Bæjarráð Fjallabyggðar

448. fundur 06. júní 2016 kl. 11:30 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Steinunn María Sveinsdóttir formaður, S lista
  • Kristinn Kristjánsson varaformaður, F lista
  • Helga Helgadóttir aðalmaður, D lista
  • Sólrún Júlíusdóttir áheyrnarfulltrúi, B lista
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála

1.Samstarf með Dalvíkurbyggð - tónskóli

Málsnúmer 1410044Vakta málsnúmer

Lögð fram skýrsla um úttekt á hugsanlegri sameiningu Tónskóla Fjallabyggðar og Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar sem unnin var af Kristni J. Reimarssyni, deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála í Fjallabyggð og Hlyni Sigursveinssyni, sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs í Dalvíkurbyggð.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að ræða við bæjarstjóra Dalvíkurbyggðar um athugasemdir sem fram komu á fundinum í tengslum við úttektina.

2.Staðgreiðsla tímabils 2016

Málsnúmer 1603055Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir staðgreiðslu útsvars á tímabilinu 1. janúar til 31. maí 2016.

Innborganir nema kr. 400,9 milljónum sem er 96,7% af tímabilsáætlun, sem gerði ráð fyrir 414,5 milljónum.

3.Umsóknir um starf markaðs- og menningarfulltrúa

Málsnúmer 1604076Vakta málsnúmer

Helga Helgadóttir vék af fundi við umfjöllun þessa máls. S. Guðrún Hauksdóttir mætti í hennar stað.

Á 445. fundi bæjarráðs, 18. maí 2015, var samþykkt að fela bæjarstjóra og formanni bæjarráðs að vinna úr umsóknum í starf markaðs- og menningarfulltrúa og taka 7 umsækjendur í viðtöl sem uppfylltu best menntunar- og hæfnisskilyrði.
17 umsóknir bárust um starf markaðs- og menningarfulltrúa.

Umsögn bæjarstjóra og formanns bæjarráðs lögð fram.
Í niðurstöðu umsagnar er lagt til að Linda Lea Bogadóttir verði ráðin í starf markaðs- og menningarfulltrúa.

Bæjarráð samþykkir samhljóða að ráða Lindu Leu Bogadóttur í starf markaðs- og menningarfulltrúa.

4.Lóðarmörk Tjarnagötu 16, 18 og 20, Siglufirði

Málsnúmer 1603107Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri upplýsti bæjarráð um stöðu mála, varðandi ágreining er aðallega tengist lóðarmörkum Tjarnargötu 16 Siglufirði.

5.Mál er tengjast Ofanflóðasjóði

Málsnúmer 1503016Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri tók á móti fulltrúum Ofanflóðasjóðs, 30. maí s.l. og upplýsti bæjarráð um þau mál sem voru yfirfarin á þeim fundi.

6.Málefni Sigurhæðar ses (safnamál Ólafsfirði)

Málsnúmer 1605042Vakta málsnúmer

Á 445. fundi bæjarráðs, 18. maí 2016, var lagt fram erindi frá stjórn Sigurhæðar ses, dagsett 11. maí 2016, er m.a. varða fasteignagjöld vegna Aðalgötu 15 Ólafsfirði og Strandgötu 4.

Bæjarráð óskaði umsagnar deildarstjóra stjórnsýslu og fjármála.

Umsögn lögð fram.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra og deildarstjóra fræðslu- frístunda- og menningarmála að leggja fyrir bæjarráð drög að rekstrarsamningi.

Afstaða til erindis Sigurhæðar verður tekin þegar drög að rekstrarsamningi liggja fyrir.

7.Málefni Leyningsáss ses.

Málsnúmer 1206038Vakta málsnúmer

Á 447. fundi bæjarráðs, 1. júní 2016, var lagt fram erindi Leyningsáss ses. þar sem óskað er eftir viðræðum við Fjallabyggð um annarsvegar aðgerðir til að fyrirbyggja frekara tjón á nýjum golfvelli í Hólsdal vegna lausagöngu sauðfjár og hinsvegar lokun malarvegar inn á vallarsvæðið við Skarðsveg fyrir almennri umferð vélknúinna ökutækja.
Bæjarráð fól bæjarstjóra að svara erindinu.

Bæjarstjóri kynnti svarbréf sitt.

8.Mengun í Siglufjarðarhöfn

Málsnúmer 1606006Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri upplýsti bæjarráð um mengunartilvik í Siglufjarðarhöfn 27. maí s.l.

Það ástand sem skapaðist er ótækt og beðið er eftir skýrslu Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra varðandi málið.

