Bæjarstjórn Fjallabyggðar

264. fundur 27. nóvember 2025 kl. 17:00 - 18:15 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • S. Guðrún Hauksdóttir forseti
  • Tómas Atli Einarsson 2. varaforseti
  • Helgi Jóhannsson aðalfulltrúi
  • Guðjón M. Ólafsson 1. varaforseti
  • Sæbjörg Ágústsdóttir aðalfulltrúi
  • Þorgeir Bjarnason aðalfulltrúi
  • Arnar Þór Stefánsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Í upphafi fundar bar forseti upp tillögu þess efnis að taka til afgreiðslu með afbrigðum boðun borgarafundar í samræmi við 105.grein sveitarstjórnarlaga til kynningar á fjárhagsáætlun og framkvæmdum ársins 2026.

Samþykkt með 7 samhljóða atkvæðum að taka til afgreiðslu boðun borgarafundar.

Bæjarstjóri greindi frá fundargerðum bæjarráðs sem teknar eru fyrir á fundinum.

1.Bæjarráð Fjallabyggðar - 897. fundur - 6. nóvember 2025

Málsnúmer 2511001FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 12 liðum og er borin upp í heild sinni að undanskildum liðum 3, 4 og 5, sem bornir eru upp sérstaklega.
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni að undanskildum liðum 3, 4 og 5 samþykkt með 7 atkvæðum.
  • 1.3 2508056 Styrkumsóknir 2026 - Menningarmál
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 897. fundur - 6. nóvember 2025 Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við tillögu nefndarinnar og vísar henni til seinni umræðu bæjarstjórnar um fjárhagsáætlun 2026. Endanleg úthlutun verður tilkynnt umsækjendum í byrjun janúar 2026. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir tillögu um úthlutun styrkja til menningarmála í Fjallabyggð árið 2026 með 7 atkvæðum. Úthlutunin verður tilkynnt umsækjendum í byrjun janúar 2026.
  • 1.4 2508053 Styrkumsóknir 2026 - Hátíðarhöld og stærri viðburðir í Fjallabyggð
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 897. fundur - 6. nóvember 2025 Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við tillögu nefndarinnar og vísar henni til seinni umræðu bæjarstjórnar um fjárhagsáætlun 2026. Endanleg úthlutun verður tilkynnt umsækjendum í byrjun janúar 2026. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir tillögu um úthlutun styrkja til hátíðarhalda og stærri viðburða í Fjallabyggð árið 2026 með 7 atkvæðum. Úthlutunin verður tilkynnt umsækjendum í byrjun janúar 2026.
  • 1.5 2508054 Styrkumsóknir 2025 - Rekstrarstyrkir til safna og setra.
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 897. fundur - 6. nóvember 2025 Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við tillögu nefndarinnar og vísar henni til seinni umræðu bæjarstjórnar um fjárhagsáætlun 2026. Endanleg úthlutun verður tilkynnt umsækjendum í byrjun janúar 2026. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir tillögu um úthlutun rekstrarstyrkja til safna og setra árið 2026 með 7 atkvæðum. Úthlutunin verður tilkynnt umsækjendum í byrjun janúar 2026.

2.Bæjarráð Fjallabyggðar - 898. fundur - 13. nóvember 2025

Málsnúmer 2511005FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 7 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Til máls tóku Helgi Jóhannsson, S.Guðrún Hauksdóttir og Guðjón M. Ólafsson.

Fundargerðin í heild sinni samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.

3.Bæjarráð Fjallabyggðar - 899. fundur - 20. nóvember 2025.

