Fundargerðir Farsældarráðs Norðurlands eystra

Málsnúmer 2512035

Vakta málsnúmer

Velferðarnefnd Fjallabyggðar - 5. fundur - 15.01.2026

Lögð fram til kynningar fundargerð Farsældarráðs Norðurlands eystra.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Velferðarnefnd Fjallabyggðar - 6. fundur - 12.02.2026

Sviðsstjóri kynnir 2. fund farsældarráðs Norðurlands eystra.
Lagt fram til kynningar
Sviðsstjóri fór yfir verkefni farsældarráðs SSNE og vinnuna framundan.

Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 158. fundur - 16.02.2026

Til kynningar fyrstu tvær fundargerðir farsældarráðs Norðurlands eystra.
Lagt fram til kynningar
Sviðsstjóri fór yfir helstu mál sem tekin hafa verið fyrir á fundum Farsældarráðs SSNE.

Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 159. fundur - 23.03.2026

Fyrir liggja fundargerðir 3. og 4. funda Farsældarráðs Norðurlands eystra.
Lagt fram til kynningar
Sviðsstjóri kynnti fundargerðir Farsældarráðs Norðurlands eystra.

Velferðarnefnd Fjallabyggðar - 8. fundur - 24.04.2026

Fyrir liggur fundargerð 5. fundar Farsældarráðs Norðurlands eystra. Þar kemur m.a. fram að fulltrúar Ungmennaráðs Fjallabyggðar, þær Hanna Valdís Hólmarsdóttir og Jana Katrín Merenda, kynntu starfsemi ráðsins fyrir nefndarfólki.
Vilborg Þórarinsdóttir var einnig gestur fundarins og fór yfir starfsemi Barnaverndarþjónustu Norðurlands eystra.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar.

Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 161. fundur - 11.05.2026

Fyrir liggur 5. fundargerð Farsældarráðs Norðurlands eystra.
Ungmennaráð Fjallabyggðar kynnti starfsemi ráðsins fyrir nefndarmönnum.

Á fundinn mætti Vilborg Þórarinsdóttir, forstöðumaður Barnaverndarþjónustu Norðurlands eystra,og flutti erindi um starfsemi þjónustunnar.
Lagt fram til kynningar
Kom fram að barnaverndarþjónustan nær nú yfir 11 sveitarfélög með Akureyrarbæ sem leiðandi sveitarfélag. Hún sagði að mikil aukning væri í tilkynningum til barnaverndar frá árinu 2021, einkum vegna vanrækslu, ofbeldis og áhættuhegðunar barna, þar sem vímuefnavandi foreldra er algengasta ástæða tilkynninga. Vilborg lýsti samþættingu félags- og barnaverndarþjónustu, þar sem verklagsreglur og sameiginleg skjöl eru nýtt til að tryggja betri yfirsýn og samvinnu milli kerfa.

Barnavernd starfar í nánu sambandi við lögreglu, heilbrigðisþjónustu, kvennaathvarf og aðra aðila, meðal annars með sértækum teymum fyrir flókin mál.
Þá greindi hún frá opnun fjölskylduheimilisins Sólberg á síðasta ári sem þjónustar allan landshlutann. Það kom fram í máli Vilborgar að svo virðist sem dregið hafi úr þörf fyrir vistun barna utan heimilis vegna tilkomu Sólbergs og þar með hefur fósturvistunar kostnaður sveitarfélaga lækkað nokkuð á móti.

Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 162. fundur - 08.06.2026

Fundargerð farsældarráð slögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar
Fundargerðin kynnt og sviðsstjóri sagði nefndarmönnum að áætlað væri að halda farsældardag 4. september í Hofi á Akureyri. Óskað var eftir að fá kynningu á ráðinu í ágúst. Sviðsstjóri mun leita eftir því hjá verkefnisstjóra SSNE að vera með slíka kynningu.

Velferðarnefnd Fjallabyggðar - 9. fundur - 11.06.2026

Fundargerð til kynningar.
Lagt fram til kynningar
Sviðsstjóri fór yfir fundargerð farsældarráðs SSNE og sagði frá fyrirhuguðum farsældardegi 4. september n.k.

Velferðarnefnd Fjallabyggðar - 11. fundur - 10.09.2026

Fyrir liggur 7. fundargerð Farsældarráðs Norðurlands eystra.
Lagt fram til kynningar
Fundargerðin lögð fram til kynningar. Sviðsstjóri sagði einnig frá vel heppnuðum farsældardegi sem haldinn var í Hofi á Akureyri þann 4. september og mættu um 130 manns á af upptökusvæði SSNE.

Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 164. fundur - 23.09.2026

7. fundargerð Farsældarráðs Norðurlands eystra frá 12. ágúst 2026 lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar
Nefndin fagnar vinnu við svæðisbundna áætlun um farsæld barna 2027 - 2030 og leggur áherslu á að aðgerðir, ábyrgð og mælikvarðar verði skýrt skilgreind við áframhaldandi vinnu.

Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 164. fundur - 23.09.2026

8. fundargerð Farsældarráðs Norðurlands eystra frá 9. september 2026 lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar
Nefndin vekur sérstaklega athygli á niðurstöðum Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar, þar sem andleg líðan ungmenna kemur fram sem helsta áskorunin, og tekur undir mikilvægi öflugra forvarna og stuðnings við börn, fjölskyldur, skóla og frístundastarf.
Beðið er niðurstöðu Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar fyrir Fjallabyggð.