Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar

186. fundur 13. júlí 2015 kl. 17:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Guðmundur J Skarphéðinsson formaður, F lista
  • Hilmar Þór Elefsen varaformaður, S lista
  • Nanna Árnadóttir aðalmaður, S lista
  • Brynja Ingunn Hafsteinsdóttir aðalmaður, D lista
  • Ármann Viðar Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar
  • Íris Stefánsdóttir tæknifulltrúi
Fundargerð ritaði: Íris Stefánsdóttir Tæknifulltrúi

1.Breytingar á húsnæði við Hlíðarveg 20 Siglufirði

Málsnúmer 1505046Vakta málsnúmer

Tillaga að breytingum á húsnæði gamla gagnfræðaskólans við Hlíðarveg 20 var grenndarkynnt frá 2.júní til 1.júlí 2015. Tillagan er gerð af Elínu Þorsteinsdóttur, innanhússarkitekt fyrir Annathor ehf. Lagðar fram athugasemdir sem bárust ásamt umsögn frá Minjastofnun Íslands.

Erindi frestað til næsta fundar.

2.Óásjáleg hús og lóðir

Málsnúmer 1507015Vakta málsnúmer

Umræða var tekin um ástand húsa og lóða fyrirtækja og einstaklinga í Fjallabyggð. Nefndin felur tæknideild að senda eigendum umræddra fasteigna og lóða athugasemdir vegna umhirðu og hvetja til úrbóta.

3.Umsókn um leyfi til breytinga á húsi við Hlíðarveg 7c Siglufirði

Málsnúmer 1506076Vakta málsnúmer

Björgvin M. Pétursson, fyrir hönd eigenda að Hlíðarvegi 7c Siglufirði, óskar eftir leyfi til breytinga á útliti hússins. Lagðir voru fram aðaluppdrættir af fyrirhuguðum breytingum á eigninni sem taka helst til breyttrar ásýndar hússins hvað varðar hæð þess, þakforms og endurklæðningar.

Erindi samþykkt.

4.Umsókn um leyfi fyrir sólpalli við Hverfisgötu 3 Siglufirði

Málsnúmer 1507027Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Guðjóns M. Ólafssonar ásamt skýringarmyndum þar sem óskað er eftir leyfi til að byggja sólpall á vesturhlið húss hans við Hverfisgötu 3, Siglufirði.

Erindi samþykkt.

5.Fyrirspurn vegna lóðarinnar Aðalgötu 25, Siglufirði

Málsnúmer 1506070Vakta málsnúmer

Lögð fram fyrirspurn Jóns Hrólfs Baldurssonar og Ólafar Kristínar Daníelsdóttur, fyrir hönd Rebel ehf. Spurt er hvort leyfi fengist til að reisa 25-40fm hús á lóðinni Aðalgötu 25, Siglufirði. Húsið yrði á einni hæð og notað undir rakarastofu.

Á lóðinni stóð áður tveggja hæða hús og telur nefndin því að í ljósi stærðar hennar beri hún stærri byggingu en 25-40fm.

6.Aðgengi að Lækjargötu 4c

Málsnúmer 1506075Vakta málsnúmer

Eigendur að Lækjargötu 4c Siglufirði, óska eftir aðgengi að húsi sínu frá Lækjargötu eftir göngustíg norðan við Lækjargötu 4b. Jafnframt er óskað eftir að merkja nyrsta bílastæðið á Lækjargötu 4 sem einkastæði Lækjargötu 4c.

Nefndin samþykkir úthlutun á bílastæði og bendir á að göngustígurinn er til staðar og ekki þarf að sækja sérstaklega um aðgengi að honum.

7.Umsókn um lóðirnar Ránargata 2 og 12, Siglufirði

Málsnúmer 1502014Vakta málsnúmer

Á 177. fundi nefndarinnar þann 5. febrúar sl. var tekin fyrir umsókn Bás ehf. um úthlutun á lóðum nr. 2 og 12 við Ránargötu á Siglufirði. Nefndin samþykkti að úthluta Bás ehf. lóð nr. 12.

Málið tekið upp að nýju og Bás ehf. úthlutað lóð nr. 2 við Ránargötu. Tæknideild falið að ganga frá lóðarleigusamningi í samræmi við samþykkt deiliskipulag af Þormóðseyri.

8.Stækkun lóðar við Hvanneyrarbraut 63 Siglufirði

Málsnúmer 1507007Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Halldóru S. Björgvinsdóttur húseiganda að Hvanneyrarbraut 63, Siglufirði. Óskað er eftir stækkun á lóð til norðurs að göngustíg samkvæmt meðfylgjandi uppdrætti.

