Bæjarráð Fjallabyggðar

425. fundur 22. desember 2015 kl. 12:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Steinunn María Sveinsdóttir formaður, S lista
  • Kristinn Kristjánsson varaformaður, F lista
  • Helga Helgadóttir aðalmaður, D lista
  • Sólrún Júlíusdóttir áheyrnarfulltrúi, B lista
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála

1.Breyting á aðalskipulagi Fjallabyggðar - Leirutangi

Málsnúmer 1503007Vakta málsnúmer

Á 195. fundi skipulags- og umhverfisnefndar, 4. desember 2015, var tekin fyrir athugasemd Báss ehf við auglýsta breyting á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2028. Forsvarsmenn Báss ehf. mættu á fund nefndarinnar til að gera betur grein fyrir athugasemd sinni.
Nefndin taldi nauðsynlegt að málið yrði skoðað nánar og óskaði eftir aðkomu bæjarstjóra og bæjarráðs þar að lútandi.

Á fund bæjarráðs mættu Valtýr Sigurðsson, hæstaréttarlögmaður og deildarstjóri tæknideildar, Ármann V. Sigurðsson.

Valtýr Sigurðsson lagði fram minnisblað um samskipti Báss ehf. og Rauðku ehf.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að kalla eftir lögfræðiáliti varðandi málið.

2.Deiliskipulag Leirutanga

Málsnúmer 1501084Vakta málsnúmer

Á 195. fundi skipulags- og umhverfisnefndar, 4. desember 2015, var tekin fyrir athugasemd Báss ehf við auglýsta tillögu að deiliskipulagi Leirutanga. Forsvarsmenn Báss ehf. mættu á fund nefndarinnar til að gera betur grein fyrir athugasemd sinni.
Nefndin taldi nauðsynlegt að málið yrði skoðað nánar og óskaði eftir aðkomu bæjarstjóra og bæjarráðs þar að lútandi.

Á fund bæjarráðs mættu Valtýr Sigurðsson, hæstaréttarlögmaður og deildarstjóri tæknideildar, Ármann V. Sigurðsson.

Valtýr Sigurðsson lagði fram minnisblað um samskipti Báss ehf. og Rauðku ehf.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að kalla eftir lögfræðiáliti varðandi málið.

3.Gjaldskrár 2016

Málsnúmer 1509094Vakta málsnúmer

Lögð fram gjaldskrá Slökkviliðs Fjallabyggðar 2016.
Breyting frá 2015 er 4,5%, eins og lagt var upp með í forsendum fjárhagsáætlunar 2016.

Bæjarráð samþykkir framlagða gjaldskrá.

4.Leikskálar, hönnun viðbyggingar

Málsnúmer 1503043Vakta málsnúmer

Lagður fram samningur um hönnun og ráðgjöf vegna verkhönnunar á viðbyggingu og innri breytingum á leikskólanum Leikskálum, við Teiknistofuna Víðihlíð 45.

Einnig lögð fram beiðni deildarstjóra tæknideildar, Ármanns Viðars Sigurðssonar til þess að bjóða út viðbyggingu og innri breytingu leikskólans Leikskála, Siglufirði.

Bæjarráð samþykkir hönnunar- og ráðgjafarsamning við Teiknistofuna Víðhlíð 45.

Einnig samþykkir bæjarráð að bjóða út viðbyggingu og innri breytingu leikskólans Leikskála.

5.LSR - Skuldbindingar vegna lífeyrishækkunar starfsmanns

Málsnúmer 1512004Vakta málsnúmer

Helga Helgadóttir vék af fundi undir þessum dagskrárlið.

Á 424. fundi bæjarráðs, 15. desember 2015, var tekið fyrir erindi Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, dagsett 24. nóvember 2015, er varðar skuldbindingu á lífeyrisshækkun vegna starfsmanns Fjallabyggðar.

Afgreiðslu var frestað, þar til umsögn kjarasviðs Samb. ísl. sveitarfélaga lægi fyrir.

Umsögn lögð fram.

Í ljósi umsagnar gerir bæjarráð ekki athugasemdir er varðar skuldbindingu á lífeyrisshækkun er kemur fram í erindi Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins.

6.Málefni Menntaskólans á Tröllaskaga

Málsnúmer 1407047Vakta málsnúmer

Á 125. fundi bæjarstjórnar, 18. desember 2015, var samþykkt samhljóða með 6 atkvæðum að hafna alfarið tillögum Akureyrarbæjar um þátttöku þeirra í leigugreiðslum og stofnkostnaði Menntaskólans á Tröllaskaga.

Á 424. fundi bæjarráðs, 15. desember 2015, var lagt fram svar Akureyrarbæjar, við ósk Fjallabyggðar um þátttöku Akureyrarbæjar í leigugreiðslum og stofnkostnaði Menntaskólans á Tröllaskaga.
Bæjarráð hafnaði tillögum Akureyrarbæjar sem fram komu í erindi og fól bæjarstjóra að vinna tillögu að gagntilboði og leggja fyrir næsta fund bæjarráðs.