Málsnúmer 2511011FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 17 liðum og er borin upp í heild sinni að undanskildum liðum 2-10 að báðum liðum meðtöldum, sem bornir eru upp sérstaklega.
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni að undanskildum liðum 2 - 10 samþykkt með 7 atkvæðum.
  • 3.2 2511030 Reglur um afslátt af fasteignaskatti árið 2026
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 899. fundur - 20. nóvember 2025. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að reglum um afslátt af fasteignaskatti og vísar til afgreiðslu bæjarstjórnar. Bókun fundar Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 7 atkvæðum.
  • 3.3 2510002 Umsókn um styrk eða framlag úr bæjarsjóði
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 899. fundur - 20. nóvember 2025. Bæjarráð þakkar F-61 fyrir umsóknina. Bæjarráð getur ekki orðið við umsókninni en hvetur F-61 til þess að sækja um í uppbyggingarsjóð landshlutans, enda sé sá sjóður ætlaður fyrir verkefni sem þessi. Bókun fundar Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 7 atkvæðum.
  • 3.4 2509115 Umsókn um styrk eða framlag úr bæjarsjóði
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 899. fundur - 20. nóvember 2025. Bæjarráð gerir ráð fyrir kaupum á slátturóbota á árinu 2026 í fyrirliggjandi fjárfestingatillögu og felur bæjarstjóra að óska eftir viðræðum við Golfklúbb Fjallabyggðar um hugsanlega samnýtingu. Bókun fundar Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 7 atkvæðum.
  • 3.5 2509108 Umsókn um styrk eða framlag úr bæjarsjóði
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 899. fundur - 20. nóvember 2025. Bæjarráð samþykkir umsókn TBS um frí afnot af íþróttahúsinu á Siglufirði á næsta ári í tengslum við Unglingamót TBS. Bókun fundar Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 7 atkvæðum.
  • 3.6 2509112 Umsókn um styrk eða framlag úr bæjarsjóði
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 899. fundur - 20. nóvember 2025. Bæjarráð vísar til fyrri ákvarðana sinna og felur bæjarstjóra að afgreiða málið. Bókun fundar Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 7 atkvæðum.
  • 3.7 2509113 Umsókn um styrk eða framlag úr bæjarsjóði
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 899. fundur - 20. nóvember 2025. Bæjarráð samþykkir umsókn Blakfélags Fjallabyggðar um frí afnot af íþróttamannvirkjum í Fjallabyggð vegna viðburða og mótahalds árið 2026. Bókun fundar Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 7 atkvæðum.
  • 3.8 2509022 Styrkumsókn - Félag fósturforeldra
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 899. fundur - 20. nóvember 2025. Bæjarráð samþykkir að veita Félagi fósturforeldra kr. 50.000 styrk vegna ársins 2026. Bókun fundar Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 7 atkvæðum.
  • 3.9 2509008 Styrkumsókn fyrir árið 2026 - Stígamót
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 899. fundur - 20. nóvember 2025. Bæjarráð samþykkir að veita Stígamótum kr. 200.000 í rekstrarstyrk vegna ársins 2026. Bókun fundar Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 7 atkvæðum.
  • 3.10 2507003 Umsókn um styrk - félag eldri borgara í Fjallabyggð
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 899. fundur - 20. nóvember 2025. Bæjarráð samþykkir að veita félögum eldri borgara í Fjallabyggð kr. 500.000 styrk á hvort félag fyrir árið 2026, samtals kr. 1.000.000. Bókun fundar Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 7 atkvæðum.

4.Bæjarráð Fjallabyggðar - 900. fundur - 25. nóvember 2025

Málsnúmer 2511013FVakta málsnúmer

Báðir liðir fundargerðarinnar eru sérstakir liðir á dagskrá fundarins og verða afgreiddir sérstaklega.

5.Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 156. fundur - 10. nóvember 2025

Málsnúmer 2511004FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í þremur liðum og er borin upp í heild sinni að undanskildum lið 1 sem borin er upp sérstaklega.
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni að undanskildum lið 1 samþykkt með 7 atkvæðum.
  • 5.1 2509018 Fjárhagsáætlun 2026 og þriggja ára áætlun 2027-2029
    Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 156. fundur - 10. nóvember 2025 Fyrir liggur tillaga að rammaáætlun fjárhagsáætlunar Fjallabyggðar fyrir þá málaflokka er undir nefndina heyra.

    Skarphéðinn Þórsson forstöðumaður íþróttamiðstöðvar, Ása Björk Stefánsdóttir skólastjóri grunnskóla og Kristín María Hlökk Karlsdóttir skólastjóri leikskóla sátu undir þessum dagskrárlið. Þau fóru yfir helstu tölur í fjárhagsáætlun stofnana sinna og fyrirhugað viðhald og framkvæmdir.

    Einnig fóru þau yfir það viðhald og þær framkvæmdir sem búið er að fara í á yfirstandandi ári.

    Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu að rammaáætlun fjárhagsáætlunar Fjallabyggðar fyrir árið 2026 fyrir sitt leyti en bendir á eftirfarandi þætti:


    Nefndaramenn ítreka það að leysa þarf úr húsnæðismálum Leikhóla sem allra fyrst enda ljóst að húsnæðið annar ekki þeim fjölda sem nú þegar er til staðar og von er á fjölgun umsókna um leikskólavist á nýju ári.

    Einnig hvetja nefndarmenn bæjarstjórn að skoða af alvöru gjaldfrjálsan leikskóla í Fjallabyggð.

    Ekki hefur enn orðið af fyrirhuguðum flutningi 5. bekkjar Grunnskóla Fjallabyggðar yfir í Ólafsfjörð. Nefndarmenn hvetja til þess að unnið verði með opnum huga að lausn fyrir næsta skólaár þannig að hægt verði að klára sameiningu miðstigsins.

    Nefndarmenn brýna bæjarstjórn til góðra verka þegar kemur að viðhaldi stofnana bæjarins og búnaðarkaupum og hvetja til að 3 ára áætlun verði nýtt til þess.

    Eins og á yfirstandandi ári leggja nefndarmenn til að sett verði fjármagn í pop-up frístundastyrki ætlað til styrktar námskeiðum fyrir börn, aðallega yfir sumartímann, 1.500.000 kr. Það er mikil vöntun á afþreyingu fyrir börn yfir sumartímann og pop-up styrkir gætu virkað hvetjandi fyrir félög og einstaklinga að halda námskeið.

    Nefndarmenn telja skynsamlegt að setja inn hvata til sameiningar allra íþróttafélaga undir eitt merki, með það fyrir augum að allir séu í eins búningum og utan yfir fatnaði, til hagræðingar fyrir fjölskyldufólk.
    Bókun fundar Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar með 7 atkvæðum.

6.Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 121. fundur - 13. nóvember 2025

Málsnúmer 2511003FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 5 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Til máls tóku Helgi Jóhannsson, Arnar Þór Stefánsson og S. Guðrún Hauksdóttir.

Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.

7.Velferðarnefnd Fjallabyggðar - 4. fundur - 13. nóvember 2025

Málsnúmer 2511008FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í tveimur liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.

8.Framkvæmda-, hafna- og veitunefnd Fjallabyggðar - 4. fundur - 18. nóvember 2025.

Málsnúmer 2511006FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 6 liðum og er borin upp í heild sinni að undanskildum lið 2 sem borinn er upp sérstaklega.
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni að undanskildum lið 2 samþykkt með 7 atkvæðum.
  • 8.2 2509016 Gjaldskrár 2026
    Framkvæmda-, hafna- og veitunefnd Fjallabyggðar - 4. fundur - 18. nóvember 2025. Nefndin samþykkir fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá Fjallabyggðar fyrir árið 2026 og vísar henni til afgreiðslu í bæjarstjórn. Bókun fundar Bæjarstjórn staðfestir framlagða tillögu að gjaldskrá Fjallabyggðarhafna fyrir árið 2026 með 7 atkvæðum.

9.Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 328. fundur - 19. nóvember 2025

Málsnúmer 2511009FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 7 liðum og er borin upp í heild sinni að undanskildum lið 1 sem borinn er upp sérstaklega.
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni að undanskildum lið 1 samþykkt með 7 atkvæðum.
  • 9.1 2411088 Breyting á deilskipulagi vegna vetrarbraut 8-10
    Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 328. fundur - 19. nóvember 2025 Formaður vék af fundi við afgreiðslu málsins.

    Nefndin tekur jákvætt í erindið og heimilar Sunnu ehf. að vinna breytingar á deiliskipulagi. Nefndin tekur ekki afstöðu að svo stöddu til umfangs breytingarinnar.
    Bókun fundar Arnar Þór Stefánsson vék af fundi við afgreiðslu þessa liðar.

    Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar með 6 samhljóða atkvæðum.

10.Álagningarforsendur fasteignagjalda 2026

Málsnúmer 2510037Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga að álagningarforsendum fasteignagjalda fyrir árið 2026 eins og hún er lögð fram í fjárhagsáætlun ársins.
Samþykkt
Bæjarstjórn staðfestir álagningarreglur fasteignagjalda í Fjallabyggð fyrir árið 2026 með 7 atkvæðum.

