Bæjarráð Fjallabyggðar

677. fundur 08. desember 2020 kl. 08:15 - 10:05 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Helga Helgadóttir formaður, D lista
  • Nanna Árnadóttir aðalmaður, I lista
  • Jón Valgeir Baldursson aðalmaður, H lista
Starfsmenn
  • Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála
  • Elías Pétursson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála

1.Staðgreiðsla tímabils - 2020

Málsnúmer 2001113Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit staðgreiðslu fyrir tímabilið janúar til nóvember 2020. Staðgreiðsla fyrir tímabilið nemur kr. 1.093.451.064.- eða 101,26% af tímabilsáætlun.

2.Launayfirlit tímabils - 2020

Málsnúmer 2002025Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit launa fyrir tímabilið janúar til nóvember 2020.

3.Fjárhagsáætlun 2021 - Seinni umræða

Málsnúmer 2007006Vakta málsnúmer

Farið yfir lykiltölur í fjárhagsáætlun 2021, ásamt framkvæmdaáætlun fyrir árið 2021.

Bæjarráð samþykkir að vísa fjárhagsáætlun 2021 til síðari umræðu í bæjarstjórn.

4.Framtíðarfyrirkomulag brunavarna

Málsnúmer 2009047Vakta málsnúmer

Lögð fram skýrsla HLH ráðgjafa um sameiningu slökkviliða Fjallabyggðar og Dalvíkurbyggðar.

Bæjarráð samþykkir að beina því til bæjarstjórnar að hefja formlegar viðræður við Dalvíkurbyggð um sameiningu slökkviliða undir þeim formerkjum að efla brunavarnir á svæðinu.


5.Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 49/1997 um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum

Málsnúmer 2012014Vakta málsnúmer

Lögð fram umsögn bæjarstjóra vegna frumvarps til laga um breytingu á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum nr. 49/1997 (markmið, áhættumat, sektir, eignarhald, ofl.).

Bæjarráð Fjallabyggðar þakkar framlagða umsögn og telur ekki koma til álita að samþykkja frumvarpið og gera það að lögum eins og það liggur fyrir á Alþingi. Í fyrsta lagi er það mat bæjarráðs að með samþykkt þess væri hætta á því að hagsmunum dreifbýlis, þ.m.t. skipulagðra skíðasvæða, verði ekki gætt sem skildi þegar kemur að almannavörnum sökum hættu á ofanflóðum. Í annan stað má leiða líkum að því að tug- ef ekki hundruð milljóna króna skuldbindingar verði færðar yfir á sveitarfélögin af ríkinu, með samþykkt þess. Í þriðja lagi er óljóst með öllu að þeir fjármunir sem ríkið innheimtir á hverju ári í formi skattgreiðslna vegna ofanflóðavarna gangi til verkefnisins eða að sveitarfélögum verði tryggður aðgangur að þeim í tengslum við yfirfærslu á eignarréttindum varnarvirkja frá ríki til sveitarfélaga. Þær skatttekjur eru áætlaðar u.þ.b. kr. 2,7 milljarðar á árinu 2021. Í fjórða lagi er með frumvarpinu ætlunin að gera breytingar á lögum og reglum um skipulagsvald sveitarfélaga, sem yrði að hluta til í sérstökum tilvikum fært yfir til Veðurstofunnar, án þess að þessi breyting á skipulagi sveitarfélaga hafi verið rædd við sveitarfélögin eða þeim kynnt hvernig þessi breyting yrði framkvæmd. Að öðru leyti vísast til framlagðrar umsagnar.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda umsögnina á nefndasvið Alþingis sem og að koma henni á framfæri við aðra þá er málið snertir.

6.Yfirfærsla og úrbótaverkefni á netumhverfi stofnana og skóla Fjallabyggðar

Málsnúmer 2011057Vakta málsnúmer

Lagt fram vinnuskjal bæjarstjóra og deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála, dags 07.12.2020 vegna úrbóta á netumhverfi stofnana og skóla Fjallabyggðar. Einnig lögð fram verkáætlun frá Advania, dags. 14.10.2020.

