Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar

159. fundur 23. mars 2026 kl. 16:15 - 18:15 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Viktor Freyr Elísson formaður
  • Sandra Finnsdóttir aðalm.
  • Katrín Freysdóttir aðalm.
  • Bryndís Þorsteinsdóttir aðalm.
Starfsmenn
  • Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs

1.Uppsögn á starfi - skólastjóri

Málsnúmer 2603018Vakta málsnúmer

Skólastýra grunnskólans hefur lagt inn uppsögn á starfi sínu.
Samþykkt
Ása Björk Stefánsdóttir, skólastýra Grunnskóla Fjallabyggðar, hefur sagt starfi sínu lausu og lætur af störfum í vor. Fræðslu- og frístundanefnd þakkar Ásu góð störf og óskar henni velfarnaðar.

2.Skóladagatal Grunnskóla og leikskóla Fjallabyggðar 2026-2027

Málsnúmer 2603029Vakta málsnúmer

Fyrstu drög af skóladagatali næsta skólaárs.
Skólastjórar leik- og grunnskóla mæta á fundinn.
Lagt fram til kynningar
Fyrir liggja drög af skóladagatali leik- og grunnskólans vegna komandi skólaárs. Skólastjórum og sviðsstjóra falið að klára skóladagatal fyrir fund nefndarinnar í apríl.

3.Starfsaðstæður og skipulag í Leikskóla Fjallabyggðar

Málsnúmer 2410098Vakta málsnúmer

Niðurstöður könnunar vegna breytts skipulags í leikskóla Fjallabyggðar.
Leikskólastjóri mætti á fundinn.
Lagt fram til kynningar
Þegar farið var í breytingar á opnunartíma og gjaldskrá leikskólans var gert ráð fyrir að gera könnun meðal foreldra, atvinnulífs og starfsfólks. Starfshópurinn fékk Ásgarð til að framkvæma könnunina sem nú liggur fyrir. 88 foreldrar, 40 starfsmenn og 5 fyrirtæki svöruðu könnuninni.

Foreldrakönnun:
Niðurstöður úr foreldrakönnun sýna að tæplega helmingur foreldra sem svaraði könnununni telur föstudagslokun hafa haft talsverð neikvæð áhrif með tilliti til vinnu og afkomu. Um 39% telja að skráningadagar henti vel, 26% eru sátt við fyrirkomulagið en telja það of dýrt. Varðandi sex tíma vistun þá er meirihlutinn sem segir að vinnutíminn leyfi það ekki og sum segja að tekjutapið sé meira en sparnaðurinn. Tæp 41% höfðu ekki kynnt sér réttinn til tekjuafsláttar en tæp 50% sögðust ekki eiga rétt á slíkum afslætti.
Samantekið úr foreldrakönnunni má segja að sé óskin um lengri föstudagsopnun, auka þurfi sveigjanleika í sex tíma vistun og kostnaði við skráningardaga.
Einnig ber að geta þess að fram kom að núverandi fyrirkomulag væri gott og að breytingarnar hafi bætt mönnun og aukið stöðugleika.

Atvinnulífið:
Svör bárust frá fimm fyrirtækjum/stofnunum og samandregið má segja að áhrif styttri opnunar á föstudögum og skráningadagar hafi aukið fjarveru fólks úr vinnu. En 50% segja þó að þessi breyting hafi haft smávægileg áhrif á dagleg störf en 67% segja að föstudagsopnun henti illa.
Þrátt fyrir þetta eru 60% sem svara því til að núverandi kerfi henti betur en 40% vilja meiri sveigjanleika og jafnari opnun.

Starfsfólk:
Yfirgnæfandi meirihluti starfsfólks er ánægður með breytingarnar og telja vinnuálagið aðeins minna. Nær öll telja að föstudagslokunin sé af hinu góða og nýtist til styttingar vinnuvikunnar. Breytingin hefur haft mikil áhrif og fólk betur í stakk búið að takast á við veikindi og forföll - samheldnin hefur aukist. Skráningadagarnir og lokun milli jóla og nýárs nýtast vel til frítöku. Helst ber að geta að huga þarf enn frekar að svigrúmi til faglegs undirbúnings skólastarfs.
Starfsfólk telur að breytingarnir skili minni streitu, betri mönnun og betra faglegu starfi þrátt fyrir ýmsar áskoranir. Börnin eru almennt ánægðari og meiri ró í húsunum.

