Bæjarráð Fjallabyggðar

435. fundur 08. mars 2016 kl. 16:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Steinunn María Sveinsdóttir formaður, S lista
  • Kristinn Kristjánsson varaformaður, F lista
  • Helga Helgadóttir aðalmaður, D lista
  • Sólrún Júlíusdóttir áheyrnarfulltrúi, B lista
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála

1.Útboð/verðkönnun - Malbikun fyrir Fjallabyggð 2016

Málsnúmer 1603013Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað deildarstjóra tæknideildar, Ármanns V. Sigurðssonar vegna nýlagnar og yfirlagnar malbiks 2016 fyrir Fjallabyggð.

Samkvæmt innkaupareglum Fjallabyggðar, er skylt að viðhafa útboð þegar áætluð samningsfjárhæð vegna verksamninga er yfir kr. 35.000.000.

Bæjarráð samþykkir því að bjóða út nýlagnir og yfirlagnir malbiks fyrir Fjallabyggð 2016 og felur deildarstóra tæknideildar að sjá um útboðið.

2.Bifreiðar og tæki Fjallabyggðar 2016

Málsnúmer 1602057Vakta málsnúmer

Kaupsamningur vegna stjórnsýslubifreiðar lagður fram til kynningar.

3.Gerð þrívíddarkorts

Málsnúmer 1603015Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað deildarstjóra fræðslu- frístunda- og menningarmála. Á fund bæjarráðs kom Kristinn J. Reimarsson og fylgdi minnisblaðinu úr hlaði.
Í október 2014 var kannað með kostnað við gerð þrívíddarkorts af Siglufirði og Ólafsfirði.
Haft var samband við Borgarmynd ehf sem hafði myndað Siglufjörð úr lofti með dróna þá um sumarið.
Tilboð þeirra var ekki til afgreiðslu við fjárhagsáætlun 2015.
Í byrjun þessa árs þegar farið er í að skoða gerð nýs bæklings eða kynningarefnis fyrir þá erlendu ferðamenn sem hingað koma með skemmtiferðarskipum, sýna ferðaþjónustuaðilar áhuga á gerð þrívíddarkorts.
Í framhaldi var leitað til Borgarmyndar ehf og þeir lögðu fram nýtt tilboð í gerð slíks korts.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til umfjöllunar í markaðs- og menningarnefnd og leggur áherslu að það verði afgreitt á næsta fundi. Þátttaka ferðaþjónustuaðila þarf að liggja fyrir við endanlega afgreiðslu málsins.

4.Málefni Vegagerðarinnar í Fjallabyggð

Málsnúmer 1603021Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar minnisblað frá fundi bæjarstjóra og deildarstjóra tæknideildar með umdæmisstjóra og rekstrarstjóra Vegagerðarinnar á Akureyri 2. mars 2016.

5.Trúnaðarmál - fasteign

Málsnúmer 1602043Vakta málsnúmer

Umfjöllun bæjarráðs er skráð sem trúnaðarmál.

6.Áskorun um bætt umferðaröryggi skólabarna í Fjallabyggð

Málsnúmer 1603022Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar áskorun stjórnar Foreldrafélags Grunnskóla Fjallabyggðar, dagsett 2. mars 2016, þar sem skorað er á bæjarstjórn Fjallabyggðar að standa betur að öryggismálum gangandi grunnskólabarna til og frá tónskóla á skólatíma.

Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar í skipulags- og umhverfisnefnd.

Einnig kynnt ályktun af fundi foreldra nemenda í Grunnskóla Fjallabyggðar 25. febrúar 2016, þar sem skorað er á Vegagerðina að koma upp vindhraðamæli sem allra fyrst á Saurbæjarásnum í Siglufirði.
Bæjarráð vísar í minnisblað bæjarstjóra og deildarstjóra tæknideildar frá fundi með fulltrúum Vegagerðarinnar 2. mars 2016.

7.Beiðni um umsögn vegna umsóknar um nýtt rekstrarleyfi, Ísafold Kitchen Bar, Aðalgötu 32 Siglufirði

Málsnúmer 1603012Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra dagsett 2. mars 2016, er varðar umsögn um nýtt rekstrarleyfi til sölu veitinga á Ísafold Kitchen Bar, Aðalgötu 32, Siglufirði.

Bæjarráð gerir ekki athugasemd við umsóknina.

8.Jafnrétti í sveitarfélögum - málþing og námskeið

Málsnúmer 1603003Vakta málsnúmer

Boðað er til málþings um jafnrétti í sveitarfélögum, 31. mars og námskeiðs 1. apríl 2016 í Reykjavík.

Þessir viðburðir eru skipulagðir með vísun til stefnumörkunar Sambands íslenskra sveitarfélaga kjörtímabilið 2014-2018, þar sem segir að sambandið skuli hvetja og styðja sveitarfélögin í því að ná fram jafnrétti kynjanna í reynd.

Lagt fram til kynningar.

9.Kerfisáætlun Landsnets

Málsnúmer 1510119Vakta málsnúmer

Í september og nóvember á síðasta ári voru haldnir fundir með Landsneti og fulltrúum sveitarfélaganna í Eyjafirði og Norðurlandi vestra, um kerfisáætlun Landsnets.

