Velferðarnefnd Fjallabyggðar

8. fundur 24. apríl 2026 kl. 09:00 - 10:00 Bylgjubyggð 2b, Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Sæbjörg Ágústsdóttir formaður
  • Ólöf Rún Ólafsdóttir aðalm.
  • Guðrún Linda Rafnsdóttir aðalm.
  • S. Guðrún Hauksdóttir Varamaður
Starfsmenn
  • Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs

1.þjónustusamningur milli Fjallabyggðar og Heilbrigðisstofnunar Norðurlands

Málsnúmer 2009005Vakta málsnúmer

Fyrir liggja samningar við HSN vegna ferlibíls og notkun hans fyrir skjólstæðinga félagsþjónustunnar sem og hvernig heimkeyrslu með matarbakka er háttað.
Þá liggur fyrir samningur um dagdvöl aldraðra sem fram fer m.a. í húsakynnum HSN í Hornbrekku.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar.

2.Samningur Lyfju vegna Hornbrekku

Málsnúmer 2604027Vakta málsnúmer

Samningur Lyfju vegna Hornbrekku.
Lagt fram til kynningar
Samningur Lyfju vegna Hornbrekku lagður fram til kynningar.

3.Fundur vegna Hornbrekku

Málsnúmer 2604043Vakta málsnúmer

Fyrir liggja tvær fundargerðir þar sem Fjallabyggð, HSN og Kjölur funduðu vegna flutnings starfsfólks frá Fjallabyggð til HSN.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar.

4.Sambýlið -breyting á störfum og verksviði

Málsnúmer 2603043Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fór yfir fund sem haldinn var með Einingu-Iðju, starfsfólki Sambýlisins ásamt starfsfólki velferðarsviðs Fjallabyggðar vegna breytinga sem hefur orðið á starfseminni.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar.

5.Frístundamál barna með sérþarfir

Málsnúmer 2603042Vakta málsnúmer

Erindi frá þrem starfsmönnum Grunnskóla Fjallabyggðar þar sem hvatt er til þess að börn með sérþarfir sé enn betur mætt þegar kemur að frístund sem er eftir hefðbundinn skóladag. Þessi börn eigi ekki alltaf samleið í hefðbundnu frístundastarfi og nauðsynlegt sé að reyna að aðlaga starfið betur að þeirra þörfum.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Nefndin þakkar fyrir ábendingarnar og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.

6.Fundargerðir Farsældarráðs Norðurlands eystra

Málsnúmer 2512035Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundargerð 5. fundar Farsældarráðs Norðurlands eystra. Þar kemur m.a. fram að fulltrúar Ungmennaráðs Fjallabyggðar, þær Hanna Valdís Hólmarsdóttir og Jana Katrín Merenda, kynntu starfsemi ráðsins fyrir nefndarfólki.
Vilborg Þórarinsdóttir var einnig gestur fundarins og fór yfir starfsemi Barnaverndarþjónustu Norðurlands eystra.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:00.