Tillögur frá leikskólastjóra eru að: 30 tíma vistun verði gjaldfrjáls og fari vistun fram úr þeim tíma greiðist fullt gjald fyrir alla vistun.
Aðrar breytingar sem hægt er að gera til að mæta því sem fram kom í könnunni er að gera 30 tíma vistunina sveigjanlegri yfir vikuna en lagt til að áfram verði lokað kl. 14 á föstudögum.

Leikskólinn mun funda með foreldarráði í vikunni.


4.Grunnskóli Fjallabyggðar - Skipulag starfsstöðva

Málsnúmer 2101023Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri leggur til að vinnu verði framhaldið vegna húsnæðismála og fyrirkomulags bekkjardeilda grunnskólans.
Samþykkt
Sviðsstjóri telur mikilvægt að áfram verði unnið að því að færa 5. bekk að Tjarnarstíg og huga að breytingum sem gera þarf vegna þess. Nefndin tekur undir það og felur sviðsstjóra að koma með tillögur í lok apríl.

5.Sálfræðiþjónusta í grunnskólanum

Málsnúmer 2511047Vakta málsnúmer

Drög af samningi vegna sálfræðiþjónustu.
Samþykkt
Fyrir liggur samningur við Metis sálfræðiþjónustu en eins og kunnugt er varð breyting á þegar Sálfræðiþjónusta Norðurlands hafði ekki lengur tök á að sinna verkefnum frá Fjallabyggð.
Nefndin samþykkir framlögð drög af samningi og vísar til bæjarráðs.

6.Frigg nemendaskrá

Málsnúmer 2507025Vakta málsnúmer

Nýr nemendagrunnur er farinn í loftið.
Lagt fram til kynningar
Nýr nemendagrunnur fór í loftið nú í mars og fer nú öll innritun í 1. bekk fram í gegnum grunninn.

7.Áskorun frá Siglingasambandi Íslands - verndun og aðgengi að strandlengju Íslands

Málsnúmer 2603008Vakta málsnúmer

Erindi frá Siglingasambandi Íslands
Lagt fram til kynningar
Siglingasamband Íslands hvetur sveitarstjórnir til að tryggja félögum sem stunda sjótengda starfsemi viðunandi aðstöðu, aðgang að sjó, aðstöðu til geymslu búnaðar og gera ráð fyrir starfsemi þeirra í skipulagi.

Jafnframt vill SÍL vekja athygli á mikilvægi þess að sveitarfélög styðji markvisst við íþróttafélög og aðra starfsemi sem nýtir sjó og strönd. Siglingar, róður, kajak, brimbretti og sjósund efla lýðheilsu, færni og auka tengsl fólks við náttúruna.

8.Starfsaðstæður og skipulag í Leikskóla Fjallabyggðar

Málsnúmer 2410098Vakta málsnúmer

Fundargerðir um starfsaðstæður og skipulag í leikskóla Fjallabyggðar.
Lagt fram til kynningar
Fyrir liggja fundargerðir starfshóps um starfsaðstæður og skipulag í Leikskóla Fjallabyggðar.

9.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2026

Málsnúmer 2601001Vakta málsnúmer

Fundargerðir ungmennaráðs Fjallabyggðar.
Lagt fram til kynningar
Fyrir liggja fundargerðir 44. og 45. fundar frá ungmennaráði. Sviðsstjóri vekur athygli á lið 1 í fyrri fundargerðinni þar sem ungmennaráðsfulltrúar ræddu um tækjaskort til náttúrufræðikennslu í grunnskólanum og eins hugmyndir að tilfærslu 10. bekkjar í MTR. Nemendur ætla að ræða málin áfram meðal sinna félaga.

10.Fundargerðir Farsældarráðs Norðurlands eystra

Málsnúmer 2512035Vakta málsnúmer

Fyrir liggja fundargerðir 3. og 4. funda Farsældarráðs Norðurlands eystra.
Lagt fram til kynningar
Sviðsstjóri kynnti fundargerðir Farsældarráðs Norðurlands eystra.

Fundi slitið - kl. 18:15.