Velferðarnefnd Fjallabyggðar

12. fundur 08. október 2026 kl. 16:15 - 18:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Kristín Ágústa Eiðsdóttir aðalm.
  • Sæunn Gísladóttir formaður
  • Auður Ösp Hlíðdal Magnúsdóttir aðalm.
  • Guðlaugur Magnús Ingason aðalm.
  • Björk Óladóttir aðalm.
Starfsmenn
  • Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir Sviðsstjóri velferðarsviðs

1.Heimsókn á Hornbrekku í dagdvöl

Málsnúmer 2610028Vakta málsnúmer

Nefndin fór í heimsókn á Hornbrekku.
Samþykkt
Nefndarmenn fóru í heimsókn og skoðuðu aðstöðu dagdvalar á Hornbrekku. Gerður sem hefur umsjón með starfinu fór yfir og sýndi nefndarmönnum aðstöðuna og sagði frá óskum um betri búnað og aukið rými. Viðræður standa yfir við HSN um rými og horft verður til búnaðaróska nú við gerð fjárhagsáætlunar.

2.Beiðni um tímabundna framlengingu á núgildandi samningi um sveigjanlega dagdvöl í Fjallabyggð

Málsnúmer 2609085Vakta málsnúmer

Ósk um framlengingu samnings vegna sveigjanlegrar dagdvalar við SÍ.
Lagt fram til kynningar
Sjúkratryggingar Íslands hafa samþykkt framlengingu á samningi vegna sveigjanlegrar dagdvalar í Fjallabyggð.

3.Styrkir til sveitarfélaga í þágu farsældar barna

Málsnúmer 2609072Vakta málsnúmer

Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsir styrki til sveitarfélaga í þágu farsældar barna. Styrkirnir eru hluti af aðgerðum stjórnvalda gegn ofbeldi meðal barna og ofbeldi gegn börnum og styðja jafnframt við framkvæmd laga nr. 86/2021 um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Sérstök áhersla er lögð á forvarnir, snemmtækan stuðning og aukið öryggi barna.
Lagt fram til kynningar
Sviðsstjóra falið að vinna að styrkumsókn þar sem horft er til fjölþætts vanda barna og aukinni félagslegri þátttöku barna.

4.Fjölmenningardagur VMST

Málsnúmer 2609028Vakta málsnúmer

Skýrsla vegna fjölmenningardags VMST lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar
Skýrslan lögð fram til kynningar. Sviðsstjóri nefndi fjölmenningarverkefni sem er nú til sýnis í Brimsölum og því fylgir heimasíða og rafbók.

https://read.bookcreator.com/shiPz10AFrZFg1IxWzHHwx1FxSY2/9TvO0GyMQNGNiFAK6e7nmg/ENFQZjRdTiiLzFGGzOGJdg?utm_source=chatgpt.com

5.Drög að stefnu í áfengis- og vímuvarnamálum til 2035

Málsnúmer 2609058Vakta málsnúmer

Skýrsla starfshóps heilbrigðisráðuneytisins um stefnu í áfengis- og vímuvarnarmálum til 2035.
Lagt fram til kynningar
Nefndarmenn telja mikilvægt að horfa til þessarar stefnu þegar kemur að vinnu Fjallabyggðar við lýðheilsu- og forvarnarstefnu.

6.Fundargerðir Farsældarráðs Norðurlands eystra

Málsnúmer 2512035Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundargerð Farsældarráðs NE.
Lagt fram til kynningar
8. fundargerð Farsældarráðs lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 18:00.