Bæjarráð Fjallabyggðar

412. fundur 13. október 2015 kl. 16:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Steinunn María Sveinsdóttir formaður, S lista
  • Kristinn Kristjánsson varaformaður, F lista
  • S. Guðrún Hauksdóttir varamaður, D lista
  • Sólrún Júlíusdóttir áheyrnarfulltrúi, B lista
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála
Helga Helgadóttir boðaði forföll og í hennar stað mætti S. Guðrún Hauksdóttir.

1.Skipurit

Málsnúmer 1412020Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að starfslýsingum og atvinnuauglýsingu vegna deildarstjóra fræðslu- frístunda- og menningarmála.

2.Mannskaps- og tækjabifreið slökkviliðs Fjallabyggðar Ólafsfirði

Málsnúmer 1509032Vakta málsnúmer

Á 409. fundi bæjarráðs, 22. september 2015, var lagt fram tilboð í mannskaps og tækjabíl fyrir Slökkvilið Fjallabyggðar frá fyrirtækinu Ósland ehf. sem sérhæft er í smíði og framleiðslu á slökkvibifreiðum.
Bæjarráð samþykkti að fela bæjarstjóra og slökkviliðsstjóra að ganga til samninga við fyrirtækið.

Lagður fram samningur að upphæð 8.690.000 án/vsk til staðfestingar.

Bæjarráð samþykkir samning og vísar kr. 1.690.000 til viðauka við fjárhagsáætlun 2015.

3.Leikskálar, hönnun viðbyggingar

Málsnúmer 1503043Vakta málsnúmer

410. fundur bæjarráðs, 28. september 2015, vísaði uppfærðri tillögu að viðbyggingu og innri breytingum á núverandi húsnæði leikskóla við Brekkugötu á Siglufirði til fræðslu- og frístundanefndar.

21. fundur fræðslu- og frístundanefndar, 2. október 2015, lagði til við bæjarráð að tillaga B yrði fyrir valinu og vonaðist til að framkvæmdir hæfust eins fljótt og kostur er.

Bæjarráð samþykkir tillögu B og felur bæjarstjóra að leita eftir tilboði í burðarþols- og lagnateikningar.

4.Kirkjugarður Siglufirði, verðkönnun

Málsnúmer 1509096Vakta málsnúmer

Lögð fram niðurstaða í verðkönnun vegna framkvæmda í syðri kirkjugarðinum í Siglufirði.

Tilboð voru opnuð 13. október 2015.
Eftirtaldir aðilar buðu:
Sölvi Sölvason kr. 8.420.000
Bás ehf. kr. 5.635.400
Smári ehf. kr. 8.939.000

Kostnaðaráætlun var kr. 4.708.000

Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda og vísar kr. 635.400 til viðauka við fjárhagsáætlun 2015.

5.Sameining íbúða á 3ju hæð í Skálarhlíð á Siglufirði

Málsnúmer 1407020Vakta málsnúmer

Tilboð í sameiningu íbúða á 3ju hæð í Skálarhlíð á Siglufirði voru opnuð 9. október 2015.

Eftirtaldir buðu í verkið:
Byggingarfélagið Berg ehf kr. 7.486.000
ÓHK trésmíðar ehf kr. 6.936.600

Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á kr. 7.515.582

Báðir tilboðsgjafar settu fram beiðni um lengri verktíma.

Deildarstjóri tæknideildar leggur til að samið verði við lægstbjóðanda og að verktími verði lengdur um mánuð til 31. janúar 2016.

Bæjaráð samþykkir að samið verið við ÓHK trésmíðar ehf.

6.Rekstraryfirlit ágúst 2015

Málsnúmer 1510030Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar rekstraryfirlit fyrir fyrstu átta mánuði ársins 2015.