Bæjarráð samþykkir framlagt erindi bæjarstjóra til Akureyrarbæjar.

7.Samningur um ráðgjöf vegna snjóflóðaeftirlits í skíðasvæði í Skarðdal

Málsnúmer 1512016Vakta málsnúmer

Á 423. fundi bæjarráðs, 8. desember 2015, var samþykkt að Fjallabyggð sjái um kostnað við snjóflóðaeftirlitið á skíðasvæðinu í vetur.
Bæjarráð fól bæjarstjóra að leggja fram samning um snjóflóðaeftirlit á næsta fundi bæjarráðs.

Lagður fram samningur um ráðgjöf vegna snjóflóðaeftirlits við Gest Hansson.

Bæjarráð samþykkir samninginn.

8.Öryggismyndavélakerfi í Sundhöll Siglufjarðar

Málsnúmer 1512033Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað íþrótta- og tómstundafulltrúa Hauks Sigurðssonar, vegna kaupa á öryggis- og eftirlitsmyndavélum í Sundhöllina á Siglufirði.

Samkvæmt verðkönnun bárust tvö tilboð, annað frá Securitas og hitt frá Öryggismiðstöðinni.

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Öryggismiðstöðvarinnar.
Á fjárhagsáætlun 2015 er fjármagn til kaupa og uppsetningar á þessum búnaði.

9.Samstarf heimaþjónustu og heimahjúkrunar í Fjallabyggð

Málsnúmer 1512035Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar tillaga að viljayfirlýsingu Fjallabyggðar og Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) um samstarf heimaþjónustu og heimahjúkrunar.

Fram kemur í yfirlýsingunni m.a. að gert er ráð fyrir að Fjallabyggð leggi HSN til allt að 50% stöðugildi til að sinna sameiginlegum verkefnum heimaþjónustu og heimahjúkrunar. Kostnaðarmat er kr. 2,5 mkr á árinu 2016.

10.1001 dagur - ákall til stjórnmálamanna

Málsnúmer 1512025Vakta málsnúmer

Fyrir ári síðan, eða 24. október 2014 stóðu nokkrar stofnanir fyrir námstefnu varðandi þverfaglegt samstarf í vinnu með börn og fjölskyldur.
Námstefnuna sótti breiður hópur fagfólks sem vinnur að þjónustu við börn og fjölskyldur. Ákveðið var að stofna til vinnuhóps með það markmið að fylgja eftir hugmyndum sem fram komu á námstefnunni. Vinnuhópurinn hefur meðal annars komið sér saman um áskorun til stjórnmálamanna um að taka breska stjórnmálamenn sér til fyrirmyndar og fjárfesta í fyrsta 1001 degi í lífi barna á Íslandi.

Lagt fram til kynningar.
Fylgiskjöl:

11.Beiðni um umsögn vegna endurnýjunar rekstrarleyfis

Málsnúmer 1512029Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra dagsett 16. desember 2015, er varðar umsögn um endurnýjun rekstrarleyfis fyrir Menningarhúsið Tjarnarborg, Aðalgötu 13, Ólafsfirði.

Bæjarráð gerir ekki athugasemd við umsóknina.

12.Framlenging á samstarfssamningi við Markaðsstofu Norðurlands

Málsnúmer 1512027Vakta málsnúmer

Framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands fer þess á leit við Fjallabyggð í erindi dagsettu 9. desember 2015, að samningur við MN verði endurnýjaður til þriggja ára eða til ársloka 2016.

Bæjarráð samþykkir að óska eftir því að framkvæmdastjóri MN komi á fund bæjarráðs og kynni verkefni og starfsemi.

13.Fulltrúatilnefning í Legatsjóð Jóns Sigurðssonar

Málsnúmer 1512030Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf Legatsjóðs Jóns Sigurðssonar til sveitarfélaganna við Eyjafjörð, dagsett 16. desember 2015.

Erindið varðar breytingu á skipulagsskrá sjóðsins og tilnefningu sveitarfélaganna á sameiginlegum fulltrúa í stjórn sjóðsins.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til afgreiðslu Eyþings.

14.Nýtt starf deildarstjóra fræðslu- frístunda- og menningarmála

Málsnúmer 1510109Vakta málsnúmer

Vegna ráðningar í nýja stöðu deildarstjóra óskar umsækjandi Karítas Skarphéðinsdóttir eftir rökstuðningi og skýringum.

Bæjarráð felur bæjarstjóra og formanni bæjarráðs að svara erindinu.

15.Fundargerðir stjórnar Hornbrekku - 2015

Málsnúmer 1502133Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Hornbrekku frá 17. nóvember og 8. desember 2015.

16.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga - 2015

Málsnúmer 1501008Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir 833. og 834. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 30. nóvember og 11. desember 2015.

Fundi slitið.