bundið slitlag að Þverá til bættrar aðstöðu fyrir götuhjólreiðar.

    Bæjarráð þakkar erindið en sér sér ekki fært að verða við ábendingum að þessu sinni. Bæjarráð hefur þegar komið skýrum kröfum til stjórnvalda og tilheyrandi stofnanna um að afhendingaröryggi rafmagns til Fjallabyggðar sé tryggt allan ársins hring. Bæjarráð vill benda á að vegurinn að Þverá er á ábyrgð Vegagerðarinnar.

    5. 2010064 - Lagt fram erindi Kristjáns Haukssonar er varðar ábendingar um framkvæmdir í Ólafsfirði er snúa að því að ljúka við framkvæmdir á tjaldsvæði, lagfæringu gangstétta, malbikun hafnarsvæðis, malbikun bílastæðis við hús Ungmenna- og íþróttasambands Fjallabyggðar (ÚÍF), Frisbee golf auk hugleiðinga um rafræna íbúakosningu um framkvæmdir sem bæjarfulltrúar setja fram.

    Bæjarráð þakkar erindið og bendir á að vinna við framkvæmdaráætlun ársins stendur yfir og koma þessar framkvæmdir til umræðu við gerð hennar. Bæjarráð tekur undir það að íbúakosning um smærri framkvæmdir getur verið góður kostur í framtíðinni.
    Bókun fundar Afgreiðsla 675. fundar bæjarráðs staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • Bæjarráð Fjallabyggðar - 675. fundur - 17. nóvember 2020. Farið yfir umsóknir um styrk á móti fasteignaskatti félagasamtaka 2021. Niðurstaðan er innan áætlaðra framlaga á fjárhagsáætlun 2021.

    Bæjarráð samþykkir að taka málið upp eftir að búið verður að leggja á fasteignagjöld með formlegum hætti í janúar 2021.
    Bókun fundar Afgreiðsla 675. fundar bæjarráðs staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • Bæjarráð Fjallabyggðar - 675. fundur - 17. nóvember 2020. Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins þar sem ekki liggur fyrir úthlutun frá ráðuneytinu vegna byggðakvóta fiskveiðiársins 2020/2021. Bókun fundar Afgreiðsla 675. fundar bæjarráðs staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • Bæjarráð Fjallabyggðar - 675. fundur - 17. nóvember 2020. Lagt fram erindi Þorsteins Sigursveinssonar fh. stjórnar Knattspyrnufélags Fjallabyggðar, dags. 26.10.2020 þar sem stjórn óskar eftir upplýsingum um hvenær hafist verður handa á byggingu gervigrasvallar.

    Bæjarráð þakkar erindið og vill koma því á framfæri að vinna við fjárhagsáætlun og framkvæmdaráætlun ársins 2021 stendur enn yfir. Ákvörðun um byggingu gervigrasvallar liggur ekki fyrir að svo stöddu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 675. fundar bæjarráðs staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • Bæjarráð Fjallabyggðar - 675. fundur - 17. nóvember 2020. Lagt fram erindi Önnu Maríu Guðlaugsdóttur fh. Garðyrkjufélags Tröllaskaga norðurs, dags. 10.11.2020 þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið leggi stíg frá plani Menntaskólans á Tröllaskaga inn að áningarstað leikskólabarna í Aldingarðinum. Einnig er óskað eftir styrk kr. 250.000 til framkvæmda á svæðinu.

