Íþróttamiðstöðvar Fjallabyggðar

Gjaldskrá Admission fee Fjallakort

 

Opnunartímar Íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar - gildir frá 4. september

Í Fjallabyggð er öflugt íþróttastarf. Íþróttamiðstöðvar eru í báðum byggðakjörnum, í Ólafsfirði er útisundlaug og líkamsrækt. Á Siglufirði er inni sundlaug og líkamsrækt

Sundhöllin á Siglufirði 

Hvanneyrarbraut 52
Sími: 464 9170 / 866 9136

Sundhöllin á Siglufirði er innilaug  10 x 25 metrar.  Á útisvæði er stór pottur með nuddi, kalt kar og sauna.

ATH! Sölu ofan í laugarnar lýkur 15 mínútum fyrir lokun. 

Staðsetning sundlaugar á korti

Sundlaugin í Ólafsfirði

Tjarnarstíg 1
Sími: 464 9250 / 866 9136

Á Ólafsfirði er úti sundlaug 8x25m, tveir heitir pottar annar 38° og hinn 40°  og er 38° potturinn með nuddi.  Sauna og kalt kar. Einnig er góð aðstaða fyrir barnafólk og hægt að velja að fara í fosslaugina og barnalaugina og síðast en ekki síst rennibrautirnar tvær. Önnur er snákur sem er 3,5 metrar en sú stærri er 52,5 metrar og er svarthol.

ATH! Sölu ofan í laugarnar lýkur 15 mínútum fyrir lokun. 

Staðsetning sundlaugar á korti

 

Íþróttamiðstöðvar Fjallabyggðar

Á Siglufirði er fjölnota íþróttasalur, tækjasalur.  
Í Ólafsfirði er löglegt íþróttahús og ágætis tækjasalur.

 

 

 

 

Tengiliðir

Haukur Sigurðsson

Fréttir

Lausar stöður í Íþróttamiðstöð Fjallabyggðar

Íþróttamiðstöð Fjallabyggðar auglýsir þrjár stöður lausar til umsóknar. Umsóknarfrestur er til og með 19. september 2023. Sökum eðli starfanna er auglýst eftir: - Kvenmanni í 55% stöðuhlutfall - Karlmanni í 65% stöðuhlutfall - Karlmanni í 80% stöðuhlutfall
Lesa meira

Umhyggjudagurinn 26. ágúst 2023

Vegna Umhyggjudagsins verður frítt í sund í sundlaugum Fjallabyggðar laugardaginn 26. ágúst frá kl. 14:00 og 16:00. Glaðningur fyrir alla krakka sem mæta í sund, á meðan birgðir endast.
Lesa meira