Bæjarstjóri og deildarstjóri leggja til við bæjarráð að farið verði í úrbætur á netumhverfi grunnskóla, leikskóla og íþróttamiðstöðva og að kostnaður kr. 4.184.203 vegna búnaðarkaupa verði vísað til viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2020 og að gert verði ráð fyrir kostnaði kr. 1.924.930, vegna vinnu við lagfæringu á netumhverfinu, á fjárhagsáætlun 2021.

Bæjarráð samþykkir að vísa kostnaði vegna búnaðarkaupa kr. 4.184.203 í viðauka nr. 32/2020 við fjárhagsáætlun 2020, við deild 04210 og lykil 8551 kr. 2.167.566, deild 04110, lykil 8551 kr. 410.000, deild 06510 og lykil 8551 kr. 410.000, deild 04510 og lykil 8551 kr. 410.000, deild 06610 og lykil 8551 kr. 83.091, deild 21400, lykil 8551 kr. 288.091, deild 75210 og lykil 8551 kr. 83.091, deild 33110 og lykil 8551 kr. 166.182, deild 41110 og lykil 8551 kr. 166.182 og að honum sé mætt með lækkun á handbæru fé og vísar honum til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar kostnaði vegna vinnu við lagfæringu á netumhverfi kr. 1.924.930 til fjárhagsáætlunar 2021.

7.Úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga og sérreglur sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta 2020/2021

Málsnúmer 2009034Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, dags. 30.11.2020 er varðar úthlutun byggðakvóta 2020/2021.

Til úthlutunar koma 46 tonn til Ólafsfjarðar og 140 tonn til Siglufjarðar.

Bæjarstjóri fór yfir ástæður minni úthlutunar byggðakvóta í Ólafsfjörð. Úthlutun þangað byggir á þeim reglum sem fram koma í reglugerð nr. 731/2020 um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2020/2021. Þar segir í A-lið 4. gr. að reikna skuli punkta og aflaheimildir taki mið af þeim. Það sem nú gerir mál flóknari er samdráttur í heildaraflaheimildum sem til ráðstöfunar eru í almennum byggðakvóta. En umræddar heimildir fara úr 5.374 þorskígildistonnum í 4.810 þorskígildistonn. Þar sem reglur í E-lið 4. gr. setja hins vegar mörk til viðbótar við skilyrði A-liðar þannig að takmarkanir eru settar á annars vegar skerðingu til byggðarlaga með færri en 400 íbúa þannig að skerðing kemur fram að fullu hjá byggðarlögum yfir 400 íbúa. Reglur í B og C-liðum 4. gr. reglugerðarinnar snúa að samdrætti í vinnslu á rækju og skel og þá er ákveðnum heimildum ráðstafað á grundvelli þessa í 70, 140 eða 210 þorskígildistonna úthlutun ef réttur er til staðar. Þessi úthlutun hefur líka áhrif á það sem kemur til skiptanna skv. A-lið 4. gr. reglugerðarinnar. Samkvæmt reglum F-lið 4. gr. reglugerðarinnar þá er þau byggðarlög sem fá sértækan byggðakvóta ekki skert þannig að þau fá ekki skerðingu á úthlutun sem líka hefur áhrif á það sem kemur til úthlutunar á grundvelli A-liðar 4. gr. reglugerðarinnar.
Fyrrgreint ber með sér að skerðing er ekki hlutfallsleg milli byggðarlaga og niðurstaðan sú að sum byggðarlög fá töluverða skerðingu á grundvelli punkta útreiknings skv. A-lið 4. gr. öll með yfir 400 íbúa og Ólafsfjörður því ekki einsdæmi í þessu sambandi.
Breyting á milli ára (hlutfallsleg af heildarráðstöfun) hjá nokkrum byggðarlögum sem eru í svipaðri stöðu og Ólafsfjörður er:
Stokkseyri -64,2%
Þorlákshöfn -39,6%
Garður -46,2%
Vogar -61,8%
Ólafsvík -71,0%
Blönduós -49,0%
Ólafsfjörður -59,7%

Vert er að ítreka að samdráttur í tonnum er mismunandi hjá framangreindum byggðarlögum sem og þeir punktar sem hverju byggðarlagi eru reiknaðir sbr. A-lið 4. gr. reglugerðarinnar og úthlutun byggir á.