Rekstrarniðurstaða Fjallabyggðar er 61,5 milljónum betri en tímabilsáætlun gerir ráð fyrir, -169,0 millj. í stað -107,5 millj.
Tekjur eru 71,8 millj. hærri en áætlun, gjöld 8,4 millj. hærri og fjármagnsliðir 1,9 millj. hærri.

7.Launayfirlit tímabils 2015

Málsnúmer 1504016Vakta málsnúmer

Lagt fram mánaðarlegt launayfirlit fyrir janúar til september 2015.

Breyting á launaáætlun vegna starfsmatsbreytinga að upphæð 13,7 millj. sem vísað var til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun 2015, er meðtalin í þessu yfirliti.

Niðurstaðan fyrir heildina er 749,1 m.kr. sem er 97,2% af áætlun tímabilsins sem var 770,3 m.kr.
Sumar deildir eru yfir áætlun tímabilsins samtals um 7,3 m.kr. á móti öðrum deildum sem eru undir áætlun, samtals um 28,5 m.kr.

Nettóniðurstaða er því 21,2 m.kr. undir áætlun tímabilsins.

8.Fjárhagsáætlun 2016 og 2017-2019

Málsnúmer 1505055Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar staðgreiðsluáætlun Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Einnig bráðabirgðaútreikningur fasteignagjalda 2016.

9.Rætur bs. - Staða byggðasamlagsins

Málsnúmer 1503001Vakta málsnúmer

Á 401. fundi bæjarráðs, 28. september 2015, var lagt fram svar Velferðarráðuneytisins, dagsett 22. september 2015 við beiðni Fjallabyggðar og Dalvíkurbyggðar um undanþágur frá lágmarksíbúafjölda þjónustusvæða í málefnum fatlaðs fólks á grundvelli landfræðilegra ástæðna, þannig að þau geti stofnað sameiginlegt þjónustusvæði.
Ráðuneytið samþykkti undanþáguna í eitt ár frá 1. janúar 2016 og lagði jafnframt áheyrslu á að undanþágutíminn verði notaður til að kanna gaumgæfilega samstarf á Eyjafjarðarsvæðinu.

Á fund bæjarráðs komu fulltrúar Dalvíkurbyggðar,
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson, formaður byggðaráðs,
Valdís Guðbrandsdóttir, varamaður í byggðaráði,
Silja Pálsdóttir, formaður félagsmálaráðs,
Bjarni Th. Bjarnason, sveitarstjóri,
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs og
Eyrún Rafnsdóttir, sviðsstjóri félagsmálasviðs.

Einnig komu á fund bæjarráðs,
Hjörtur Hjartarson deildarstjóri fjölskyldudeildar og
Nanna Árnadóttir formaður félagsmálanefndar.

Farið var yfir næstu skref varðandi stofnun þjónustusvæðis og skipulag þess.
Starfshópur fulltrúa Fjallabyggðar og Dalvíkurbyggðar
mun koma saman í næstu viku.

Bæjarráð leggur til að fulltrúar Fjallabyggðar í starfshópnum verði bæjarstjóri, deildarstjóri fjölskyldudeildar og deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála.

10.Aukaaðalfundur Samorku 16. október 2015

Málsnúmer 1510015Vakta málsnúmer

Boðað er til aukaaðalfundar Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja, 16. október n.k.

Lagt fram.

11.15. mál til umsagnar - Tillaga til þingsályktunar um bráðaaðgerðir til að tryggja öllum húsnæði á viðráðanlegum kjörum

Málsnúmer 1510016Vakta málsnúmer

Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagna tillögu til þingsályktunar um bráðaaðgerðir til að tryggja öllum húsnæði á viðráðanlegum kjörum, 15. mál.

Lagt fram til kynningar.

12.Aðgengi fyrir fatlaða - auglýsing frá Velferðarráðuneytinu

Málsnúmer 1507009Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar, svarbréf Velferðarráðuneytis, dagsett 21. september 2015, þar sem tilkynnt er að ekki verði unnt að verða við styrkumsókn Fjallabyggðar vegna úttekta í aðgengismálum fatlaðs fólks.