    Bæjarráð þakkar erindið en sér sér ekki fært að verða við styrkbeiðni að þessu sinni þar sem frestur til að skila inn umsóknum um styrki fyrir árið 2021 rann út 28.10.2020.
    Bókun fundar Afgreiðsla 675. fundar bæjarráðs staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • Bæjarráð Fjallabyggðar - 675. fundur - 17. nóvember 2020. Lagt fram til kynningar erindi heilbrigðisráðherra, dags 11.11.2020 þar sem fram kemur að heilbrigðisþing um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu verður haldið 27. nóvember nk. og hefst kl. 8:30 og stendur til 12:30.
    Þinginu verður streymt á vef þingsins http://www.heilbrigdisthing.is/
    Bókun fundar Afgreiðsla 675. fundar bæjarráðs staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • Bæjarráð Fjallabyggðar - 675. fundur - 17. nóvember 2020. Lagt fram til kynningar erindi Efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, dags 11.11.2020 er varðar umsögn um tillögu til þingsályktunar um aðgerðir í þágu sveitarfélaga vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, 43. mál. Bókun fundar Afgreiðsla 675. fundar bæjarráðs staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • Bæjarráð Fjallabyggðar - 675. fundur - 17. nóvember 2020. Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Leyningsáss ses. frá 19. apríl sl, 22 apríl sl. og 4. nóvember sl. Bókun fundar Afgreiðsla 675. fundar bæjarráðs staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • Bæjarráð Fjallabyggðar - 675. fundur - 17. nóvember 2020. Lögð fram til kynningar 7. stöðuskýrsla ráðgefandi aðila félagsmálaráðuneytisins, teymis um uppbyggingu félags- og atvinnumála í kjölfar Covid-19 frá 6. nóvember sl. Bókun fundar Afgreiðsla 675. fundar bæjarráðs staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • Bæjarráð Fjallabyggðar - 675. fundur - 17. nóvember 2020. Lögð fram til kynningar fundargerð 17. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) frá 11. nóvember sl. Bókun fundar Afgreiðsla 675. fundar bæjarráðs staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • Bæjarráð Fjallabyggðar - 675. fundur - 17. nóvember 2020. Lögð fram til kynningar fundargerð 69. fundar Markaðs- og menningarnefndar Fjallabyggðar frá 11. nóvember sl. Bókun fundar Afgreiðsla 675. fundar bæjarráðs staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum

2.Bæjarráð Fjallabyggðar - 676. fundur - 27. nóvember 2020

Málsnúmer 2011013FVakta málsnúmer

  • Bæjarráð Fjallabyggðar - 676. fundur - 27. nóvember 2020 Lögð fram tillaga að fjárhagsáætlun 2021 og 2022-2024 ásamt tillögu að framkvæmdum fyrir árið 2021.

    Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu að fjárhagsáætlun 2021 og 2022-2024 ásamt tillögu að framkvæmdum ársins 2021 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
    Bókun fundar Afgreiðsla 676. fundar bæjarráðs staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • 2.2 2009064 Gjaldskrár 2021
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 676. fundur - 27. nóvember 2020 Lögð fram tillaga að gjaldskrám og álagningu fyrir árið 2021.

    Gjaldaliðir vegna fasteignagjalda verða eftirfarandi: Fasteignaskattsprósenta verður óbreytt (A 0,49%, B 1,32% og C 1,65%). Lóðarleiguprósenta verður óbreytt (A 1,90% og C 3,50%). Sorphirðugjöld hækka um 2,5% í 46.230 úr 45.100 kr.. Holræsa-/fráveitugjaldaprósenta verður óbreytt 0,29%. Vatnsskattsprósenta fasteigna verður óbreytt 0,29%.

    Afsláttur af fasteignaskatti hjá tekjulágum elli- og örorkulífeyrisþegum verður óbreyttur á milli ára, að hámarki kr. 70.000.
    Tekjumörk verða sem hér segir:

    Fl.
    Einstaklingar


    Afsláttur
    1.
    -
    -
    3,300,000 100%
    2.
    3,300,001
    -
    3,900,000
    75%
    3.
    3,900,001
    -
    4,525,000
    50%
    4.
    4,525,001
    -
    5,150,000
    25%
    5.
    5,150,001
    -
    -
    0%









    FL.
    Hjón/Sambýlisfólk

    Afsláttur
    1.
    - -
    5,000,000
    100%
    2.
    5,000,001
    -
    5,800,000
    75%
    3.
    5,800,001
    -
    6,400,000
    50%
    4.
    6,400,001
    -
    7,000,000
    25%
    5.
    7,000,001
    -
    -
    0%

    Gjaldskrá Tónlistarskólans á Tröllaskaga hækkar um 2,7%
    Áfram verði gjaldfrjálst fyrir öryrkja og eldri borgara 67 ára og eldri, íbúa Fjallabyggðar í sund og líkamsrækt.
    Gjald fyrir skólamáltíðir í Grunnskóla Fjallabyggðar helst óbreytt í krónum talið á milli ára, líkt og fyrri ár.
    Gjald fyrir skólamáltíðir í Leikskóla Fjallabyggðar helst óbreytt í krónum talið á milli ára, líkt og fyrri ár.

    Frístundastyrkur fyrir börn á 4 - 18 ára aldri hækkar í kr. 37.500 úr 35.000.

