Velferðarnefnd Fjallabyggðar

6. fundur 12. febrúar 2026 kl. 16:00 - 17:30 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Sæbjörg Ágústsdóttir formaður
  • Sandra Finnsdóttir Varamaður
  • Hanna Sigríður Ásgeirsdóttir aðalm.
  • Rögnvaldur Ingólfsson Varamaður
  • Áki Berndsen Varamaður
Starfsmenn
  • Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs

1.Starfsemi velferðarsviðs 2026

Málsnúmer 2602017Vakta málsnúmer

Helstu upplýsingar um starfsemi félagsmáladeildar 2025.
Lagt fram til kynningar
Deildarstjóri félagsmáladeildar, ásamt sviðsstjóra, fóru yfir starfsemi deildarinnar árið 2025 og árið framundan.
Fjölgun hefur orðið í þjónustu við aldraða milli ára og ljóst að svo verður áfram miðað við íbúasamsetningu í Fjallabyggð.
Vinnu við breytingar á íbúðum í Skálarhlíð er að ljúka og framundan endurnýjun á eldhúsi sem komið er til ára sinna og annar ekki því sem til þarf til að mæta þjónustunni.
Fjöldi heimila sem þáði fjárhagsaðstoð er svipuð og árið 2024.
Þjónusta í málefnum fatlaðs fólks er að aukast og breytingar fyrirhugaðar. Eins og áður hefur komið fram er endurskoðun á fyrirkomulagi og skipulagi þjónustunnar hafið.

2.Barnaverndarþjónusta í Fjallabyggð -fósturheimili

Málsnúmer 2602014Vakta málsnúmer

Minnisblað vegna mikillar umræðu um fósturvistanir og fósturheimili í samfélaginu.
Lagt fram til kynningar
Deildarstjóri og sviðsstjóri fóru yfir stöðu mála í Fjallabyggð varðandi fósturúrræði. Engin börn eru í fósturúrræði í Fjallabyggð en nefndarmenn eru sammála um að ef til þess þarf að koma að nýta slíkt úrræði er mikilvægt að eftirlit sé í lagi.

3.Fundargerðir Farsældarráðs Norðurlands eystra

Málsnúmer 2512035Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri kynnir 2. fund farsældarráðs Norðurlands eystra.
Lagt fram til kynningar
Sviðsstjóri fór yfir verkefni farsældarráðs SSNE og vinnuna framundan.

Fundi slitið - kl. 17:30.