13.Kynningarfundur Umhverfisstofnunar - rafhlöður og rafgeymar og raf- og rafeindatækjaúrgangur

Málsnúmer 1510031Vakta málsnúmer

Lögð fram tilkynning um fund hjá Umhverfisstofnun, 16. október n.k. í Reykjavík, um nýjar reglur varðandi rafhlöður, rafgeyma og rafeinda- og raftækjaúrgang.
Skv. 5. gr. reglugerðar nr. 442/2015 gegna sveitarfélög hlutverki varðandi móttöku rafeinda- og raftækjaúrgangs svo og upplýsingaveitingu um móttökustaði og flokkun úrgangsins.

14.Stofnun Soroptimistaklúbbs Tröllaskaga 17.október 2015

Málsnúmer 1510032Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf formanns undirbúningshóps að stofnun Soroptimistaklúbbs Tröllaskaga, dagsett 5. október 2015.

Markmið soroptimista, sem eru alþjóðleg samtök, er að stuðla að velferð stúlkna og kvenna með fjölþjóðlegu tengslaneti og verkefnum sem styðja m.a. við menntun og eflingu leiðtogahæfni þeirra

Stofnfundur verður í Menntaskólanum á Tröllaskaga 17. október n.k.
Fulltrúum Fjallabyggðar og Dalvíkurbyggðar er boðið að heiðra stofnfélaga með nærveru sinni á hátíðarkvöldverðinum.

Bæjarráð felur formanni bæjarráðs að þiggja boðið.

15.Til umsagnar - Skýrsla um jafnt búsetuform barna sem búa á tveimur heimilum

Málsnúmer 1510014Vakta málsnúmer

Innanríkisráðuneytið vekur athygli á því að til umsagnar er hjá innanríkisráðuneytinu skýrsla um jafnt búsetuform barna sem búa á tveimur heimilum.
Í skýrslunni er lagt til að lögfest verði ákvæði í barnalög sem heimili skipta búsetu barns á grundvelli staðfests samkomulags foreldra, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

Lagt fram til kynningar.

16.Veraldarvinir - ósk um samstarf á árinu 2016

Málsnúmer 1510010Vakta málsnúmer

Í erindi Veraldarvina, dagsett 2. október 2015, er settur fram samstarfsáhugi á árinu 2016.
Veraldarvinir eru íslensk félagasamtök sem rekin eru án hagnaðarsjónarmiða. Samtökin hafa umhverfismál í öndvegi. Markmið samtakanna er að stuðla að heilbrigðum lífsháttum og betri umgengni manna við umhverfi sitt. Samtökin nálgast markmið sín með alþjóðlegu samstarfi og sjálfboðaliðastarfi og skipulagningu umhverfis- og menningartengdra verkefna í samvinnu við sveitarfélög, fyrirtæki, ferðaþjónustuaðila og frjáls félagasamtök.

Bæjarráð óskar eftir umsögn íþrótta- og tómstundafulltrúa.

17.Fyrirhugað áætlunarflug milli Kaupmannahafnar og Akureyrar sumarið 2016

Málsnúmer 1510017Vakta málsnúmer

Flugfélagið Estonian Air mun hefja flug milli Kaupmannahafnar og Akureyrar næsta sumar, einu sinni í viku.

Lagt fram til kynningar.

Bæjarráð fagnar þessum árangri sem hefur náðst nú þegar í millilandaflugi um Akureyrarflugvöll.

18.Síldarævintýri 2015

Málsnúmer 1504025Vakta málsnúmer

Skýrsla Síldarævintýris 2015 lögð fram til kynningar.

19.Aðalfundur fulltrúaráðs EBÍ - 23. september 2015

Málsnúmer 1506042Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð aðalfundar fulltrúaráðs Eignahaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands frá 23. september 2015.

Fundi slitið.