Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar

164. fundur 23. september 2026 kl. 16:15 - 18:00 Bylgjubyggð 2b, Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Kristinn Kristjánsson aðalm.
  • Kristín Margrét Halldórsdóttir aðalm.
  • Jón Kort Ólafsson aðalm.
  • Rut Jónsdóttir aðalm.
Starfsmenn
  • Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir Sviðsstjóri velferðarsviðs

1.Ræsting í skólahúsnæði Tónlistarskólans á Tröllaskaga á Siglufirði 2026

Málsnúmer 2609004Vakta málsnúmer

Ræsting í húsnæði TÁT á Siglufirði
Samþykkt
Fyrir liggur að endurnýja þarf samning um þrif í skólahúsnæði TÁT á Siglufirði þar sem fyrri samningur er runninn út. Auglýst hefur verið eftir tilboðum í verkið og verður áhugasömum aðilum boðið upp á vettvangsskoðun 28. september. Tilboð verða opnuð í Ráðhúsinu á Siglufirði 7. október kl. 13:00.

2.Námskeið - frístund

Málsnúmer 2609021Vakta málsnúmer

Þátttaka í Frístund og lengdri viðveru
Lagt fram til kynningar
Fræðslu- og frístundanefnd fagnar góðri þátttöku barna í frístund og lengdri viðveru og þeirri auknu fjölbreytni sem hefur verið byggð upp í starfinu til að mæta betur ólíkum þörfum barna. Nefndin telur mikilvægt að halda áfram á sömu braut og fagnar jafnframt því hversu vel hefur tekist að manna starfið.

3.Gjaldskrár 2027

Málsnúmer 2609044Vakta málsnúmer

Tillögur að gjaldskrám vegna grunnskóla, leikskóla, Neon og íþróttamiðstöðva.
Afgreiðslu frestað
Nefndin leggur til að málinu verði frestað og tekið fyrir á vinnufundi 1. október.

4.Farsældarráð SSNE

Málsnúmer 2603031Vakta málsnúmer

Áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna á Norðurlandi eystra.
Fyrir fundinum liggur áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna á Norðurlandi eystra. Áætlunin er unnin á grundvelli laga nr. 86/2021 um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og er liður í lögbundnu hlutverki farsældarráða samkvæmt 5. gr. laganna. Við gerð hennar var byggt á stefnumótun stjórnvalda um farsæld barna, niðurstöðum farsældarþings og víðtæku samráði við sveitarfélög, þjónustuveitendur ríkisins og aðra samstarfsaðila á Norðurlandi eystra.

Áætlunin markar sameiginlegar áherslur landshlutans í málefnum barna og fjölskyldna til ársins 2030. Henni er ætlað að vera sameiginlegt leiðarljós fyrir áframhaldandi samstarf og þróun þjónustu í þágu farsældar barna, með það að markmiði að styrkja samhæfingu, snemmtækan stuðning og markvissa nýtingu þeirra tækifæra sem felast í auknu samstarfi þvert á kerfi og stofnanir.

Nefndin fagnar því að komin sé heildstæð áætlun um jafn mikilvæg mál og leggur til að málið verði unnið áfram m.t.t. aukins umfangs og kostnaðar.

5.Uppsögn á samningi við Mentor

Málsnúmer 2609027Vakta málsnúmer

Samningi um námsumsjónakerfið Mentor hefur verið sagt upp.
Lagt fram til kynningar
Búið er að segja upp námskerfinu Mentor og hefur Námfús verið innleitt í grunnskólann.

6.Samningur um Námfús

Málsnúmer 2608031Vakta málsnúmer

Samningur um skráningarkerfið Námfús
Lagt fram til kynningar
Nefndin lýsir ánægju með hið nýja viðmót og umhverfi sem Námfús býður uppá.

7.Lýðheilsuvísar á Norðurlandi 2026

Málsnúmer 2609057Vakta málsnúmer

Lýðheilsuvísar á Norðurlandi
Lagt fram til kynningar
Fyrir nefndinni liggur niðurstaða Lýðheilsuvísa 2026 á Norðurlandi.
Nefndin telur mikilvægt að nýta lýðheilsuvísa við stefnumótun og forvarnarstarf sveitarfélaga.

Æskilegt væri að vísarnir væru í auknum mæli aðgengilegir og sundurgreindir eftir einstökum sveitarfélögum, enda myndi það auðvelda sveitarfélögum að greina eigin stöðu, styrkleika og áskoranir og beina aðgerðum þangað sem þörfin er mest.

8.Gulur september

Málsnúmer 2609017Vakta málsnúmer

Erindi vegna Guls september
Lagt fram til kynningar
Fræðslu- og frístundanefnd vekur athygli á Gulum september og hvetur fyrirtæki, stofnanir, skóla, íþrótta- og félagasamtök og íbúa Fjallabyggðar til virkrar þátttöku í átakinu.

Sérstök áhersla er lögð á ungt fólk í ár og mikilvægi þess að ná til ungmenna þar sem þau eru, m.a. í skólum, íþrótta- og tómstundastarfi, félagsmiðstöðvum og á samfélagsmiðlum. Nefndin hvetur til þess að ungu fólki verði gefið tækifæri til að taka virkan þátt og skapa eigin verkefni í tengslum við átakið.

Fræðslu- og frístundanefnd hvetur jafnframt til fjölbreyttrar og sýnilegrar þátttöku í samfélaginu, svo sem með gulum dögum, viðburðum, samveru, tónlist og söng, skreytingum og öðrum skapandi verkefnum. Fyrirtæki og stofnanir eru hvött til að gera Gulan september sýnilegan á vinnustöðum og opinberum stöðum og vekja þannig athygli á mikilvægi geðræktar, sjálfsvígsforvarna, umhyggju og þess að vera til staðar hvert fyrir annað.

Nefndin hvetur íbúa til að kynna sér og taka þátt í þeim viðburðum sem haldnir verða í Gulum september.

9.Fjölmenningardagur VMST

Málsnúmer 2609028Vakta málsnúmer

Skýrsla vegna fjölmenningardags VMST
Lagt fram til kynningar
Fræðslu- og frístundanefnd tekur undir helstu niðurstöður Fjölmenningardags um mikilvægi þess að efla íslenskukennslu og snemmtækan stuðning við börn og fjölskyldur af erlendum uppruna. Nefndin leggur sérstaka áherslu á að skólar og frístundastarf gegni lykilhlutverki í inngildingu, félagslegri þátttöku og jöfnun tækifæra barna. Mikilvægt er að tryggja gott upplýsingaflæði til foreldra, stuðla að virkri þátttöku barna í skóla- og frístundastarfi og efla samstarf skóla, frístundastarfs og annarrar þjónustu sveitarfélagsins.

10.UngRIFF, kvikmyndahátíðar barna- og ungmenna

Málsnúmer 2608081Vakta málsnúmer

Riff- samstarf vegna stuttmyndasýningar
Lagt fram til kynningar
Nefndin leggur til að sviðsstjóri og umsjónamaður Neon vinni málið áfram og óski eftir samstarfi við MTR.

11.FIFA Arena verkefni FIFA og KSÍ - Knattspyrnusamband Íslands

Málsnúmer 2608039Vakta málsnúmer

FIFA-Arena - tækifæri fyrir sveitarfélög
Lagt fram til kynningar
Nefndin fagnar því að umsókn hefur verið send.

12.Frisbígolfvöllur

Málsnúmer 2609037Vakta málsnúmer

Beiðni um frisbígolfvöll á Siglufirði.
Lagt fram til kynningar
Nefndin þakkar erindið og lýsir ánægju með frumkvæðið og hvetur til að málið verði tekið fyrir við gerð fjárhagsáætlunar.

13.Fundargerðir Farsældarráðs Norðurlands eystra

Málsnúmer 2512035Vakta málsnúmer

7. fundargerð Farsældarráðs Norðurlands eystra frá 12. ágúst 2026 lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar
Nefndin fagnar vinnu við svæðisbundna áætlun um farsæld barna 2027 - 2030 og leggur áherslu á að aðgerðir, ábyrgð og mælikvarðar verði skýrt skilgreind við áframhaldandi vinnu.

14.Fundargerðir Farsældarráðs Norðurlands eystra

Málsnúmer 2512035Vakta málsnúmer

8. fundargerð Farsældarráðs Norðurlands eystra frá 9. september 2026 lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar
Nefndin vekur sérstaklega athygli á niðurstöðum Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar, þar sem andleg líðan ungmenna kemur fram sem helsta áskorunin, og tekur undir mikilvægi öflugra forvarna og stuðnings við börn, fjölskyldur, skóla og frístundastarf.
Beðið er niðurstöðu Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar fyrir Fjallabyggð.

Fundi slitið - kl. 18:00.