Erindi samþykkt.

9.Endurnýjun lóðarleigusamninga fyrir Hólaveg 4 og Hlíðarveg 15

Málsnúmer 1506025Vakta málsnúmer

Anna Marie Jónsdóttir fyrir hönd Jóns Garðars Steingrímssonar og Ingibjargar G. Jónsdóttur, sækir um endurnýjun lóðarleigusamninga fyrir lóðirnar Hólaveg 4 og Hlíðarveg 15. Lagt fram lóðarblað og drög að lóðarleigusamningum.

Erindi samþykkt.

10.Tippur fyrir grófan úrgang á Siglufirði

Málsnúmer 1507024Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga deildarstjóra tæknideildar að nýrri staðsetningu jarðvegstippa fyrir grófan úrgang við Selgil á Siglufirði. Núverandi staðsetning er á suðurhluta Leirutanga og verður því svæði lokað.

Nefndin samþykkir tillöguna.

11.Grjótnám í Hvanneyrarkróksfjöru

Málsnúmer 1507028Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Guðnýjar Róbertsdóttur varðandi grjótnám í Hvanneyrarkróksfjöru.

Tæknideild falið að koma með svör við erindinu til nefndarinnar.

12.Ósk um leyfi til að setja upp vegvísi/skilti upp við ljósamastrið á Ingvarsbryggju

Málsnúmer 1507008Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi Valgeirs T. Sigurðssonar, f.h. kaffihússins Harbour House þar sem sótt er um leyfi fyrir uppsetningu vegvísis/skiltis upp við ljósamastrið á Ingvarsbryggju á Siglufirði. Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 7. júlí sl. að vísa erindinu til umfjöllunar í skipulags- og umhverfisnefnd.

Undir þessum lið vék Brynja Hafsteinsdóttir af fundi.

Nefndin gerir ekki athugasemd við staðsetningu vegvísis/skiltis og vísar ákvarðanatöku til hafnarstjórnar.

13.Vegvísar og merking á bílastæðum

Málsnúmer 1506063Vakta málsnúmer

Hálfdán Sveinsson fyrir hönd Siglunes Guesthouse sækir um leyfi til að setja upp vegvísa á þrjá ljósastaura á Túngötu og Aðalgötu í samráði við deildarstjóra tæknideildar. Einnig er sótt um leyfi til að merkja bílastæði Sigluness við Eyrargötu 17. Lögð fram teikning af skiltunum.

Nefndin samþykkir erindið og að uppsetning verði í samráði við tæknideild.

14.Beiðni um umsögn vegna umsóknar um nýtt rekstrarleyfi

Málsnúmer 1506052Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra dagsett 18.6 2015. Óskað er eftir umsögn byggingarfulltrúa vegna nýs rekstrarleyfis til sölu veitinga á krá og samkomusal/sölum að Vetrarbraut 8-10, Siglufirði.

Deildarstjóra tæknideildar falið að senda umsögn.

15.Ástand húss við Aðalgötu 6

Málsnúmer 1408047Vakta málsnúmer

Eiganda húss við Aðalgötu 6 Siglufirði var sent bréf dagsett 21.maí 2015 þar sem áréttuð var sú krafa að viðkomandi gerði úrbætur á útliti og frágangi fasteignarinnar. Gefinn var upp fjögurra vikna frestur til úrbóta eða tímasetta áætlun sem gerir ráð fyrir úrbótum við fyrsta tækifæri. Að öðrum kosti yrði málið tekið upp að nýju og lagðar á dagsektir.

Ekki hefur borist tímasett áætlun um úrbætur á eigninni. Því samþykkir nefndin að leggja á dagsektir að upphæð 20.000 kr. sem byrjar að telja frá og með mánudeginum 20.júlí 2015.

16.Breyting á aðalskipulagi Fjallabyggðar - Leirutangi

Málsnúmer 1503007Vakta málsnúmer

Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2028, vegna breyttrar landnotkunar á Leirutanga Siglufirði, var auglýst 13.5 2015. Athugasemdafrestur var til 26.6 2015. Engin athugasemd barst en umsögn barst frá Umhverfisstofnun dags. 6.júlí 2015.

Lagt fram til kynningar.

17.Deiliskipulag Leirutanga

Málsnúmer 1501084Vakta málsnúmer

Tillaga að deiliskipulagi Leirutanga, Siglufirði, var auglýst 13.5 2015. Athugasemdafrestur var til 26.6 2015. Ein athugasemd barst og þrjár umsagnir.

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið.