Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar

158. fundur 16. febrúar 2026 kl. 16:15 - 18:15 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Viktor Freyr Elísson formaður
  • Jakob Kárason varaformaður
  • Sandra Finnsdóttir aðalm.
  • Katrín Freysdóttir aðalm.
Starfsmenn
  • Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs

1.Störf laus til umsóknar í stjórnsýslu

Málsnúmer 2503024Vakta málsnúmer

Ráðning í starf deildarstjóra fræðslu- og frístundamála.
Lagt fram til kynningar
Sviðsstjóri sagði frá því að Ásdís Sigurðardóttir hefði verið ráðin í stöðu deildarstjóra fræðslu- og frístundamála og kemur hún til starfa 1. mars.

Nefndarmenn bjóða Ásdísi velkomna til starfa.

2.Sálfræðiþjónusta í grunnskólanum

Málsnúmer 2511047Vakta málsnúmer

Sálfræðiþjónusta við leik- og grunnskóla.
Lagt fram til kynningar
Sviðsstjóri fór yfir samning við félagsráðgjafa við grunnskólann og þjónustu sálfræðinga vegna greininga og úrvinnslu þeirra.

3.Starfsaðstæður og skipulag í Leikskóla Fjallabyggðar

Málsnúmer 2410098Vakta málsnúmer

Framkvæmd könnunar vegna breytts fyrirkomulags í leikskólanum. Kristín María Hlökk leikskólastjóri mætti á fundinn.
Lagt fram til kynningar
Leikskólastjóri fór yfir fyrirhugaða könnun sem samþykkt var að gera í tengslum við þær breytingar sem gerðar voru á opnunartíma og leikskólagjöldum. Könnunin fer fram í mars og nær til foreldra, fyrirtækja og stofnana. Ásgarður mun framkvæma könnunina. Samráðsfundur verður með Ásgarði 27. febrúar. Skólapúls verður lagður fyrir starfsfólk í mars.
Vel hefur gengið með eldri börnin í aðstöðunni í UÍF húsnæðinu og þau afskaplega ánægð.

Nefndarmenn þakka Kristínu fyrir yfirferðina.

Sviðsstjóri fór yfir stöðuna á fyrirhugaðri viðbyggingu á Leikhólum en gert er ráð fyrir að henni verði lokið 7. apríl.

4.Nordplus verkefni í Grunnskóla Fjallabyggðar

Málsnúmer 2401032Vakta málsnúmer

Guðrún Unnsteinsdóttir, kennari, kom á fundinn og kynnti Nordplus verkefni grunnskólans.
Lagt fram til kynningar
Guðrún Unnsteinsdóttir kynnti samstarfsverkefni grunnskólans við Finna í Hankasalmi og Granna í Svíþjóð. Um er að ræða Nordplus-verkefni sem unnið var á árunum 2024-2025.
Nemendur úr Fjallabyggð hafa farið í heimsókn bæði til Svíþjóðar og Finnlands og s.l. haust komu nemendur að utan til Fjallabyggðar.

Grunnskólinn hefur sent inn nýja umsókn með styrk frá Rannís. Áherslan er á bókaklúbb en líka á umhverfismál og sérstöðu byggðarlaganna.

Nefndarmenn þakka Guðrúnu áhugaverða kynningu.

5.Sumaropnun líkamsræktar á Siglufirði

Málsnúmer 2602030Vakta málsnúmer

Skarphéðinn, forstöðumaður, kom á fundinn og ræddi breytingar á opnun líkamsræktar á Siglufirði næsta sumar vegna viðhalds í íþróttahúsinu.
Samþykkt
Skarphéðinn, forstöðumaður, leggur til að breyting verði á opnunartíma líkamsræktar á Siglufirði næsta sumar vegna viðhalds í húsinu þar sem loka þarf sundlauginni. Reynsla síðasta sumars gefur tilefni til að ekki sé mikil þörf á sambærilegri opnun og leggur hann til að lokað verði um helgar.

Nefndarmenn þakka Skarphéðni fyrir yfirferðina og taka undir að helgarlokun verði í líkamsræktinni á Siglufirði sumarið 2026.

6.Viskubrunnur - erindi frá Grunnskóla Fjallabyggðar

Málsnúmer 2602029Vakta málsnúmer

Erindi frá Grunnskóla Fjallabyggðar.
Synjað
Fyrir liggur erindi frá Birgittu Þorsteinsdóttur f.h. grunnskólans um að kaupa aðgang að Viskubrunni sem hún telur að muni spara og auðvelda kennurum margskonar utanumhald við vinnu kennara og stjórnenda.

Ekki var gert ráð fyrir þessu á fjárhagsáætlun og því ekki hægt að verða við beiðninni að svo stöddu. Nefndarmenn benda á að hugað verði að þessu við gerð næstu fjárhagsáætlunar.

7.Fundargerðir Farsældarráðs Norðurlands eystra

Málsnúmer 2512035Vakta málsnúmer

Til kynningar fyrstu tvær fundargerðir farsældarráðs Norðurlands eystra.
Lagt fram til kynningar
Sviðsstjóri fór yfir helstu mál sem tekin hafa verið fyrir á fundum Farsældarráðs SSNE.

Fundi slitið - kl. 18:15.