Velferðarnefnd Fjallabyggðar

11. fundur 10. september 2026 kl. 16:15 - 18:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Kristín Ágústa Eiðsdóttir aðalm.
  • Sæunn Gísladóttir formaður
  • Auður Ösp Hlíðdal Magnúsdóttir aðalm.
  • Guðlaugur Magnús Ingason aðalm.
  • Björk Óladóttir aðalm.
Starfsmenn
  • Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir Sviðsstjóri velferðarsviðs
Hafdís Huld Björnsdóttir, bæjarstjóri fór með nefndinni í heimsókn á Skálarhlíð.

1.Tillaga að uppfærðum reglum um fjárhagsaðstoð

Málsnúmer 2609016Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga að uppfærðum reglum um fjárhagsaðstoð.
Samþykkt
Lögð er fram tillaga að uppfærðum reglum um fjárhagsaðstoð frá Fjallabyggð, dagsett 4. september 2026. Reglurnar byggja á VI. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, einkum 19. til 24. gr., ásamt almennum ákvæðum IV. kafla um skyldur sveitarfélaga. Fjárhagsaðstoð sveitarfélaga er skilgreind sem stuðningur við einstaklinga og fjölskyldur í erfiðleikum til að mæta grunnþörfum.
Sérstök áhersla er á hagsmuni barna, félagslega þátttöku þeirra og valdeflingu umsækjenda. Félagsleg ráðgjöf, samráð og einstaklingsbundið mat hafa það að markmiði að styrkja sjálfshjálp og þátttöku í samfélaginu.

Grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar er ekki hugsuð til að mæta fullri framfærsluþörf einstaklinga og fjölskyldna til lengri tíma. Fjárhagsaðstoðin er fyrst og fremst tímabundin aðstoð þar til varanleg lausn finnst.
Tillagan samræmir framfærsluviðmið, skilyrði og sérstakar stuðningsheimildir og leggur áherslu á tímabundna aðstoð með einstaklingsbundnum stuðningi. Tillagaga að
grunnfjárhæð í reglunum er 232.000 kr., sem er 14,8% hækkun á núverandi grunnfjárhæð.

Tillagan er nálægt meðaltali annarra sveitarfélaga utan höfuðborgarsvæðisins.

Velferðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti uppfærða reglugerð og fjárhæðir fjárhagsaðstoðar.

2.Heimsókn í Skálarhlíð

Málsnúmer 2609022Vakta málsnúmer

Heimsókn velferðarnefndar í Skálarhlíð.
Lagt fram til kynningar
Velferðarnefnd fór ásamt bæjarstjóra og sviðsstjóra velferðarsviðs og heimsótti Skálarhlíð. Helga Hermannsdóttir, forstöðukona, tók á móti nefndinni sagði frá starfseminni, sýndi húsið og fór yfir þær framkvæmdir sem hafa verið undanfarin misseri og það sem þarf að gera á næstu misserum í viðhaldi.
Nefndin þakkar Helgu sem og íbúum sem nefndin hitti og fékk að líta inn til ánægjulega heimsókn.

3.Félagsaðstaða félagssamtaka eldri borgara

Málsnúmer 2609015Vakta málsnúmer

Erindi vegna félagsaðstöðu eldri borgara á Siglufirði.
Lagt fram til kynningar
Á fundi öldungaráðs fyrr í vikunni kom fram að hugsanlega er húsnæði til staðar á Skálarhlíð sem hentar starfseminni. Velferðarnefnd fór í heimsókn á Skálarhlíð og telur að húsnæðið sem í boði er sé mjög gott fyrir þá starfsemi sem Félag eldri borgara á Siglufirði er að óska eftir.

4.Húsnæðismál félags eldri borgara Siglufjarðar

Málsnúmer 2609011Vakta málsnúmer

Erindi vegna húsnæðis fyrir eldra fólk í Fjallabyggð.
Lagt fram til kynningar
Velferðarnefnd tekur undir bókun öldungaráðs um að gerð verði könnun á þörf fyrir húsnæði fyrir eldra fólk. Nefndin mun á næstu vikum skoða þær íbúðir á Vallarbraut sem eru í eigu sveitarfélagsins.

5.Gulur september

Málsnúmer 2609017Vakta málsnúmer

Erindi frá landlækni - Gulur september
Lagt fram til kynningar
Velferðarnefnd vekur athygli á Gulum september og hvetur fyrirtæki, stofnanir, skóla, íþrótta- og félagasamtök og íbúa Fjallabyggðar til virkrar þátttöku í átakinu.

Sérstök áhersla er lögð á ungt fólk í ár og mikilvægi þess að ná til ungmenna þar sem þau eru, m.a. í skólum, íþrótta- og tómstundastarfi, félagsmiðstöðvum og á samfélagsmiðlum. Nefndin hvetur til þess að ungu fólki verði gefið tækifæri til að taka virkan þátt og skapa eigin verkefni í tengslum við átakið.

Velferðarnefnd hvetur jafnframt til fjölbreyttrar og sýnilegrar þátttöku í samfélaginu, svo sem með gulum dögum, viðburðum, samveru, tónlist og söng, skreytingum og öðrum skapandi verkefnum. Fyrirtæki og stofnanir eru hvött til að gera Gulan september sýnilegan á vinnustöðum og opinberum stöðum og vekja þannig athygli á mikilvægi geðræktar, sjálfsvígsforvarna, umhyggju og þess að vera til staðar hvert fyrir annað.

Nefndin hvetur íbúa til að kynna sér og taka þátt í þeim viðburðum sem haldnir verða í Gulum september.

6.Fundargerðir Farsældarráðs Norðurlands eystra

Málsnúmer 2512035Vakta málsnúmer

Fyrir liggur 7. fundargerð Farsældarráðs Norðurlands eystra.
Lagt fram til kynningar
Fundargerðin lögð fram til kynningar. Sviðsstjóri sagði einnig frá vel heppnuðum farsældardegi sem haldinn var í Hofi á Akureyri þann 4. september og mættu um 130 manns á af upptökusvæði SSNE.

Fundi slitið - kl. 18:00.