Skemmdir/tjón á bifreiðum og tækjum Fjallabyggðar 2016

Málsnúmer 1602057

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 433. fundur - 23.02.2016

Stjórnsýslubifreið Fjallabyggðar skemmdist 29. janúar s.l. Tjón var það mikið að tryggingarfélagið hefur samþykkt að greiða bætur fyrir bifreiðina.

Bæjarstjóri upplýsti um kosti í stöðunni.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að leita eftir kaupum á notuðum bíl.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 435. fundur - 08.03.2016

Kaupsamningur vegna stjórnsýslubifreiðar lagður fram til kynningar.