    Aðrar gjaldskrár og þjónustugjöld 1. janúar 2021 hækka um 2,8%.
    Bókun fundar Afgreiðsla 676. fundar bæjarráðs staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • Bæjarráð Fjallabyggðar - 676. fundur - 27. nóvember 2020 1. 2010127 - Á 675. fundi bæjarráðs óskaði ráðið eftir umsögn deildarstjóra tæknideildar varðandi erindi stjórnar Hestmannafélagsins Gnýfara þar sem óskað var eftir mokstri við hesthúsasvæðið í Ólafsfirði og á reiðstíg.
    Lagt fram vinnuskjal deildarstjóra tæknideildar dags. 18.11.2020.

    Bæjarráð þakkar ábendinguna en sér sér ekki fært að verða við erindinu.


    3. 2010128 - Á 675. fundi bæjarráðs óskaði ráðið eftir umsögn deildarstjóra tæknideildar varðandi erindi Þorvalds Hreinssonar um lagfæringu á göngustíg sunnan við Hornbrekku.
    Lagt fram vinnuskjal deildarstjóra tæknideildar, dags. 18.11.2020.

    Bæjarráð samþykkir að beina því til tæknideildar að lagfæra stíginn ef því verður við komið næsta sumar. Stígurinn verður ekki malbikaður að svo stöddu.
    Bæjarráð þakkar fyrir ábendinguna.
    Bókun fundar Afgreiðsla 676. fundar bæjarráðs staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • Bæjarráð Fjallabyggðar - 676. fundur - 27. nóvember 2020 Lagt fram vinnuskjal markaðs- og menningarfulltrúa Fjallabyggðar, dags. 16.11.2020 varðandi uppfærðan kostnað við uppfærslu á vef sveitarfélagsins, Vöktun málefna, sem samþykkt var að kaupa á fjárhagsárinu 2020.
    Viðbótarkostnaður vegna uppfærslu er kr. 190.000 auk þess sem hækkun verður á þjónustugjaldi um 6.450 kr. án vsk. á mánuði.

    Bæjarráð samþykkir uppfærsluna sem rúmast innan gildandi fjárhagsáætlunar 2020.
    Bókun fundar Afgreiðsla 676. fundar bæjarráðs staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • 2.5 2011021 Styrkumsókn
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 676. fundur - 27. nóvember 2020 Lagt fram erindi Stígamóta, dags. 09.11.2020 er varðar styrkumsókn vegna starfsemi Stígamóta.

    Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 676. fundar bæjarráðs staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • Bæjarráð Fjallabyggðar - 676. fundur - 27. nóvember 2020 Lagt fram til kynningar erindi heildarsamtaka og stéttarfélaga starfsmanna sveitarfélaga, dags. 18.11.2020 til sveitastjórnarfólks um allt land. Þar er fjallað um styttingu vinnuvikunnar og mikilvægi þess að rétt sé staðið að því innleiðingarferli sem nú er í gangi, eða er að fara í gang, á vinnustöðum sveitarfélaganna. Bókun fundar Afgreiðsla 676. fundar bæjarráðs staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • Bæjarráð Fjallabyggðar - 676. fundur - 27. nóvember 2020 Lögð fram til kynningar ársskýrsla Jöfnunarsjóðs Sveitarfélaga 2019. Bókun fundar Afgreiðsla 676. fundar bæjarráðs staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • Bæjarráð Fjallabyggðar - 676. fundur - 27. nóvember 2020 Lagt fram til kynningar erindi Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, dags. 18.11.2020 er varðar umsögn um frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum, nr. 123/2010 (uppbygging innviða og íbúðarhúsnæðis), 275. mál.

    Lagt fram til kynningar erindi Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, dags. 17.11.2020 er varðar umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013 (málsmeðferð o.fl.), 276. mál.

    Lagt fram til kynningar erindi Velferðarnefndar Alþingis, dags. 18.11.2020 er varðar umsögn um tillögu til þingsályktunar um búsetuöryggi í dvalar- og hjúkrunarrýmum, 240. mál.

    Lagt fram til kynningar erindi Atvinnuveganefndar Alþingis, dags. 18.11.2020 er varðar umsögn um frumvarp til laga um fiskeldi (vannýttur lífmassi í fiskeldi), 265. mál.

    Lagt fram til kynningar erindi Allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis, dags. 17.11.2020 er varðar umsögn um tillögu til þingsályktunar um mótun heildstæðrar stefnu um afreksfólk í íþróttum, 81. mál.

    Lagt fram til kynningar erindi Velferðarnefndar Alþingis, dags. 18.11.2020 er varðar umsögn um tillögu til þingsályktunar um orlofshúsnæði örorkulífeyrisþega, 187. mál.