Í samráði Atvinnuþróunarfélaganna í Eyjafirði og Norðurlandi vestra og Landsnets hefur verið ákveðið að boða til næsta fundar þriðjudaginn 15. mars á Akureyri. Reiknað er með einum fulltrúa frá hverju sveitarfélagi.

Bæjarráð samþykkir að Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri verði fulltrúi Fjallabyggðar.

10.Ósk um stuðning við Nótuna - uppskeruhátíð tónlistarskóla í formi styrktarlínu

Málsnúmer 1603010Vakta málsnúmer

Aðstandendur Nótunnar - uppskeruhátíðar tónlistarskóla fara þess á leit við bæjarfélagið í erindi sínu dagsett 3. mars 2016 að það veiti Nótunni 2016 stuðning í formi styrktarlínu, og taka þar með þátt í að efla samhljóm NÓTUNNAR, á sínu svæði sem og á landsvísu.

Hátíðin, sem nú verður haldin í sjöunda sinn, er talinn víðtækasta samstarfsverkefni sem stofnað hefur verið til í tónlistarskólakerfinu, "grasrót tónlistarsköpunar" á landinu.

Fernir svæðistónleikar Nótunnar eru haldnir út um land og lokahátíð Nótunnar á landsvísu er haldin í Hörpu.

Stuðningsbeiðni er að upphæð 35.000 kr.

Bæjarráð samþykkir styrkbeiðni.

11.Ráðstefna um jarðskjálfta á Norðurlandi Húsavík 31. maí - 3. júní 2016

Málsnúmer 1603001Vakta málsnúmer

Boðað er til ráðstefnu um jarðskjálfta á Norðurlandi.

Aðstandendur ráðstefnunnar og styrktaraðilar eru: Háskólinn á Akureyri, Háskólasjóður KEA, Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, Veðurstofa Íslands, King Abdullah University of Science and Technology (KAUST), Rannsóknar-miðstöð í jarðskjálftaverkfræði við Háskóla Íslands, Almannavarnadeild Ríkis-lögreglustjóra, Viðlagatrygging Íslands, Íslenskar Orkurannsóknir (ÍSOR), Þekkingarnet Þingeyinga, Orkustofnun, Innanríkisráðuneytið, Umhverfis- og auðlindaráðuneytið og Forsætisráðuneytið.

Lagt fram til kynningar.

12.XXX. landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga - 2016

Málsnúmer 1603004Vakta málsnúmer

Boðað er til XXX. landsþings sambandsins 8. apríl 2016 í Reykjavík.

Kjörnir fulltrúar Fjallabyggðar eru:
Kristinn Kristjánsson og
Steinunn María Sveinsdóttir.
Til vara:
Ríkharður Hólm Sigurðsson og
Hilmar Þór Elefsen.

Bæjarstjóri mun einnig sækja landsþingið.

13.Sjómannadagurinn 2016 - styrkumsókn

Málsnúmer 1603016Vakta málsnúmer

Í erindi Sjómannafélags Ólafsfjarðar, dagsett 29. febrúar 2016, er þakkað fyrir styrk sem veittur er til Sjómannadagshátíðar í Fjallabyggð 2016. Jafnframt er þess óskað að félagið fái afslátt af leiguverði í Tjarnarborg og íþróttamiðstöð um sjómannadagshelgina 3. - 5. júní 2016.
Einnig er þess óskað að bæjarfélagið bjóði upp á rútuferðir milli byggðakjarna þessa helgi og að félagið fái afnot af smákofum, sjómannadagshelgina, þeim sem notaðir hafa verið í tengslum við jólamarkað Tjarnarborgar.

Bæjarráð samþykkir afslátt af leigu á Tjarnarborg, afnot af smákofum og felur deildarstjóra fræðslu- frístunda- og menningarmála að útfæra rútuferðir í samráði við Sjómannafélag Ólafsfjarðar.

14.Til umsagnar - 275. mál frá nefndasviði Alþingis

Málsnúmer 1603005Vakta málsnúmer

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um hæfisskilyrði leiðsögumanna, 275. mál.

Lagt fram til kynningar.

15.Til umsagnar - 32. mál frá nefndasviði Alþingis

Málsnúmer 1603009Vakta málsnúmer

Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um endurskoðun laga um lögheimili, 32. mál.

Lagt fram til kynningar.

16.Til umsagnar 458. mál frá nefndasviði Alþingis

Málsnúmer 1603002Vakta málsnúmer

Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga (skilyrði fjárhagsaðstoðar), 458. mál.

Lagt fram til kynningar.

Bæjarráð samþykkir að óska eftir umsögn frá deildarstjóra félagsmála.

17.Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Norðurlands vestra - 2016

Málsnúmer 1601004Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð HNv frá 11. febrúar 2016.

18.Fundargerðir samstarfsnefndar SÍS og kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara

Málsnúmer 1603006Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir samstarfsnefndar SNS og Félags grunnskólakennara nr. 53 og 54, sem nýlega voru birtar á heimsíðu sambandsins.

19.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga - 2016

Málsnúmer 1601008Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 836. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, frá 26. febrúar 2016.

Fundi slitið.