11.Fjárhagsáætlun 2026 og þriggja ára áætlun 2027-2029

Málsnúmer 2509018Vakta málsnúmer

Á 900.fundi bæjarráðs var fyrirliggjandi tillögu að fjárhagsáætlun fyrir árið 2026, þriggja ára áætlun 2027-2029 og fjárfestingaáætlun, vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn með áorðnum breytingum frá fyrri umræðu.

Fjárhagsáætlun Fjallabyggðar fyrir árið 2026 er lögð fram til seinni umræðu ásamt þriggja ára áætlun fyrir árin 2027-2029 og framkvæmda- og fjárfestingaáætlun.

Fjárhagsáætlunin er sett fram í samræmi við 62. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, fyrir A-hluta og samantekinn reikning fyrir A- og B-hluta. Í A-hluta er Aðalsjóður auk Þjónustumiðstöðvar og Eignasjóðs. Í B-hluta eru Veitustofnun, Hafnarsjóður, Íbúðasjóður og Hornbrekka, auk hlutdeildarfélaga sem koma inn í reikningsskil sveitarfélagsins eftir hlutfallslegri ábyrgð bæjarfélagsins. Áætlunin sýnir rekstraráætlun, áætlaðan efnahagsreikning og sjóðsstreymi fyrir sveitarfélagið og stofnanir þess.


Helstu niðurstöður fjárhagsáætlunar fyrir árið 2026 gera ráð fyrir að rekstrartekjur Fjallabyggðar nemi 4.642 m.kr. hjá samstæðunni í heild, A- og B-hluta, þar af eru rekstrartekjur A hluta áætlaðar 4.052 m.kr. Rekstrargjöld án fjármagnsliða og afskrifta eru áætluð 4.318 m.kr., þar af A-hluti 3.812 m.kr.

Rekstrarhagnaður A- og B-hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði er áætlaður 324 m.kr. Afskriftir nema 263 m.kr. og fjármagnsgjöld umfram fjármagnstekjur 8,5 m.kr.
Rekstrarafgangur samstæðunnar í heild A- og B-hluta er áætlaður samtals 51,6 m.kr. Rekstrarhagnaður A-hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði er áætlaður 239 m.kr. Afskriftir nema 201 m.kr. Fjármagnstekjur umfram fjármagnsgjöld nema 30 m.kr. Rekstrarniðurstaða A-hluta sveitarsjóðs er því áætluð jákvæð um 58 m.kr.

Eignir Fjallabyggðar eru áætlaðar í árslok 2026, 8.263 m.kr., þar af eru eignir A-hluta 7.688 m.kr. Skuldir og skuldbindingar eru áætlaðar í árslok 3.258 m.kr.

Eigið fé er áætlað 5.006 m.kr hjá samstæðunni og eiginfjárhlutfall 60,6%. Veltufé frá rekstri samstæðunnar A- og B-hluta verði samtals 522 m.kr.
Skuldaviðmið Fjallabyggðar samkvæmt reglugerð 502/2012 verður samkvæmt áætlun 42,2%% árið 2026.

Helstu niðurstöður áætlunar fyrir árin 2027-2029 hvað samstæðuna varðar eru að áætlaðar tekjur 2027 eru 4.816 m.kr., fyrir árið 2028 4.996 m.kr. og fyrir árið 2029 5.182 m.kr.
Rekstrarniðurstaða samstæðunnar er áætluð jákvæð fyrir árið 2027 um 101 m.kr., fyrir árið 2028 um 131 m.kr. og fyrir árið 2029 um 164 m.kr.
Gert er ráð fyrir að veltufé frá rekstri fyrir árið 2027 verði 544 m.kr., fyrir árið 2028 verði það 578 m.kr. og fyrir árið 2029 verði það 614 m.kr.
Samþykkt
Á fundi bæjarráðs þann 25. nóvember síðastliðinn var fjárhagsáætlun fyrir 2026 auk þriggja ára áætlunar 2027-2029 ásamt fjárfestingaáætlun vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn með áorðnum breytingum frá fyrri umræðu í bæjarstjórn.