    Lagt fram til kynningar erindi Alþingis- og menntamálanefndar Alþingis, dags. 19.11.2020 er varðar umsögn um tillögu til þingsályktunar um menntastefnu 2020-2030, 278. mál.

    Lagt fram til kynningar erindi Allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis, dags. 19.11.2020 er varðar umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um skráningu einstaklinga, nr. 140/2019 (sveitarfélag fyrsta lögheimilis), 82. mál.

    Lagt fram til kynningar erindi nefndarsviðs Alþingis, dags. 20.11.2020 þar sem fram kemur að ákveðið hefur verið að framlengja umsagnarfrest í 39. máli (tillaga til þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð Reykjavíkurflugvallar) til 29. nóvember.
    Bókun fundar Afgreiðsla 676. fundar bæjarráðs staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • Bæjarráð Fjallabyggðar - 676. fundur - 27. nóvember 2020 Lögð fram til kynningar fundargerð 891. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 20. nóvember sl. Bókun fundar Afgreiðsla 676. fundar bæjarráðs staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • Bæjarráð Fjallabyggðar - 676. fundur - 27. nóvember 2020 Lagðar fram til kynningar fundargerðir:
    70. fundar Markaðs- og menningarnefndar Fjallabyggðar frá 18. nóvember sl.
    126. fundur Félagsmálanefndar Fjallabyggðar frá 19. nóvember sl.
    22. fundur Stjórnar Hornbrekku frá 19. nóvember sl.
    117. fundur Hafnarstjórnar Fjallabyggðar frá 20. nóvember sl.
    92. fundur Fræðslu- og frístundanefndar Fjallabyggðar frá 23. nóvember sl.
    Bókun fundar Afgreiðsla 676. fundar bæjarráðs staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum

3.Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 70. fundur - 18. nóvember 2020

Málsnúmer 2011007FVakta málsnúmer

  • Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 70. fundur - 18. nóvember 2020 Drög að fjárhagsáætlun 2021 fyrir þá málaflokka sem heyra undir markaðs- og menningarnefnd lögð fram til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 70. fundar markaðs- og menningarnefndar staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • 3.2 2009064 Gjaldskrár 2021
    Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 70. fundur - 18. nóvember 2020 Drög að gjaldskrám Tjaldsvæða Fjallabyggðar, Bóka- og Héraðsskjalasafns Fjallabyggðar og Tjarnarborgar lögð fram til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 70. fundar markaðs- og menningarnefndar staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum

4.Félagsmálanefnd Fjallabyggðar - 126. fundur - 19. nóvember 2020

Málsnúmer 2011009FVakta málsnúmer

  • Félagsmálanefnd Fjallabyggðar - 126. fundur - 19. nóvember 2020 Lögð fram drög að fjárhagsáætlun 2021, fyrir málaflokka félagsþjónustu. Gert ráð fyrir að gjaldskrár og þjónustugjöld félagsþjónustunnar taki mið af breytingum miðað við vísitöluhækkun, hækkun verði þó ekki meiri en 2,8%. Bókun fundar Afgreiðsla 126. fundar félagsmálanefndar staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum

5.Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 261. fundur - 19. nóvember 2020

Málsnúmer 2011010FVakta málsnúmer

  • Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 261. fundur - 19. nóvember 2020 Farið yfir tillögu að fjárhagsáætlun 2021. Bókun fundar Afgreiðsla 261. fundar skipulags- og umhverfisnefndar staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • 5.2 2009064 Gjaldskrár 2021
    Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 261. fundur - 19. nóvember 2020 Farið yfir tillögur að gjaldskrám 2021.
    Bókun fundar Afgreiðsla 261. fundar skipulags- og umhverfisnefndar staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 261. fundur - 19. nóvember 2020 Erindi samþykkt. Bókun fundar Afgreiðsla 261. fundar skipulags- og umhverfisnefndar staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 261. fundur - 19. nóvember 2020 Lagt fram til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 261. fundar skipulags- og umhverfisnefndar staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum

6.Stjórn Hornbrekku - 22. fundur - 19. nóvember 2020

Málsnúmer 2011008FVakta málsnúmer

  • Stjórn Hornbrekku - 22. fundur - 19. nóvember 2020 Deildarstjóri fjölskyldudeildar, hjúkrunarforstjóri og forstöðumaður Hornbrekku fara yfir tillögu að fjárhagsáætlun Hornbrekku fyrir árið 2021. Stjórn Hornbrekku samþykkir að vísa tillögu að fjárhagsáætlun til bæjarráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 22. fundar Stjórnar Hornbrekku staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • Stjórn Hornbrekku - 22. fundur - 19. nóvember 2020 Í sumar var verið að draga ljósleiðara á efri hæð Hornbrekku, dregið var inn á hvert herbergi og þá höfðu þeir íbúar sem það vildu kost á því að fá sér tölvubeini (IP-router). Einnig voru settir upp netdreifarar (punktar) á heimilið.
    Unnið hefur verið að uppsetningu nýs bjöllukerfis en COVID hefur sett strik í reikninginn varðandi það.
    Annars hefur allt gengið ágætlega þrátt fyrir COVID. Það er farið að bera á þreytu hjá starfsfólki, það er auka álag vegna heimsóknartakmarkana, en við höldum þetta út.
    Unnið er að skipulagi um styttingu vinnuviku og komin niðurstaða fyrir dagvinnufólk, það tekur gildi 1. janúar. Farið verður að vinna að skipulagi um styttingu vinnuviku hjá vaktarvinnufólki í næstu viku, það mun taka gildi 1. maí 2021.

    Biðlistinn lengist eftir plássi í hvíld og listinn eftir varanlegu plássi á Hornbrekku er töluvert langur.
    Bókun fundar Til máls tóku Jón Valgeir Baldursson og Nanna Árnadóttir.

    Afgreiðsla 22. fundar Stjórnar Hornbrekku staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum

7.Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 117. fundur - 20. nóvember 2020

Málsnúmer 2011012FVakta málsnúmer

  • Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 117. fundur - 20. nóvember 2020 Hafnarstjóri fór yfir tillögu að fjárhagsáætlun 2021 fyrir fjallabyggðarhafnir.
    Hafnarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti framlagða tillögu að fjárhagsáætlun 2021 fyrir fjallabyggðarhafnir.
    Bókun fundar Afgreiðsla 117. fundar hafnarstjórnar staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • 7.2 2009064 Gjaldskrár 2021
    Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 117. fundur - 20. nóvember 2020 Lögð fram drög að gjaldskrá 2021 fyrir fjallabyggðarhafnir.
    Hafnarstjórn samþykkir drögin fyrir sitt leiti.
    Bókun fundar Afgreiðsla 117. fundar hafnarstjórnar staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • 7.3 2004048 Aflatölur 2020
    Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 117. fundur - 20. nóvember 2020 Hafnarstjóri lagði fram og kynnti aflatölur til og með 20. nóvember með samanburði við fyrra ár. Á Siglufirði hefur verið landað 20.338 tonnum í 1.860 löndunun en á sama tíma í fyrra hafði verið landað 26.676 tonnum í 1.809 löndunum. Á Ólafsfirði hefur verið landað 511 tonnum í 293 löndunum, á sama tímabili í fyrra var landað 376 tonnum í 356 löndunum. Bókun fundar Afgreiðsla 117. fundar hafnarstjórnar staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 117. fundur - 20. nóvember 2020 Hafnarstjóra og yfirhafnarverði falið að fara yfir fyrirkomulag sorphirðu á hafnarsvæðum og koma með tillögu að verklagi með aukinni flokkun á sorpi. Bókun fundar Afgreiðsla 117. fundar hafnarstjórnar staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 117. fundur - 20. nóvember 2020 Lögð fram til kynningar drög að frumvarpi til breytingar á hafnarlögum nr. 61/2003.
    Bókun fundar Afgreiðsla 117. fundar hafnarstjórnar staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 117. fundur - 20. nóvember 2020 Boðað er til rafræns hafnasambandsþings 27. nóvember 2020.
    Hafnarstjóri, formaður hafnarstjórnar og yfirhafnarvörður munu sækja þingið fyrir hönd hafnarstjórnar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 117. fundar hafnarstjórnar staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 117. fundur - 20. nóvember 2020 Bókun fundar Afgreiðsla 117. fundar hafnarstjórnar staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 117. fundur - 20. nóvember 2020 Lagt fram til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 117. fundar hafnarstjórnar staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum

8.Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 92. fundur - 23. nóvember 2020

Málsnúmer 2011011FVakta málsnúmer

  • Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 92. fundur - 23. nóvember 2020 Undir þessum lið sátu Haukur Sigurðsson forstöðumaður íþróttamannvirkja, Erla Gunnlaugsdóttir skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar, Halldóra María Elíasdóttir fulltrúi kennara grunnskólans, Olga Gísladóttir skólastjóri Leikskóla Fjallabyggðar og Fanney Jónsdóttir fulltrúi starfsmanna leikskólans. Fulltrúar stofnana sátu undir þeim hluta þessa dagskrárliðs sem tilheyrði þeirra stofnun og fóru yfir helstu atriði.

