Ályktun um atvinnumál 2025

Málsnúmer 2511053

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 264. fundur - 27.11.2025

Lögð fram ályktun bæjarstjórnar vegna atvinnumála.
Samþykkt
Bæjarstjórn Fjallabyggðar samþykkir eftirfarandi ályktun með 7 atkvæðum.

Bæjarstjórn Fjallabyggðar harmar þá stöðu sem fyrirtækið Vélfag, sem stofnað var á Ólafsfirði fyrir 30 árum, er komið í og uppsagnir starfsmanna í kjölfar þeirrar stöðu. Fyrirtækið Vélfag hefur skapað mikilvæg tækni- og nýsköpunarstörf í sveitarfélaginu Fjallabyggð, störf sem eru smærri sveitarfélögum einstaklega mikilvæg, og byggt upp atvinnustarfsemi sem sinnir viðskiptavinum um allan heim. Bæjarstjórn Fjallabyggðar vonast til þess að ásættanleg niðurstaða náist í málefnum fyrirtækisins þannig að starfsemi þess geti haldið áfram að þróast og skapa mikilvæg störf.