Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar

161. fundur 11. maí 2026 kl. 16:15 - 17:30 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Viktor Freyr Elísson formaður
  • Sandra Finnsdóttir aðalm.
  • Katrín Freysdóttir aðalm.
  • Bryndís Þorsteinsdóttir aðalm.
Starfsmenn
  • Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir Sviðsstjóri velferðarsviðs
Halldóra Högnadóttir mætti fyrir hönd starfsfólks leikskólans.

1.Skóladagatal Grunnskóla og leikskóla Fjallabyggðar 2026-2027

Málsnúmer 2603029Vakta málsnúmer

Fyrir liggur skóladagatal leik- og grunnskóla 2026-2027.
Ása Björk Stefánsdóttir, skólastýra Grunnskóla Fjallabyggðar og Kristín María H. Karlsdóttir skólastýra Leikskóla Fjallabyggðar mættu á fundinn og fóru yfir skóladagatal skólanna næsta skólaár.
Samþykkt
Ása fór yfir mönnun næsta haust og enn vantar kennara í 4. og 7. bekk og eru auglýsingar í gangi. Allar stöður ófaglærðra auglýstar að venju og þá helst í verkgreinum. Ása þakkar fyrir sig þar sem hún er að láta af störfum í vor.
Nefndin þakkar Ásu fyrir samstarfið og óskar henni velfarnaðar í því sem hún tekur sér fyrir hendur.

2.Samantekt vegna breytts fyrirkomulags í leikskóla Fjallabyggðar

Málsnúmer 2604063Vakta málsnúmer

Samantekt könnunar í leikskóla Fjallabyggðar.
Fyrir liggur samantekt Ásgarðs sem lagði könnun fyrir foreldra, starfsfólk og nokkur fyrirtæki í Fjallabyggð samkvæmt því sem starfshópurinn hafði lagt til vegna breytts fyrirkomulags, vistunartíma og gjaldskrár í Leikskóla Fjallabyggðar.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar
Nefndarmenn ræddu niðurstöðurnar og telja ástæðu til að skoðað verði að hafa einn mánuð gjaldfrjálsan ef skráningardagar eru ekki nýttir og vegna styttingar á föstudögum.
Einnig að auka sveigjanleika með sex tíma vistun til að mæta þörfum t.d. vaktavinnufólks.

3.Skólapúls, niðurstaða starfsmannakönnunar 2026

Málsnúmer 2605024Vakta málsnúmer

Skólapúls, ánægjukönnun starfsfólks leikskóla.
Kristín fór yfir helstu niðurstöður starfsánægjukönnunar starfsfólks leikskólans.
Ekki lágu fyrir niðurstöður úr öllum skólum landsins þegar þessi könnun var tekin út.
Lagt fram til kynningar
Gæðaráð tekur niðurstöðurnar næsta haust og fer yfir það sem þarf að skoða betur. Einnig verður verklag vegna eineltis rætt á næsta starfsmannafundi.
Skráð börn á Leikhóla nú í haust eru 48 og 60 á Leikskála.

4.Fundargerðir Farsældarráðs Norðurlands eystra

Málsnúmer 2512035Vakta málsnúmer

Fyrir liggur 5. fundargerð Farsældarráðs Norðurlands eystra.
Ungmennaráð Fjallabyggðar kynnti starfsemi ráðsins fyrir nefndarmönnum.

Á fundinn mætti Vilborg Þórarinsdóttir, forstöðumaður Barnaverndarþjónustu Norðurlands eystra,og flutti erindi um starfsemi þjónustunnar.
Lagt fram til kynningar
Kom fram að barnaverndarþjónustan nær nú yfir 11 sveitarfélög með Akureyrarbæ sem leiðandi sveitarfélag. Hún sagði að mikil aukning væri í tilkynningum til barnaverndar frá árinu 2021, einkum vegna vanrækslu, ofbeldis og áhættuhegðunar barna, þar sem vímuefnavandi foreldra er algengasta ástæða tilkynninga. Vilborg lýsti samþættingu félags- og barnaverndarþjónustu, þar sem verklagsreglur og sameiginleg skjöl eru nýtt til að tryggja betri yfirsýn og samvinnu milli kerfa.

Barnavernd starfar í nánu sambandi við lögreglu, heilbrigðisþjónustu, kvennaathvarf og aðra aðila, meðal annars með sértækum teymum fyrir flókin mál.
Þá greindi hún frá opnun fjölskylduheimilisins Sólberg á síðasta ári sem þjónustar allan landshlutann. Það kom fram í máli Vilborgar að svo virðist sem dregið hafi úr þörf fyrir vistun barna utan heimilis vegna tilkomu Sólbergs og þar með hefur fósturvistunar kostnaður sveitarfélaga lækkað nokkuð á móti.

Fundi slitið - kl. 17:30.