Bæjarráð samþykkir að fara þess á leit við Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið að eftirfarandi sérreglur verði settar í reglugerð 728/2020:

a)
Ákvæði 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Afli af fiskiskipum sem landað er í sveitarfélagi af bátum sem ekki eru skráðir innan viðkomandi sveitarfélags á sama tíma, telst ekki til landaðs afla samkvæmt 1. mgr.

b)
Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan viðkomandi sveitarfélags á tímabilinu 1. september 2019 til 31. ágúst 2020, þó að hámarki 80.000 þorskígildiskíló á bát.

c)
Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. september 2020 til 31. ágúst 2021.

8.Ósk Landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra um umsögn v. fiskeldi í Eyjafirði

Málsnúmer 2006022Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, dags. 02.12.2020 þar sem fram kemur að Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið óskaði 9. júní sl. eftir umsögnum þriggja stofnana og viðkomandi sveitarfélaga um hvort rétt sé að lýst verði yfir banni við eldi laxfiska af eldisstofni í sjókvíum í Eyjafirði.

Nú óskar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra eftir fjarfundi með fulltrúum stofnana og sveitarfélaga á svæðinu til að fylgja þeim eftir og ræða næstu skref. Fyrirhugað er að fundurinn fari fram í fjarfundi fimmtudaginn 10. desember nk. kl. 9:00 (Eyjafjörður).
Óskað er eftir staðfestingu á þátttöku í fundinum, hlekkur á fundinn verður sendur síðar.

Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri sæki fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.

9.Erindi frá Síldarminjasafni Íslands - Beiðni um endurnýjun rekstrarsamnings

Málsnúmer 2010040Vakta málsnúmer

Aníta mætir á fund kl. 8:30 á Teams
Á fund bæjarráðs mætti Anita Elefsen safnstjóri Síldarminjasafns Íslands vegna beiðni um endurnýjun rekstrarsamnings.

Anita fór yfir framlagt minnisblað dags. 04.12.2020.

Bæjarráð þakkar Anítu fyrir minnisblaðið og góða yfirferð. Í fjárhagsáætlun 2021 er gert ráð fyrir endurnýjun á rekstarsamningi við Síldarminjasafnið til eins árs að upphæð kr. 5.500.000. Bæjarráð samþykkir að fela deildarstjóra fræðslu-, frístunda og menningarmála að gera drög að samningi við Síldarminjasafnið og leggja fyrir bæjarráð.

10.Erindi v. holræsakerfis í Ólafsfirði

Málsnúmer 2012012Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Hauks Sigurðssonar, dags. 03.12.2020 þar sem óskað er eftir upplýsingum um stöðu framkvæmda við holræsakerfi í Ólafsfirði.

Lagt fram vinnuskjal deildarstjóra tæknideildar, dags. 07.12.2020 þar sem fram kemur að hreinsibrunnur við Námuveg hefur verið í notkun í tvö ár. Dælubrunna við Ósinn og framan við Ísfell er stefnt á að taka í notkun fyrir jól. Útrás á að klára á næsta ári og framkvæmdum við fráveitu í Ólafsfirði verður þá lokið.

Bæjarráð samþykkir vinnuskjal deildarstjóra tæknideildar og leggur áherslu á að allt kapp verði lagt á að dælubrunnar verði teknir í notkun á þessu ári.

11.Aðalfundur Heilbrigðiseftirlits NV

Málsnúmer 2012015Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Heilbrigðiseftirlits Norðurlands, dags. 04.12.2020 þar sem boðað er til aðalfundar Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra í fjarfundi kl.13:00 þann 18. desember nk.