    Við gerð fjárhagsáætunar 2021 unnu minni og meirihluti fræðslu- og frístundanefndar saman og þakkar formaður nefndarmönnum fyrir góða samvinnu.

    Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir drög að fjárhagsáætlun 2021 fyrir sitt leyti og vísar til afgreiðslu bæjarstjórnar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 23. fundar fræðslu- og frístundanefndar staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
  • 8.2 2009064 Gjaldskrár 2021
    Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 92. fundur - 23. nóvember 2020 Drög að gjaldskrám íþróttamiðstöðvar, grunnskóla og leikskóla lögð fram til kynningar. Almennar gjaldskrárhækkanir eru 2,8%. Í tillögu að gjaldskrá ársins 2021 fyrir Leikskóla Fjallabyggðar er verð á morgun-, hádegis- og síðdegisverði óbreytt frá gildandi gjaldskrá. Í tillögu að gjaldskrá ársins 2021 fyrir Grunnskóla Fjallabyggðar er ekki gert ráð fyrir hækkun á verði skólamáltíða og mjólkuráskriftar.

    Líkamsrækt og sund er áfram gjaldfrjálst fyrir öryrkja gegn framvísun örorkuskírteinis og 67 ára og eldri íbúa Fjallabyggðar. Áfram verður frítt í sund fyrir börn yngri en 10 ára búsett í sveitarfélaginu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 23. fundar fræðslu- og frístundanefndar staðfest á 194. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum

9.Úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga og sérreglur sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta 2020/2021

Málsnúmer 2009034Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að veita bæjarráði fullnaðarafgreiðslu málsins.

10.Fjárhagsáætlun 2021 - Fyrri umræða

Málsnúmer 2007005Vakta málsnúmer

Fyrri umræða

Bæjarstjóri kynnti tillögu að fjárhagsáætlun 2021 og 2022-2024.

Til máls tóku Jón Valgeir Baldursson, S. Guðrún Hauksdóttir, Ingibjörg Guðlaug Jónsdóttir og Nanna Árnadóttir.

Framlögð áætlun byggir á eftirfarandi meginforsendum:

1. Útsvarsprósenta er óbreytt milli ár þ.e. 14,48%.
2. Hækkun útsvarstekna er áætluð 4,2%.
3. Álagningarprósenta fasteignagjalda er óbreytt milli ára.
4. Þjónustugjöld hækka um áætlaða verðlagsþróun þ.e. 2,8%.

Heildartekjur A og B hluta eru áætlaðar 3.073 m.kr.
Rekstrarniðurstaða A hluta, er áætluð neikvæð upp á 72 m.kr.
Rekstrarniðurstaða A og B hluta er áætluð neikvæð upp á 36 m.kr.

Veltufé frá rekstri er áætlað 265 m.kr. eða 8,6%.

Framkvæmdaáætlun gerir ráð fyrir 153,9 m.kr. fjárfestingum, þar ber hæst:
a)
Gangstéttir og stígar (50m)
b)
Íþróttamiðstöðin Ólafsfirði (19m)
c)
Íþróttamiðstöð Siglufirði (15m)
d)
Tjaldsvæðahús Ólafsfirði (7m)

Skuldaviðmið Fjallabyggðar samkvæmt reglugerð 502/2012 verður samkvæmt áætlun 46,7%.

Eiginfjárhlutfall verður 0,65.
Veltufjárhlutfall verður 1,52 og handbært fé í árslok 2021 er áætlað 321 m.kr.
Stærsti málaflokkurinn í rekstri er fræðslu- og uppeldismál með 1.070 m.kr.

Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum að vísa fjárhagsáætlun 2021 og 2022 - 2024, til umfjöllunar í bæjarráði og síðari umræðu í bæjarstjórn.

Bæjarstjórn leggur fram breytingu á framlagðri fjárhagsáætlun 2021, tillaga um breytingu felur það í sér að fasteignaskattsprósenta í A - flokki verði lækkuð í 0,48% úr 0,49%.

Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu með 7 atkvæðum.

Fundi slitið - kl. 18:00.