9.Launayfirlit tímabils 2016

Málsnúmer 1602012Vakta málsnúmer

Lagt fram mánaðarlegt launayfirlit fyrir maí 2016.

Niðurstaðan fyrir heildina er 436,0 m.kr. sem er 100,9% af áætlun tímabilsins sem var 432,1 m.kr.
Sumar deildir eru yfir áætlun tímabilsins samtals um 18,1 m.kr. á móti öðrum deildum sem eru undir áætlun, samtals um 14,2 m.kr.
Nettóniðurstaða er því 3,9 m.kr. yfir áætlun tímabilsins.
Aðal skýring á stöðu deilda umfram áætlun tengist breytingum í kjölfar síðustu kjarasamningum og þarf að uppfæra launaáætlun miðað við þá.

10.Kjarasamningur við Félag grunnskólakennara

Málsnúmer 1606003Vakta málsnúmer

Samninganefndir Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags Grunnskólakennara, undirrituðu nýjan kjarasamning mánudagskvöldið 30. maí.

Verði samningurinn samþykktur mun hann gilda frá 1. júní 2016 til 31. mars 2019.

Nú standa yfir kynningar á kjarasamningnum og atkvæðagreiðsla um þá. Niðurstaða atkvæðagreiðslu mun liggja fyrir 9. júní n.k.

Lagt fram til kynningar.

11.Ósk um niðurfellingu á gámagjöldum

Málsnúmer 1603037Vakta málsnúmer

Tekið fyrir áður frestuðu erindi Björgunarsveitarinnar Strákar, Siglufirði þar sem óskað er eftir niðurfellingu á gjöldum vegna stöðuleyfis gáma.

Bæjarráð hafnar fram kominni ósk og bendir björgunarsveitinni á að sækja um styrk innan tilskilins tíma við gerð fjárhagsáætlunar.

12.Siglufjarðarkirkja - Vinnuskóli - Kirkjuvarsla

Málsnúmer 1606007Vakta málsnúmer

Tekin fyrir beiðni um aðkomu vinnuskólans að kirkjuvörslu í Siglufjarðarkirkju yfir sumarmánuðina.
með sambærilegum hætti og á síðasta ári.

Bæjarráð felur deildarstjóra stjórnsýslu og fjármála að kanna kostnað og nánari útfærslu.

13.Brot á IV. kafla reglugerðar um hollustuhætti og 16. gr.reglugerðar um meðhöndlun úrgangs

Málsnúmer 1606002Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar upplýsingar frá heilbrigðisfulltrúa varðandi brot á
IV. kafla reglugerðar um hollustuhætti nr. 941/2002 og 16 gr. reglugerðar um meðhöndlunar úrgangs nr. 737/2003, er tengist S1 á Ólafsfirði.

14.Fundur um úrgangsmál 2. maí 2016

Málsnúmer 1604067Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar samantekt Eyþings um niðurstöður ráðstefnu um úrgangsmál 2. maí s.l.

15.Síminn - 4G farsímasendi í Ólafsfirði

Málsnúmer 1606004Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar upplýsingar frá Símanum um að búið væri að setja uppp 4G farsímasendi í Ólafsfirði og því komið á 4G samband, bæði í Siglufirði og Ólafsfirði.

Bæjarráð fagnar framtakinu.

16.Málefni jarðganga á Tröllaskaga

Málsnúmer 1604029Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar svarbréf Vegagerðar, dagsett 30. maí 2016, við bréfi slökkviliðsstjóra til Vegagerðarinnar.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda Vegagerðinni, Akureyri, afrit af bréfinu með ósk um úrbætur.

17.Leiðbeiningar til sveitarfélaga vegna sumardvala fyrir fatlað fólk

Málsnúmer 1606005Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf frá Velferðarráðuneytinu, dagsett til 2. júní 2016, til sveitarstjóra, félagsmálastjóra og forsvarsmanna þjónustusvæða fyrir fatlað fólk vegna orlofsmála fatlaðs fólks.

Bæjarráð vísar erindinu til deildarstjóra félagsmála til afgreiðslu.

18.Til umsagnar - frá nefndasviði Alþingis, 785 mál

Málsnúmer 1605083Vakta málsnúmer

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um timbur og timburvöru, 785. mál.

Lagt fram.

19.Fundargerðir stjórnar Eyþings - 2016

Málsnúmer 1601005Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 280. fundar stjórnar Eyþings frá 11. maí 2016.

20.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga - 2016

Málsnúmer 1601008Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 839. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, frá 27. maí 2016.

21.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2016

Málsnúmer 1601013Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar eftirfarandi fundargerð:

99. fundur félagsmálanefndar frá 31. maí 2016.

Fundi slitið.