Framlögð áætlun byggir á eftirfarandi meginforsendum:
- Útsvarsprósenta er óbreytt milli ára þ.e. 14,93%.
- Álagningarhlutföll fasteignaskatts
*Álagningarhlutfall fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði lækkar og verður 0,44 af heildarfasteignamati
*B-flokkur helst óbreyttur eða 1,32% af heildar fasteignamati
*C-flokkur helst óbreyttur eða 1,57% af heildar fasteignamati
- Lóðarleiga
*Lóðarleiga íbúðarhúsa, bifreiðageymslna og félagsheimila lækkar og verður 1,2% af lóðarhlutamati
*Lóðarleiga af öðrum lóðum verður óbreytt eða 3,33% af lóðarhlutamati

- Sorphirðugjald
*Sorphirðugjald íbúðarhúsnæðis lækkar í 85.000 kr. á hverja íbúð

- Fráveitugjald og vatnsgjald
*Fráveitugjald lækkar og verður 0,24% af heilar fasteignamati
*Vatnsgjald lækkar og verður 0,24% af heildar fasteignamati

- Hækkun útsvarstekna er áætluð í samræmi við áætlun Sambands íslenskra sveitarfélaga og hækkar um 5,3% frá útkomuspá
- Gjaldskrár hækka almennt um 4%
- Afsláttur af fasteignaskatti hjá tekjulágum elli- og örorkulífeyrisþegum hækkar, og verður að hámarki kr. 110.000, ásamt því að tekjumörk fyrir afslætti hækka í samræmi við launavísitölu
- Frístundastyrkur fyrir börn á aldrinum 4 - 18 ára hækkar í kr. 52.000 úr kr. 50.000
- Laun hækka í samræmi við gildandi kjarasamninga

Hvað varðar framkvæmdir og viðhald eigna á komandi ári, er gert ráð fyrir að fjárfestingageta sveitarfélagsins nemi um 522 milljónum króna auk þess sem gert er ráð fyrir lántöku allt að 400 milljónum sem að hluta er gert ráð fyrir að færist á árið 2027 til fjárfestinga. Gert er ráð fyrir því að ríflega 20 milljónum meira verði varið í viðhald á árinu 2026 en áætlað var á árinu 2025 og er sérstök áhersla á skólahúsnæði bæði grunnskóla og leikskóla.

Þrátt fyrir lækkun fasteignagjalda á íbúðarhúsnæði stendur bæjarsjóður sterkt og rekstrarafkoma vel ásættanleg en bæjarfulltrúar hafa verið sammála um að koma til móts við bæjarbúa með lækkun álagningarhlutfalls á íbúðarhúsnæði í ljósi umtalsverðar hækkunar fasteignamats á árinu.

Bæjarstjórn samþykkir að farið verði í eftirfarandi stærri framkvæmdir á árinu 2026:

- Uppbygging þjóðvegar í gegnum Ólafsfjörð ásamt gangstéttarframkvæmdum
- Endurbætur á lagna- og tæknirými í sundlauginni á Siglufirði
- Uppbygging knatthúss á æfingasvæði KF í Ólafsfirði
- Viðbygging við leikskólann í Ólafsfirði
- Endurbætur á skólahúsnæði við Norðurgötu á Siglufirði
- Malbikun á Ránargötu og við kirkjugarð við Saurbæjarás
- Framkvæmdir við nýjan kirkjugarð í Ólafsfirði
- Framkvæmdir við Skálarhlíð, múrviðgerðir, endurnýjun eldhúss og fleira
- Framkvæmdir við vatnsveitu í Ólafsfirði og eftirlitskerfi vatns- og fráveitu í báðum byggðarkjörnum
- Gangstéttarframkvæmdir í báðum byggðarkjörnum
- Frágangur á tjaldsvæðinu í Ólafsfirði
- Hönnun á göngustígum í Ólafsfirði og malbikun og lýsing á göngustíg við ósinn í Ólafsfirði
- Auk þessa ýmis smærri verkefni
Að lokum vill forseti, fyrir hönd bæjarstjórnar, koma á framfæri þökkum til bæjarstjóra, nefndarmanna og starfsmanna sveitarfélagsins fyrir þeirra aðkomu að gerð fjárhagsáætlunar og ánægjulegs samstarfs og óskar íbúum Fjallabyggðar ánægjulegrar hátíðar sem senn gengur í garð.

Til máls tóku S.Guðrún Hauksdóttir, Helgi Jóhannsson, Guðjón M. Ólafsson og Tómas Atli Einarsson.