12.Útsvarshlutfall sveitarfélaga fyrir árið 2021

Málsnúmer 2012018Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Fjármála- og efnahagsráðuneytisins dags. 04.12.2020 þar sem fram kemur að tilkynna skal ákvörðun sveitarstjórnar um útsvar til ráðuneytisins eigi síðar en 15. desember nk. sbr. 24. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga.

Í forsendum fjárhagsáætlunar 2021, var gert ráð fyrir útsvarsprósentu 14,48%.

Bæjarráð felur deildarstjóra stjórnsýslu og fjármála að senda umbeðnar upplýsingar til ráðuneytisins.

13.Fréttabréf SSNE - 2020

Málsnúmer 2005025Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar 9. tbl. fréttabréfs, Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) nóvember 2020

14.Drög að umsögn um frv um Þjóðgarðastofnun og þjóðgarða

Málsnúmer 2001012Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi sveitarstjórnar Bláskógabyggðar, dags. 01.12.2020 er varðar bókun sveitarstjórnar vegna Þjóðgarðs á miðhálendinu, dags. 05.11.2020.

15.Ársþing SSNE 2020

Málsnúmer 2003068Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE), dags. 01.12.2020 þar sem fram kemur að aukaþing SSNE verður haldið í fjarfundi þann 11. desember nk. frá kl. 8:30-11:30.

16.Bakkabyggð, gatnagerð

Málsnúmer 1901093Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar verkfundargerðir 5 og 6 vegna verksins Bakkabyggð Ólafsfirði - gatnagerð og lagnir frá 9. og 23 nóvember sl.

17.Ársskýrsla Persónuverndar 2019

Málsnúmer 2011039Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar ársskýrsla Persónuverndar 2019.

18.Frá nefndasviði Alþingis - mál til umsagnar

Málsnúmer 2005035Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi Velferðarnefndar Alþingis, dags. 25.11.2020 er varðar umsögn um tillögu til þingsályktunar um bætta stjórnsýslu í umgengnismálum, 104. mál.
Lagt fram til kynningar erindi Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, dags. 25.11.2020 er varðar umsögn um frumvarp til laga um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum (markmið, áhættumat, sektir o.fl.), 311. mál.
Lagt fram til kynningar erindi Velferðarnefndar Alþingis, dags. 25.11.2020 er varðar umsögn um frumvarp til laga um fæðingar- og foreldraorlof, 323. mál.
Lagt fram til kynningar erindi Atvinnuveganefndar Alþingis, dags. 27.11.2020 er varðar umsögn um frumvarp til laga um opinberan stuðning við nýsköpun, 322. mál.
Lagt fram til kynningar erindi Atvinnuveganefndar Alþingis, dags. 27.11.2020 er varðar umsögn um frumvarp til laga um Tækniþróunarsjóð, 321. mál.
Lagt fram til kynningar erindi Allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis, dags. 30.11.2020 er varðar umsögn um tillögu til þingsályktunar um skákkennslu í grunnskólum, 106. mál.
Lagt fram til kynningar erindi Allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis, dags. 01.12.2020 er varðar umsögn um tillögu til þingsályktunar um félagsráðgjöf í grunn- og framhaldsskólum, 113. mál.

19.Fundargerðir - Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) - 2020

Málsnúmer 2002043Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 18. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra frá 25. nóvember sl.

20.Fundargerðir - Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar 2018-2022

Málsnúmer 2011052Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 6. fundar Svæðisskipulagsnefndar Eyjafjarðar frá 23. nóvember sl.

21.Stöðuskýrslur uppbyggingarteymis félags- og atvinnumála

Málsnúmer 2008055Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar 8. stöðuskýrsla Teymis um uppbyggingu félags- og atvinnumála í kjölfar Covid-19 frá 24. nóvember sl.

22.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2020

Málsnúmer 2001002Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir:
261. fundar Skipulags- og umhverfisnefndar Fjallabyggðar frá 19. nóvember sl.
93. fundar Fræðslu- og frístundanefndar Fjallabyggðar frá 30. nóvember sl.

Fundi slitið - kl. 10:05.