Fjárhagsáætlun 2026 og þriggja ára áætlun 2027-2029 ásamt fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun ársins 2026 samþykkt með 7 samhljóða atkvæðum.


Helgi Jóhannsson og Þorgeir Bjarnason, fulltrúar H-lista óskuðu eftir eftirfarandi bókun:

Hér liggur fyrir bæjarstjórn fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 og þriggja ára áætlun.
H-listinn kom að gerð áætlunarinnar á vinnufundum bæjarstjórnar og í nefndum og ráðum. Stærsta einstaka framkvæmd næsta árs er bygging knatthúss á æfingasvæðinu við Ólafsfjarðarvöll. H- listinn er þess fullviss að þessi bætta aðstaða fyrir knattspyrnuiðkun muni verða gríðarleg lyftistöng fyrir íþróttina í Fjallabyggð og mun einnig nýtast fyrir aðrar íþróttagreinar og viðburði. Þrátt fyrir að fara þurfi í lántöku vegna þessa verkefnis þá er sveitarfélagið vel í stakk búið að takast á við það og með því skerðist ekki heldur það fé sem þarf til framkvæmda og viðhalds. Það er engin launung að viðhaldsskuld hefur safnast víða upp í gegnum árin sem taka þarf á.

Eitt að því sem H- listinn vill að tekið verði fastari tökum á næsta ári er flutningur á 5. bekk. Því miður hefur þetta mál ekki verið leitt í jörð og er komin tími til að teknar verði ákvarðanir sem uppfylla þá faglegu ákvörðun sem tekin var á sínum tíma að stefna að þessu.
Eins og gengur þá er ýmislegt sem við í H- listanum höfum viljað sjá komast til framkvæmda en ekki náðist í gegn. Við teljum niðurstöðuna vera ásættanlega en höfum gert fyrirvara um nokkur atriði sem gæti þurft að endurskoða á komandi ári.
Við viljum að lokum þakka samstarfsfólki okkar í bæjarstjórn, bæjarstjóra, nefndarfólki og öllum öðrum starfsmönnum sem komu að gerð þessarar fjárhagsáætlunar fyrir samstarfið.

12.Lántaka hjá Lánasjóði sveitarfélaga árið 2026

Málsnúmer 2511033Vakta málsnúmer

Á 900.fundi bæjarráðs þann 25.nóvember var samþykkt að leggja til við bæjarstjórn Fjallabyggðar að veitt verði heimild til lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga árið 2026 til fjárfestinga og framkvæmda.
Samþykkt
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 7 atkvæðum.

13.Boðun borgarafundar 2025

Málsnúmer 2511054Vakta málsnúmer

Tekin er til afgreiðslu tillaga um boðun borgarafundar í desember 2025 vegna fjárhagsáætlunar 2026.
Samþykkt
Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum að boða til opins borgarafundar þann 9.desember n.k. í samræmi við 105.grein sveitarstjórnarlaga þar sem kynnt verður fjárhagsáætlun Fjallabyggðar fyrir árið 2026 og helstu framkvæmdir. Bæjarstjóra falið að boða til fundarins með löglegum fyrirvara.

14.Ályktun um atvinnumál 2025

Málsnúmer 2511053Vakta málsnúmer

Lögð fram ályktun bæjarstjórnar vegna atvinnumála.
Samþykkt
Bæjarstjórn Fjallabyggðar samþykkir eftirfarandi ályktun með 7 atkvæðum.

Bæjarstjórn Fjallabyggðar harmar þá stöðu sem fyrirtækið Vélfag, sem stofnað var á Ólafsfirði fyrir 30 árum, er komið í og uppsagnir starfsmanna í kjölfar þeirrar stöðu. Fyrirtækið Vélfag hefur skapað mikilvæg tækni- og nýsköpunarstörf í sveitarfélaginu Fjallabyggð, störf sem eru smærri sveitarfélögum einstaklega mikilvæg, og byggt upp atvinnustarfsemi sem sinnir viðskiptavinum um allan heim. Bæjarstjórn Fjallabyggðar vonast til þess að ásættanleg niðurstaða náist í málefnum fyrirtækisins þannig að starfsemi þess geti haldið áfram að þróast og skapa mikilvæg störf.

Fundi slitið - kl. 18:15.